Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Áróra L Davíðsdóttir skrifar 31. október 2026 12:48 Daði Freyr Ólafsson heldur út Hrekkjavökukortinu á slóðinni hallow.party. Facebook/Skjáskot Í kvöld fara skrímsli, uppvakningar og vampírur á stjá og bjóða grikk eða gott en hrekkjavökufögnuði má finna víða um allt land. Daði Freyr Ólafsson gagnafræðingur heldur úti gagnvirku hrekkjavökukorti sem auðveldar börnum og foreldrum þeirra að þefa uppi húsin sem bjóða upp á gotterí.
Íbúar merkja sjálfir húsin sín, íbúðir og verslanir á Hrekkjuvökukortið á síðunni hallow.party hyggist þeir bjóða upp á nammi. Þeir geta sömuleiðis bætt við nánari upplýsingum, svo sem „ofnæmisvænt“, „vegan“ og hakað við „nammið er búið“ klárist sælgætið sem boðið er upp á. Alls eru um 2.500 hús merkt inn á kortið í 62 póstnúmerum um land allt. „Markmiðið var að reyna að hafa þetta einfalt og öruggt og ókeypis, án auglýsinga, á íslensku, ensku og pólsku, og netföng manna sem eru að skrá sig inn birtast hvergi, og loforðið er að skráningarnar fari út eftir miðnætti í kvöld,“ segir Daði Freyr í samtali við Vísi. Viðbrögðin hafa verið óvænt en virkilega góð og Daði segir síðuna hafa vaxið ofboðslega hratt. „Það sem hefur komið á óvart er hvað þetta hefur vaxið rosalega hratt. Þetta fór út núna um síðustu helgi og síðan þá hefur bara verið stöðugur vöxtur og mest núna í gær.“ Daði segir hátíðina fara sístækkandi og spenningurinn sé mikill. „Maður finnur svona í kringum sig, svona í mínu nærumhverfi, að það sé mikill spenningur fyrir þessu. Og það er líka gaman að sjá hvernig þessi hátíð er að vaxa svona um allt land. Ég er búinn að vera að fylgjast með íbúagrúppunum út um allt land og það er greinilega mikill spenningur fyrir þessu og það eru alls konar hugmyndir og leikir í gangi hingað og þangað.“ Alls eru 2.701 hús á kortinu þegar þessi frétt er skrifuð. Eflaust bætist í hópinn þegar líður á daginn.Skjáskot/Hallow.party Í fyrra hafi víða sprottið upp álíka kort á hrekkjavöku fyrir einstaka hverfi. Þá hafi ábyrgðin alfarið verið á einni manneskju sem skráði hvert heimilsfang inn á kortið. „Þá tók maður eftir því að það þurfti til þess öfluga manneskju sem var dugleg í að taka á móti heimilisföngum inni í hverfagrúppu og setja svo handvirkt á kort. Það var svolítið mikið strit og erfitt að fylgjast með og þannig kviknaði þessi hugmynd í fyrra. Fyrir þessa hrekkjavöku að þá langaði mig rosalega mikið að smíða svona kort sem að væri auðvelt að merkja og fylgjast með stöðunni. Þetta er svolítið drifið áfram af samfélaginu og það er svo skemmtilegt. Svona samfélagsþjónusta,“ segir Daði Freyr. Hér má nálgast kortið.
Hrekkjavaka Börn og uppeldi Mest lesið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið