Sport

Snýr aftur til keppni eftir saurslysið

Andri Broddason skrifar
Joanna Wietrzyk vakti mikla athygli eftir að hafa haldið áfram keppni þrátt fyrir að hafa kúkað á sig.
Joanna Wietrzyk vakti mikla athygli eftir að hafa haldið áfram keppni þrátt fyrir að hafa kúkað á sig. VCG/Getty Images

Joanna Wietrzyk snýr aftur til keppni í Hyrox eftir að hafa kúkað á sig í keppni fyrir nokkrum vikum. Hún var mikið gagnrýnd fyrir að halda áfram keppni eftir slysið en hún endaði á því að vinna keppnina.

Í færslu á Instagram segir Wietrzyk að það hafi verið erfitt að vita hvernig hún ætti að fara að eftir að mynd af henni dreifðist um netið eins og eldur í sinu. Hún var harðlega gagnrýnd fyrir að hafa ekki hætt keppni þar sem hægðir hennar dreifðust um brautina og búnað sem aðrir keppendur voru að nota.

Hún hefur látið lítið af sér fara síðan atvikið gerðist en tilkynnir nú að hún hefji keppni í Elite 15 deild í Hyrox. Þrátt fyrir að hafa verið harðlega gagnrýnd þá vildi hún einnig þakka fyrir allan þann stuðning sem hún hefur fengið.

„Ég vil senda þakkir til allra þeirra sem hafa sýnt mér stuðning. Hann hefur verið yfirþyrmandi síðustu vikur. Þetta hefur verið erfitt mál fyrir mig til að eiga við en sama þótt stuðningurinn hafi farið beint til mín eða til teymisins sem er í kringum mig þá er ég virkilega þakklát,“ sagði Wietrzyk í Instagram færslunni sinni.

Wietrzyk er heimsmethafi kvenna í Hyrox og því eru miklar væntingar til hennar í keppni helgarinnar. Það hefur þó tekið andlega á að vera svona mikið í sviðsljósinu og óvíst er hvaða áhrif það hefur haft á hana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×