Sport

„Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Hilmar Pétursson í baráttunni
Hilmar Pétursson í baráttunni Guðmundur/Vísir

Keflavík vann gríðarlega öflugan þrettán stiga sigur 112-99 á liði Hattar í kvöld þegar þessi lið mættust í Blue höllinni í fjórðu umferð Bónus deild karla. Hilmar Pétursson átti öflugan leik fyrir Keflavík og ræddi við Vísi eftir leik.

„Það eru hlutir varnarlega sem að við þurfum að bæta“ sagði Hilmar Pétursson leikmaður Keflavíkur eftir sigurinn í kvöld.

„Við töpum öðrum leikhluta með fjórum og það er bara eitthvað sem við þurfum að bæta varnarlega að ekki grafa okkur í svona djúpa holu því það verður þá bara erfitt fyrir okkur“

Þrátt fyrir að Keflavík hafi á endanum unnið með þrettán stigum þurftu þeir heldur betur að hafa fyrir sigrinum í kvöld.

„Höttur eru með án efa sitt besta lið hingað til og við hefðum kannski alveg vilja vinna með tuttugu stigum, þeir eru gamlir þessir strákar en við hefðum átt að keyra betur á þá“

Jamir Chaplin átti frábæran leik fyrir Keflavík í kvöld og var hann helsti murinn á liðunum í kvöld að mati Hilmars.

„Við vorum með Jamir Chaplin sem er búin að klikka úr svona samtals tólf skotum á tímabilinu“

„Ég held að seinni hálfleikur hafi farið bara með leikinn gjörsamlega og þá sérstaklega fjórði leikhluti“

Jamir Chaplin hefur komið eins og stormsveipur inn í lið Keflavíkur á þessu tímabili.

„Það er bara æðislegt og hann er líka bara frábær maður utan vallar. Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann og þú veist að þú ert þá að fara fá stoðsendingu og hann er að fara setja hann“

Hilmar Pétursson horfir bjartsýnn fram á veginn fyrir Keflavík.

„Ég er bara spenntur. Fínt að byrja 3-1 í staðin fyrir 2-2. Ég veit reyndar ekki hverja við eigum næst en það er bara undirbúningur fyrir næstu viku og við reynum að taka hann líka“ sagði Hilmar Pétursson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×