Yfirhalning hafi verið nauðsynleg Agnar Már Másson skrifar 1. nóvember 2026 20:12 Donald Tusk er forsætisráðherra Póllands. AP/Omar Havana Pólski forsætisráðherrann Donald Tusk hefur heitið því að stjórnlagadómstóll landsins muni starfa í samræmi við lög í kjölfar þess að forsetinn Karol Narwoci sakaði Tusk um að taka yfir dómstólinn. Tusk segir að yfirhalningin á dómstólum hafi verið nauðsynleg. „
Ég er viss um það að dómstóllinn muni starfa eins og honum er skylt. Einnig óháð mér og í samræmi við stjórnarskrána,“ sagði Tusk í sjónvarpsávarpi í gærkvöldi að því er Reuters greinir frá. Hann sagði að það hafi verið „engin önnur leið“ til að endurreisa réttarríkið. Á föstudag greindi Anna Korwin-Piotrowska, dómari við dómstólinn, frá því að Bogdan Święczkowski, forseti dómstólsins, og staðgengill hans yrðu leystir frá störfum í mánuð og að hún tæki sjálf við stjórn dómstólsins. Święczkowski hafnaði ákvörðun hennar og sakaði þá sem áttu í hlut um valdarán. Staðgengli hans var meinuð aðkoma að dómshúsinu. Mótmælendur biðja fyrir utan stjórnlagadómstólinn í Póllandi. Jafnframt greindi Waldemar Żurek dómsmálaráðherra frá því að hann hefði farið fram á að Święczkowski og Bartłomiej Sochański, varaforseti dómstólsins, yrðu sviptir friðhelgi gegn saksókn svo hægt væri að ákæra þá fyrir refsiverð brot. Nawrocki forseti var á leið til Senegal seint á föstudag en lét snúa við flugvél sinni eftir að fréttir bárust af brottvikningu Swieczkowskis. Nawrockis hélt að höfuðstöðvum dómstólsins í miðborg Varsjár. Stuðningsmenn fjarhægriflokksins Laga og réttlætis (PiS) efndu til mótmæla fyrir utan dómstólinn til að krefjast þess að Swieczkowski yrði aftur settur í embætti. Óeirðalögreglan var kölluð til og gætti dómstólsins en nokkur hundruð mótmælendur mættu á föstudagskvöld. Nawrocki sagði í yfirlýsingu sem aðstoðarmaður hans las upp fyrir utan dómstólinn í gær að almannaregla í Póllandi hefði verið „rofin“ og „stjórnarskrárbundin stofnun tekin yfir með valdi“. Jarosław Kaczyński, formaður PiS, tók þátt í mótmælunum og sakaði Tusk um að breyta Póllandi í „lögregluríki“. Áratugadeila á suðupunkti Miklar deilur hafa ríkt um dómstólinn milli Nawrockis, sem er bandamaður fjarhægrimanna í landinu, og Evrópusinnaðrar ríkisstjórnar Tusks. Dómstóllinn hefur á undanförnum árum svo gott sem legið í lamasessi þar sem hvorki Evrópusinnuð ríkisstjórn Tusks né forseti landsins hafa viljað samþykkja dómaratilnefningar hvor annars. Þegar íhaldsstjórn Laga og réttlætis tók við völdum árið 2015 skipaði hún fljótlega dómara til að ná meirihluta í stjórnlagadómstólnum sem hefur vald til að úrskurða um lögmæti lagasetningar. Mannréttindadómstóll Evrópu og Dómstóll Evrópusambandsins úrskurðuðu síðar að stjórnvöld hefðu kjörið þrjá dómara með ólögmætum hætti þar sem fyrra þing hafi verið búið að skipa í stöður þeirra. Í kjölfar þess að ríkisstjórn Tusks tók við árið 2023 hét hann því að endurreisa réttarríkið í landinu og endurskipuleggja dómstólinn. Nawrocki forseti, sem er bandamaður PiS-manna, hefur aftur á móti unnið gegn þeim tilraunum frá því hann var kjörinn forseti í fyrra. Frá mótmælunum í gær. „Tusk til Berlínar“ má lesa á skilti sem mótmælandi heldur á.AP Fyrr á árinu neitaði hann að taka eiðstaf af þremur af sex dómurum sem þingið tilnefndi. Swieczkowski, sem var vikið frá sem forseta dómstólsins, var sjálfur aðstoðardómsmálaráðherra í ríkisstjórn PiS en hann hefur neitað að veita dómurum sem kjörnir voru af núverandi þingmeirihluta sæti við dómstólinn. Í september skipaði þingið Maciej Berek, bandamann Tusk, í dómstólinn, sem vakti gagnrýni þar sem ríkisstjórnin var sögð með því grafa undan yfirlýstu markmiði sínu um að endurreisa valdtemprun í landinu.
Pólland Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fleiri fréttir Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Sjá meira