Robert Tchenguiz skuldaði mest - 20 stærstu Robert Tchenguiz er sá einstaklingur sem skuldaði íslensku bönkunum mest samanlagt í lok ársins 2007, eftir því sem fram kemur í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Nefndin birtir lista yfir tíu stærstu skuldaran Viðskipti innlent 12. apríl 2010 13:30
Gleðispillar úr innri endurskoðun og fjölgun í skemmtinefndum Berlegt áhugaleysi var innan bankanna á vönduðum vinnubrögðum og virðingaleysi fyrir lögum og reglum ríkti þar. Þetta er meðal niðurstaðna sérfræðinga sem fóru yfir siðferði og starfshætti í tengslum við fall íslensku bankanna. Innlent 12. apríl 2010 13:27
Ingibjörg forspá um hrunið Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði á þingflokksfundi Samfylkingarinnar í febrúar 2008 að ekki mætti tala hátt um ástandið á fjármálamörkuðum. Bankarnir myndu lenda í vandræðum eftir um níu mánuði. Innlent 12. apríl 2010 13:25
Árni Mathiesen: Þeir lugu allir en Björgólfur Thor var verstur Björgólfur Thor Björgólfsson hélt röngum upplýsingum að stjórnvöldum um stöðu Landsbankans helgina fyrir hrun. Þetta kemur fram í skýrslutöku Rannsóknarnefndar Alþingis yfir Árna M. Mathiesen. Innlent 12. apríl 2010 13:25
Krónuhrun þegar Kaupþing ryksugaði gjaldeyrismarkaðinn „Þeir ryksuguðu gjaldeyrismarkaðinn og svo þegar þeir eru búnir að því þá hætta þeir að kvóta inn á swap-markaðinn sem gerir það að verkum að í mars 2008 bara hrynur krónan og við stóðum náttúrulega algjörlega ráðþrota í málinu því að þegar þetta gerist fara CDS-in (skuldatryggingarálagið, innsk. blm.) á bankann upp og það eru komnar alls konar áhyggjur af þeim þannig að erlendir aðilar sem eiga krónur þeir bara fara í panik að selja." Viðskipti innlent 12. apríl 2010 13:13
FME þjakað af reynsluleysi Afleiðing þess að Fjármálaeftirlitið hafði of litlar tekjur, en Vísir greindi frá því fyrr í dag að hagsmunaðilar unnu markvisst gegn styrkingu FME, var að fjölgun starfsmanna hélt ekki í við mikinn vöxt fjármálakerfisins og aukin verkefni sem því voru samfara. Viðskipti innlent 12. apríl 2010 13:09
Glærusýning Rannsóknarnefndarinnar Blaðamannafundur um skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið fór fram í Iðnó fyrr í dag. Þar studdust nefndarmenn við glærur sem hægt er að skoða hér fyrir neðan. Innlent 12. apríl 2010 13:08
Ritstjóri Pressunnar í tímabundið leyfi Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Pressunnar, er farinn í tímabundið leyfi en í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis kemur fram að hann hafi á tímabili skuldað 563 milljónir kr. í Kaupþingi. Tveir aðrir fjölmiðlamenn skulduðu yfir 100 milljónir en það voru Óli Björn Kárason og Styrmir Gunnarsson. Innlent 12. apríl 2010 12:54
Forsetinn gekk mjög langt - setja þarf siðareglur um forsetaembættið Forsetaembættið var óspart nýtt í þágu einstakra aðila til að koma á tengslum víða um lönd. Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis segir að þegar lýðræðislega kjörinn forseti lands talar á opinberum vettvangi sem fulltrúi þjóðar sinnar er jafnan hlustað og því skiptir máli hvað hann segir og við hverja hann talar. „Þar liggur ábyrgð forseta Íslands.“ Ljóst sé að Ólafur Ragnar Grímsson hafi gengið mjög langt í þjónustu við einstök fyrirtæki og einstaklinga sem stýrðu þeim. Innlent 12. apríl 2010 12:50
