Erlent

Fengu hjörtu Akur­eyringa að láni í banda­rísku eyði­mörkinni

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Ryland fékk hugmyndina eftir að hafa séð hjörtun á Akureyri.
Ryland fékk hugmyndina eftir að hafa séð hjörtun á Akureyri.

Borgaryfirvöld í bandarísku borginni Palm Desert fengu innblástur frá Akureyri þegar hjörtu voru um tíma sett á umferðarljós. Starfsmaður borgarinnar segir uppátækið hafa gefist vel til og segir margt að læra af Íslendingum.

Líklega hafa ekki margir Íslendingar heyrt af bandarísku borginni Palm Desert sem staðsett er í sunnanverðu Kaliforníu-ríki. Þar er jafnan þurrt, hlýtt og sólríkt veður enda borgin staðsett í miðri eyðimörk og nýtur borgin góðs af nágrenni við Los Angeles og systurborgina Palm Springs sem fleiri kannast eflaust við. Ryland Penta starfsmaður borgarinnar og samskiptastjóri segir að á hverju ári sé haldin árleg golfbílaskrúðganga.

„Golfbílar voru raunar fundnir upp hér. Við lokum aðalgötunni okkar, El Paseo, og höldum skrúðgöngu með skreyttum golfbílum. Þetta höfum við gert í 62 ár. Í þetta sinn fannst okkur við þurfa að koma þeim skilaboðum á framfæri að fólk ætti að aka varlega, hafa hugann við aksturinn, sýna gangandi vegfarendum tillitssemi og tryggja öryggi þeirra,“ segir Ryland.

„Við hugsuðum með okkur: Hvað væri betra en að sækja innblástur til Íslands, til Akureyrar, og setja hjartatákn á umferðarljósin okkar? Við settum þetta upp tímabundið og sýndum á samfélagsmiðlum, og viðtökurnar voru alveg frábærar. Fólk hefur sagt okkur hvað því þyki þetta fallegt og að það vildi að við gætum haft þetta allt árið. En við settum þetta aðeins upp tímabundið í tengslum við þennan stóra viðburð.“

Ástæða þess að ekki er hægt að vera með hjartalöguðu umferðarljósin allt árið er sú að umferðarlög í Kaliforníu banna það. Ljósunum hafi verið komið fyrir klukkan sex að morgni og staðið frameftir degi.

Ryland segir akureyrsku umferðarljósin hafa slegið í gegn.

En hvernig í ósköpunum dettur borgarstarfsmanni borgar í Kaliforníu sem fæstir Íslendingar hafa heyrt um að nota svona hugmynd frá Íslandi? Hvernig kom það til?

„Til að byrja með er ég mikill Íslandsvinur og hef komið þangað nokkrum sinnum. Ég sá þetta auðvitað og fannst þetta svo fallegt dæmi um mjúkt vald, þessa látlausu leið til að koma hjarta fyrir í götumannvirki. Við hugsuðum því: „Fáum þessa hugmynd að láni.“ Þetta gæti verið mjög sérstök leið til að koma þessum skilaboðum á framfæri við íbúana okkar, en líka til að tengjast fólki sem veitir okkur innblástur. Það er frændfólk okkar á Íslandi, hinum megin við hafið.“

Þið hafið fengið hjörtun okkar að láni, en hvað ætti Akureyri að fá að láni frá Palm Desert í staðinn? Og af hverju ætti það að vera þetta frábæra veður hjá ykkur?

„Ég var einmitt að fara að segja veðrið! Nú er næstum kominn nóvember og hér er yndislegt veður í dag, 28 stiga hiti. Við bjóðum því alla Íslendinga velkomna til Palm Desert, hvenær sem er. Þetta er lítil paradís. En ef þið viljið fá eitthvað alveg sérstakt skuluð þið koma í ágúst, þegar það er gríðarlega heitt. Kannski væri samt betra að koma seinni hluta árs eða snemma á árinu, frá janúar og kannski fram í apríl. En já, Ísland er mikill innblástur þegar kemur að svona skilaboðum og okkur finnst frábært að geta miðlað þeim til íbúanna okkar.“

Ryland segist viss um að rauðu hjörtun séu komin til að vera á hátíðum Palm Desert. Vilji sé fyrir hendi að bregða upp hjörtunum á fleiri hátíðum.

„Við birtum þetta á samfélagsmiðlum eftir viðburðinn á sunnudaginn, og yfir 130 þúsund manns hér á svæðinu hafa horft á myndböndin og skrifað athugasemdir á samfélagsmiðlasíðunum okkar. Við erum því farin að hugsa að við verðum kannski að gera þetta á öllum viðburðum okkar. Þetta er svo góð leið til að tengjast íbúunum og færa fólkinu í Palm Desert örlítið meiri hjartahlýju.“

Íbúar voru með uppátækinu hvattir til að hugsa um hvern annan í umferðinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×