Segir komur leiðangursskipanna skipta sköpum
Norðurþing hefur með sérstöku markaðsátaki, sem hefur samfélagsábyrgð og umhverfisvernd að leiðarljósi, náð að fjölga umtalsvert komum minni skemmtiferðaskipa. Markaðsstjóri hafnanna í Norðurþingi segir komur leiðangursskipanna skipta sköpum fyrir samfélögin vítt og breitt um landið.