Tillögur sérfræðingahóps um afnám verðtryggingar.
Helga Hlín Hákonardóttir hdl. er ein þeirra sérfræðinga sem skipaðir voru af forsætisráðherra til að útfæra afnám verðtryggingar nýrra neytendalána. Sérfræðingahópurinn kynnti tillögur sínar á blaðamannafundi í dag. Vísir ræddi við Helgu um tillögur meirihluta sérfræðingahópsins, en Vilhjálmur Birgisson, annar meðlimur hópsins skilaði séráliti.