18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Valur Páll Eiríksson skrifar 31. október 2026 09:30 Hólmar varð leikmaður West Ham í eigendatíð Björgólfs Guðmundssonar, örfáum mánuðum fyrir fjármálahrun hér á landi og víðar. Samsett/Getty Hólmar Örn Eyjólfsson lagði nýverið skóna á hilluna. Hann fór ungur að árum út í atvinnumennsku og tók stórt stökk frá HK til West Ham United á Englandi haustið 2008. Þar gekk á ýmsu. „
Það var mjög erfitt. Auðvitað var maður bara 17 ára á þessum tíma þegar ég fer út á reynslu til þeirra, ætli það hafi ekki verið 2007 að hérna, fer ég á tveggja vikna reynslu hjá þeim sem gengur mjög vel. Þá var ég að æfa með aðalliðinu og var í rauninni alltaf í aðalliðshópnum,“ segir Hólmar. Klippa: Hólmar gerir upp ferilinn: Bankahrun í West Ham, blómaskeið í Noregi og pabbi sem þjálfari „Þeir voru í rauninni ekki með neitt varalið. Þannig að þeir voru bara með kannski 30 manna hóp sem að þjálfarinn kom á hverjum degi og sagði: „Heyrðu, ég vil fá 20 á æfingu, eða 22“ eða eitthvað. Þá fengu hinir sem didn't make the cut (fengu ekki að vera með), þeim var bara að ýtt til hliðar í einhverjar séræfingar. Þannig að það var alveg erfitt. Maður þurfti að þroskast fljótt á þeim tíma,“ segir hann enn fremur. Hér varð hrun Hólmar semur við West Ham sumarið 2008 og örfáum mánuðum síðar verður fjármálahrun á Íslandi, sem og víðar. Björgólfur Guðmundsson var á þessum tíma eigandi West Ham og kom illa út úr hruninu sem hafði sín áhrif á félagið. Í ofanálag misstu margir á Bretlandi háar fjárhæðir vegna IceSave og segja má að Íslendingar hafi ekki verið vinsælir í Lundúnum. „Nei, þeir voru það ekki. Ég held að Eggert (Magnússon, fyrrverandi stjórnarformaður West Ham) hafi verið farinn út úr þessu. En já, við vorum ekkert sérstaklega vinsælir. Það var einmitt einn sjúkraþjálfari þarna sem ætlaði að logga sig inn á Icesave-reikninginn sinn sem var bara kominn í núllið. Þetta voru sérstakir tímar,“ segir Hólmar Örn. Bellamy með stæla West Ham var hins vegar sterkt úrvalsdeildarlið á þessum tíma og Hólmar fékk að æfa með öflugum leikmönnum sem spiluðu á hæsta stigi. „Maður lærði alveg helling af þeim, bara að fá að vera í kringum þá og sjá hvernig þeir æfa og gera hlutina. Eftir á að hyggja má velta upp hvort þetta hafi verið of stórt „move“. Það er erfitt að brjótast í gegn og allt þetta en ég er alveg á því að ég lærði helling af þessu og þú veist, svo er það bara líka þannig að þegar að þú ert ungur strákur og þig er búið að dreyma um að spila í ensku úrvalsdeildinni og svo koma þeir bara og banka hjá þér,“ segir Hólmar Örn og bætir við: „Það skiptir ekki máli hvað þú ert gamall, það er rosalega erfitt að segja nei. Maður bara sló til og lét á þetta reyna. Það heppnaðist ekki en maður getur varla horft til baka og verið annað en sáttur með það að maður gaf allt sem maður gat í þetta.“ Craig Bellamy er ekki allra en Hólmar ber honum vel söguna þrátt fyrir skapofsa Walesverjans. Er einhver sérstaklega minnisstæður samherji frá þessum tíma? „Craig Bellamy var hörkuspilari og karakter. Það var gaman að vera í kringum hann.“ Hann hlýtur nú eitthvað að hafa látið þig heyra eins og alla aðra. „Já, ég kallaði einhvern tímann rangstöðu á hann á æfingu. Hann hætti ekki að bögga mig á því og sagði að það er enginn 18 ára pjakkur sem lyftir upp hendinni, stoppar og kallar rangstöðu. Þetta var þannig lengi. En svo er hann líka þannig að þegar maður gerði eitthvað vel að þá var hann fljótur að koma til manns líka og hrósa. Bara mikill toppmaður.“ Sjá má viðtalið í heild í spilaranum efst og einnig hlusta á það í hlaðvarpsspilaranum eða undir Besta sætið á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Hólmar ræðir um West Ham tímann þegar rúmar sex mínútur eru liðnar af viðtalinu.
Enski boltinn West Ham United Íslenski boltinn Fótbolti Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Fleiri fréttir 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Sjá meira