Lífið

Hættur með fimm­tíu árum yngri kærustunni

Bjarki Sigurðsson skrifar
Bill Belichick og Jordon Hudson í febrúar á síðasta ári.
Bill Belichick og Jordon Hudson í febrúar á síðasta ári. Getty/Michael Owens

Bill Belichick, einn sigursælasti þjálfari sögunnar í amerískum fótbolta, og Jordon Hudson eru hætt saman. Aldursmunur parsins vakti ávallt mikla athygli en Belichick er 74 ára og Hudson 25 ára.

Belichick og Hudson eru sögð hafa hætt saman á síðasta ári eftir tveggja ára samband. Þau hafa hins vegar haldið sambandsslitunum leyndum fyrir almenningi og hafa þau sést saman ítrekað síðustu mánuði. Page Six greinir frá því að það sé vegna þess að þau hafi haldið áfram viðskiptalegu sambandi. Óvíst er hvað Hudson gerir nákvæmlega en hún virðist vera einhverskonar aðstoðarmaður Belichick. 

Þau kynntust snemma árið 2021 þegar Belichick var 68 ára og Hudson nítján ára. Belichick var áður giftur Debby Clarke Belichick frá 1977 til 2006 og á með henni þrjú börn. Skömmu eftir skilnaðinn var greint frá því að hann væri í sambandi með Lindu Holliday en þau hættu saman 2023, skömmu áður en samband hans við Hudson hófst. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.