Fótbolti

Cristiano Ronaldo með þrennu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo fagnar einu marka sinna í sigri Al Nassr í kvöld.
Cristiano Ronaldo fagnar einu marka sinna í sigri Al Nassr í kvöld. Getty/Abdullah Ahmed

Portúgalski knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo skoraði þrjú mörk á fimmtán mínútna kafla í seinni hálfleik þegar lið hans Al Nassr vann sigur í markaleik í sádíarabísku deildinni í kvöld.

Al Nassr vann 5-3 heimasigur á Al Kholood eftir að staðan var 2-2 í hálfleik. Það var ekki nóg með að Ronaldo hafi boðið upp á þrennu heldur gaf landi hans Joao Félix fjórar stoðsendingar í leiknum.

Angelo og Sadio Mané skoruðu mörk Al Nassr í fyrri hálfleik en bæði komu eftir stoðsendingar frá Joao Félix.

Gestirnir jöfnuðu í uppbótartíma fyrri hálfleiks en í þeim síðari var komið að sýningu frá Ronaldo.

Ronaldo skoraði fyrst á 66. mínútu og svo aftur á 72. mínútu en umræddur Joao Félix átti stoðsendinguna í báðum mörkunum.

Sadio Mané lagði svo upp þriðja mark Ronaldo á 81. mínútu.

Ronaldo var með hina fullkomnu þrennu, því hann skoraði fyrst með vinstri fæti, svo með skalla og loks með hægri fæti.

Ronaldo er nú kominn með sjö deildarmörk á leiktíðinni og 985 mörk á ferlinum og vantar því aðeins fimmtán mörk til að skora þúsund mörk.

Al Nassr er með jafnmörg stig og topplið Al Qadsiah en liðið á líka leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×