
Einföld breyting sem skilar sér beint í vasa fólks
Fólk sem fær tekjur af eignum sínum, svo sem leigusalar og hlutabréfaeigendur, fær meiri skattaafslátt en þau okkar sem eingöngu hafa tekjur af laununum okkar.
Fréttir af löggjafarþingi Íslendinga, þingmönnum og fleiri tengdum málum.
Fólk sem fær tekjur af eignum sínum, svo sem leigusalar og hlutabréfaeigendur, fær meiri skattaafslátt en þau okkar sem eingöngu hafa tekjur af laununum okkar.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist 25,6 prósent í nýrri könnun MMR, en var 28,7 prósent í þeirri síðustu.
Samfylkingin mun í vikunni leggja fram þingsályktunartillögu með úrræðum gegn atvinnuleysi. Formaður flokksins segir aðgerðir ríkisstjórnarinnar kjarklausar.
Þingflokksformaður Vinstri Grænna segist ánægð með ákvörðun Kolbeins Óttarssonar Proppé, þingmanns VG, um að hætta við framboð vegna hegðunar gagnvart konum. Ákvörðunin, sem komið hafi á óvart, sé alfarið Kolbeins. Hún hafi fyrst fengið veður af kvörtunum vegna hans í gær.
Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna, hefur ákveðið að draga framboð sitt til Alþingis til baka. Í Facebook-færslu sem hann birti fyrir skömmu setur hann ákvörðunina í samhengi við MeToo-umræðu síðustu daga.
Frumvörp fjármála- og efnahagsráðherra sem fela í sér ýmsar efnahagsaðgerðir vegna faraldursins voru samþykkt á Alþingi í dag.
Þingmaður Pírata segir galið að hóta þeim sem selja efni á Only Fans eignaupptöku og refsingu. Hann telur að afnema eigi ákvæði um bann við klámi úr hegningarlögum. Lögregla skoðar nú mál þeirra sem selja efni á síðunni.
Ásmundur Friðriksson hefur lýst yfir þeim vilja sínum að kannað verði sérstaklega hvort Alþingi Íslendinga sé ekki vímuefnalaus vinnustaður og sýni þannig gott fordæmi.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra segir tíma til kominn að gerð verði grundvallarendurskoðun á kosningalöggjöfinni og kjördæmaskipan landsins. Hann segir óheppilegt að jöfnunarþingsæti kallist ekki á við fjölda flokka á þingi.
Nú hefur 2.500 sumarstörfum fyrir námsmenn verið úthlutað hjá Vinnumálastofnun en þau eru hluti af átakinu Hefjum störf, sem Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra hrundi af stað. Átakið svipar til þess sem gert var síðasta sumar en átakið í ár nær enn víðar.
Þingmenn fordæmdu nauðgunarmenningu og sögðu réttarkerfið hafa brugðist þolendum kynferðisofbeldis í umræðum um störf þingsins í dag.
Formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis telur að samstaða náist um afgreiðslu fjölmiðlafrumvarps menntamálaráðherra sem tekið var af dagskrá þingfundar í gær. Hann reikni með að frumvarpið verði að lögum á yfirstandandi þingi en álitaefni séu um gildistíma þess.
Þingmenn hafa áhyggjur af því að frestur heilbrigðisráðherra á skilum á skýrslu um skimanir fyrir krabbameini í leghálsi leiði til þess að ekki verði hægt að ræða hana efnislega fyrir þinglok.
Þingmenn Miðflokksins hafa lagt fram þingsályktunartillögu um viðspyrnu við vímuefnavanda og fíkn. Málið má kalla andsvar þeirra við frumvarpi heilbrigðisráðherra um afglæpavæðingu neysluskammta sem flokkurinn hefur verið mótfallinn.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tókust nokkuð harkalega á um auðlindaákvæðið á Alþingi í dag með frammíköllum undir ræðum hvorrar annarrar.
Haraldur Briem fyrrverandi sóttvarnalæknir hefur fallist á beiðni heilbrigðisráðherra um að vinna skýrslu til Alþingis um breytingar á skipulagi og framkvæmd skimunar fyrir krabbameini í leghálsi hér á landi.