Enginn gekkst við ábyrgð Enginn þeirra sem Rannsóknarnefnd Alþingis telur að hafi gerst sekir um vanrækslu í starfi gekkst við ábyrgð sinni í andsvörum sínum til nefndarinnar. Innlent 12. apríl 2010 12:50
Stjórnarformaður FME var beinlínis notaður til þess að kynna Icesave Rannsóknarnefnd Alþingi segir í skýrslu sinni að stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins árið 2008, Jón Sigurðsson, hafi verið notaður beinlínis í þeim tilgangi að kynna Icesave-reikninga Landsbankans á opinberum vettvangi. Viðskipti innlent 12. apríl 2010 12:46
Landsbankinn handstýrði virði Iceland Group Landsbankinn hækkaði verð á hlutabréfum bresku matvöruverslunarinnar Iceland Food Group um sextíu prósent á sama tíma og verð lækkaði á sambærilegum fyrirtækjum. Hækkunin jók bókfærðan hagnað bankans á fyrri helmingi 2008 um átta milljarða króna. Viðskipti innlent 12. apríl 2010 12:44
Stjórnendur bankanna brutu lög Stjórnir og framkvæmdastjórar þeirra fjármálafyrirtækja sem féllu í hruninu fylgdu ekki í öllum tilvikum reglum um starfsemi bankanna og brutu starfsskyldur sínar við stjórnun og eftirlit með refsiverðum hætti. Rannsóknarnefnd Alþingis mælist til þess að saksóknari taki málið til rannsóknar. Viðskipti innlent 12. apríl 2010 12:41
Kjallari Seðlabankans fullur af skuldabréfum á brettum Síðasta mánuðinn fyrir hrun bankanna árið 2008 var kjallari Seðlabankans orðinn fullur af brettum með skuldabréfum frá stóru bönkunum þremur og öðrum fjármálastofnunum. Viðskipti innlent 12. apríl 2010 12:41
Hagsmunaðilar unnu markvisst gegn því að auka rekstrafé FME Stjórnendur Fjármálaeftirlitsins lýsa þeim viðhorfum sínum í skýrslu rannsóknanefndarinnar að hagsmunaðilar hafi á fyrstu sex árum FME unnið markvisst gegn því að rekstrafé stofnunarinnar væri aukið og álögð eftirlitsgjöld á eftirlitsskylda aðila hækkuð. Viðskipti innlent 12. apríl 2010 12:31
Lán veitt í gegnum Lúxemborg til að draga úr gagnsæi Rannsóknarnefnd Alþingis telur að Kaupþing í Lúxemborg hafi að miklu leyti fjármagnað sömu viðskiptavini og móðurfélag bankans á Íslandi. Í skýrslunni segir að sérstaka athygli veki að fimm stærstu áhættuskuldbindingar bankans varði stóra eigendur hans. Viðskipti innlent 12. apríl 2010 12:29
Geir var skíthræddur við Davíð „Þú getur ekki gert mér þetta. Ég get ekki farið þarna upp og sagt þetta við Davíð," sagði Geir H. Haarde við Össur Skarphéðinsson eftir að sá síðarnefndi hafði þvertekið fyrir að Davíð Oddsson færi fyrir sérstakri neyðarstjórn vegna þeirra aðgerða sem grípa þyrfti til í október 2008 líkt og Geir lagði til. Innlent 12. apríl 2010 12:26
Kaupþing bjargaði Baugi Tvö félög tengd Bónusfjölskyldunni, Baugur Group og Gaumur, voru komin í fjárhagsvanda snemma árs 2008 og lá fyrir að Baugur gæti ekki staðið við skuldbindingar sínar um vorið án aðstoðar. Kaupþing lánaði því öðru félagi fjölskyldunnar, 1998, ehf, 30,6 milljarða króna til að kaupa Haga úr úr Baugi ásamt því að kaupa tvö félög af Baugi og tengdum aðilum. Viðskipti innlent 12. apríl 2010 12:25
SUS: Vissu ekki um tugmilljónastyrk Styrkir upp á tæpar 40 milljónir frá Landsbankum og Kaupþingi voru lagðir inn á reikning Sambands ungra Sjálfstæðismanna. Tveir fyrrverandi formenn hreyfingarinnar segjast koma af fjöllum. Félagið hafi verið rekið fyrir klink. Innlent 12. apríl 2010 12:23
Þorgerður Katrín stödd erlendis Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, er stödd erlendis þessa stundina, samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu Sjálfstæðisflokksins. Innlent 12. apríl 2010 12:17
Össur vildi stjórnarslit vegna Glitnismálsins Össur Skarphéðinsson vildi sprengja ríkisstjórnina strax í kjölfar yfirtökunnar á Glitni. Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Innlent 12. apríl 2010 12:12
Glitnir lánaði Baugi og FL Group 80 prósent af eiginfé Útlán Glitnis til Baugur Group og tengdra aðila, sér í lagi FL Group, voru veruleg. Raunar voru allir stóru bankarnir þrír sem og Straumur-Burðarás með veruleg útlán til þessa hóps. Viðskipti innlent 12. apríl 2010 12:12
Segja að Seðlabankinn hafi ekki kannað Glitni fyrir yfirtöku Rannsóknarnefnd Alþingis gerir athugasemd við það að Seðlabanki Íslands hafi ekki kannað aðstæður nægjanlega vel áður en ríkið keypti 75% hlut í Glitni í lok september 2008. Innlent 12. apríl 2010 12:09
Óeðlileg fyrirgreiðsla til stærstu eigenda Rannsóknarnefnd Alþingis telur að eigendur allra stóru bankanna þriggja og Straums-Burðaráss hafi fengið óeðlilega greiðan aðgang að lánsfé hjá þessum bönkum að því er virðist í krafti eignarhalds síns. Viðskipti innlent 12. apríl 2010 12:08
Uppgjörið fer fram á mörgum vígstöðvum Sérstökum saksóknara verður falið að rannsaka alla stjórnarmenn og framkvæmdastjóra bankanna. Enn fremur á hann að rannsaka fall krónunnar, en þar er grunur um markaðsmisnotkun, og margt fleira. Innlent 12. apríl 2010 12:08
Fjármálaeftirlitið réði ekki við ofvöxt bankanna Rannsóknarnefnd Alþingis segir að að vöxtur bankanna hafi verið svo mikill og áhættusamur að hann hafi ekki samræmst langtímahagsmunum trausts banka. Hins vegar hafi verið sterkir hvatar til vaxtar innan bankanna. Viðskipti innlent 12. apríl 2010 12:06
Geir vildi að Davíð færi fyrir neyðarstjórn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, vildi að Davíð Oddsson færi fyrir sérstakri neyðarstjórn vegna þeirra aðgerða sem grípa þyrfti til í október 2008. Þessu hafnaði Össur Skarphéðinsson og þá bað Geir Össur um að gera sér þetta ekki. Innlent 12. apríl 2010 12:06
Vantreystu Davíð - Aðgerðir ríkisstjórnar ómarkvissar Tortryggni og samstarfserfiðleikar settu mark sitt á samskipti Davíðs Oddssonar, formanns stjórnar Seðlabanka Íslands, og flestra ráðherra Samfylkingarinnar. Fyrri stjórnmálastörf Davíðs Oddssonar urð til þess að hafa áhrif á það hvernig ráðherrar brugðust við þeim upplýsingum sem Davíð lét þeim í té í embættisfærslu sinni sem formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands. Þetta er meðal þess sem kemur fram í meginniðurstöðum í skýrslu Rannsóknarnefnd Alþingis. Innlent 12. apríl 2010 11:48
Bjarni Ben: Í golfferð með Glitnisþotu Fram kemur í rannsóknarskýrslunni að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hafi þegið far með einkaþotu Glitnis til Skotlands. Ferðin var farin árið 2007 í þeim tilgangi að spila golf. Innlent 12. apríl 2010 11:44
Baugur og tengdir aðilar fengu hátt í þúsund milljarða Baugur Group stendur upp úr þegar kemur að stórum áhættulánum bankanna á árunum fyrir hrun. Þegar mest lét skuldaði Baugur og tengd félög hátt í þúsund milljarða króna hjá stóru bönkunum þremur miðað við gengi dagsins í dag. Viðskipti innlent 12. apríl 2010 11:43