Prófessor í stjórnmálafræði segir óboðlegt að fresta ráðstöfunum til að jafna þingsæti á milli flokka fram yfir kosningar. Forseti Alþingis segir svigrúm til þess að fjölga jöfnunarsætum en að málið sé bæði pólitískt og viðkvæmt.
Fjöldaflokkakerfi virðist komið til að vera í íslenskum stjórnmálum og útlit fyrir að átta flokkar nái fólki á þing í alþingiskosningunum hinn 25. september. Jöfnun þingsæta milli smærri og stærri flokka í samræmi við fylgi þeirra raskast hins vegar meira eftir því sem flokkarnir eru fleiri. Heimir Már Pétursson fréttamaður fær þá Dr. Ólaf Þ. Harðarson stjórnmálafræði prófessor og Steingrím J. Sigfússon forseta Alþingis til sín í Víglínunni á Stöð 2 í dag.
Fyrir Alþingi liggur frumvarp ríkisstjórnarinnar, samið í heilbrigðisráðuneytinu, um að ákvæði laga um ávana- og fíkniefni verði breytt á þann hátt að kaup og varsla á takmörkuðu magni ávana- og fíkniefna, svokölluðum neysluskömmtum, verði heimiluð.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur greint frá því að hún sækist eftir 1. sæti í komandi prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík fyrir komandi Alþingiskosningar.
Meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar hefur skilað áliti sínu á fjölmiðlafrumvarpi menntamálaráðherra. Lagt er til að umsóknarfrestur verði til 31. maí og lögin taki þegar gildi.
Nú þegar Ísland skilar af sér formennsku í Norðurskautsráðinu — mikilvægasta vettvangi samstarfs og samráðs um málefni Norðurslóða, markar Alþingi stefnu í málefnum svæðisins.
Fjármálaráðherra segir Íslendinga hafa brugðist hælisleitendum með allt of löngum málsmeðferðartíma umsókna þeirra. Hann styðjji ekki stefnu sem reisi hæstu hindranir í vegi þeirra sem leiti hælis á Íslandi.
Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn hafa nú allir skilað uppgjöri fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins. Samanlagður hagnaður þeirra er 17,2 milljarðar króna samanborið við sjö milljarða tap á sama tíma í fyrra. Landsbankinn skilar mestum hagnaði eða 7,6 milljörðum, Arion banki 6 milljörðum og Íslandsbanki 3,6 milljörðum króna.
Svo hljóðar yfirskrift leiðara í því ágæta málgagni Morgunblaðinu. Þar er kvartað yfir því að Viðreisn haldi á lofti kröfu sinnu um að þjóðin ákveði framtíðarstefnu í Evrópumálum.
Una María Óskarsdóttir, varaþingmaður Gunnars Braga Sveinssonar, sækist eftir 1.-2. sæti á framboðslita Miðflokksins í Kraganum fyrir komandi Alþingiskosningar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Unu.
Sérfræðingar sem komu fyrir velferðarnefnd í morgun lýstu yfir áhyggjum af stöðu skimana fyrir leghálskrabbameini, að sögn nefndarformanns. Hún segir breytingar á þjónustunni klúður sem stefni heilsu kvenna í hættu. Þingmenn ráku í dag á eftir skýrslu heilbrigðisráðherra um efnið.
Störf aðstoðarmanna dómara í Hæstarétti hafa ekki verið auglýst frá því að lög um dómstóla tóku gildi í ársbyrjun 2018. Störf aðstoðarmanna í Landsrétti voru einungis auglýst við stofnun réttarins.
Þingmenn furðuðu sig á seinagangi við gerð skýrslu um flutning á skimunum fyrir leghálskrabbameini kvenna á Alþingi í dag.
Formaður safnaráðs óskar þess að nefndir Alþingis hafi frumkvæði að svokallaðri safnagjöf sem væri sambærileg ferðagjöf stjórnvalda.