Blikastúlkur hampa titlinum Keppni í Landsbankadeild kvenna í fótbolta lauk í dag með með heilli umferð. FH þarf að leika aukaleiki um sæti í Landsbankadeild kvenna á næsta ári, heima og heiman, við Þór/KA/KS sem hafnaði í 2. sæti í 1. deild. Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu FH í lokaumferðinni í dag, 5-0 og fengu bikarinn afhentan á Kópavogselli nú síðdegis. Sport 4. september 2005 00:01
Kvennalið FH á leið í 1. deild? Nú er hálfleikur í leikjunum í lokaumferð Landsbankadeldar kvenna í fótbolta en Íslandsmeistarabikarinn verður afhentur Breiðabliksstúlkum á Kópavogsvelli eftir leikinn gegn FH. Staðan þar er 3-0 fyrir Breiðablik þannig að flest bendir til þess að FH þurfi að leika umspil til þess að halda sæti sínu í deildinni. ÍA er þegar fallið í 1. deild. Sport 4. september 2005 00:01
Breiðablik Íslandsmeistari Breiðablik varð í kvöld Íslandsmeistari í efstu deild kvenna er liðið sigraði ÍA 5-1 á Akranesi í kvöld. Að loknum 13 leikjum hefur Breiðablik sigrað 12 leiki og gert eitt jafntefli. Breiðablik varð síðast Íslandsmeistari árið 2001. Valur sem hins vegar hefur skorað mest, sigraði Stjörnuna 2-0 í Garðabæ. Sport 31. ágúst 2005 00:01
Valsstúlkur sigruðu ÍBV Valur sigraði ÍBV í Landsbankadeild kvenna 3-1. Olga Færseth kom ÍBV yfir en þær Laufey Ólafsdóttir,Guðný Óðinsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir svöruðu fyrir heimastúlkur. Valur er sem fyrr í öðru sæti á eftir Breiðablik. Sport 17. ágúst 2005 00:01
Valsstúlkur til Svíþjóðar Ákveðið hefur verið að riðill Vals í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða kvenna í knattspyrnu verði leikinn í Svíþjóð. Auk Vals eru í riðlinum í Djurgården/Älvsjö, sem eru mótshaldarar, ZFK Masinac-Classic Nis og Alma KTZH. Sport 16. ágúst 2005 00:01
ÍA fallið Skagastúlkur eru fallnar úr Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu eftir 2:2 jafntefli gegn FH í Kaplakrika í Hafnarfirði í kvöld. Þetta var fyrsta stig ÍA í deildinni en FH er með 10 stig, stigi meira en Stjarnan sem er í næst neðsta sæti. Mörk FH gerðu Valdís Rögnvaldsdóttir og Sif Atladóttir en þær Thelma Gylfadóttir og Anna Þorsteinsdóttir..... Sport 16. ágúst 2005 00:01
Breiðablik sigraði Stjörnuna Breiðablik sigraði Stjörnuna 3-1 í Landsbankadeild kvenna í kvöld og eru því komnar með fjögurra stiga forskot á Val á toppi deildarinnar. Mörk Breiðabliks gerðu þær Ólína Viðarsdóttir, Greta Mjöll Samúelsdóttir og Fanndís Friðriksdóttir. Mark Stjörnunnar gerði Guðríður Hannesdóttir. Sport 15. ágúst 2005 00:01
ÍBV vann Keflavík í kvennaboltanum Einn leikur var á dagskrá í Landsbankadeild kvenna í gærkvöldi þegar ÍBV vann nauman 4-3 sigur á Keflavík. Leikurinn átti upphaflega að fara fram á þriðjudag en honum var frestað og var leikið á Hásteinsvelli í gærkvöldi. Sport 11. ágúst 2005 00:01
Jörundur búinn að tilkynna hópinn Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari A landsliðs kvenna, hefur valið hópinn fyrir leikina gegn Hvíta-Rússlandi og Svíþjóð í undankeppni HM. Hvít-Rússar leika hér á landi 21. ágúst en íslenska liðið heldur síðan til Svíþjóðar og leikur við heimamenn á Nobelstadion í Karlskoga 28. ágúst. Sport 11. ágúst 2005 00:01
Blikastúlkur tapa fyrstu stigunum Eftir 10 sigurleiki í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu kom að því að Breiðablik tapaði stigum. KR-ingar bundu enda á sigurgöngu Breiðabliks í gærkvöldi þegar liðin gerðu markalaust jafntefli. Landsliðsmarkvörðurinn Þóra B. Helgadóttir átti enn einn stórleikinn og hún kom í veg fyrir sigur KR. Sport 10. ágúst 2005 00:01
Blikastúlkur enn með fullt hús Breiðablik heldur áfram sigurgöngu sinni með fullt hús stiga í Landsbankadeild kvenna en þær sigruðu ÍBV, 3-1 á Kópavogsvelli í kvöld. Guðlaug Jónsdóttir skoraði þrennu fyrir Breiðablik en Olga Færseth yrir skoraði mark ÍBV. Þrír leikir fóru fram í deildinni í kvöld. Sport 4. ágúst 2005 00:01
Margrét Lára með þrennu fyrir Val Valur vann Keflavík í Landsbankadeild kvenna í gærkvöldi 4-1. Valsstúlkur tylltu sér með sigrinum á topp deildarinnar með 27 stig, jafnmörg og Breiðablik sem reyndar á tvo leiki til góða og getur því endurheimt 6 stiga forskot sitt. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði þrennu fyrir Val. Þrír leikir eru á dagskrá deildarinnar í kvöld. Sport 4. ágúst 2005 00:01
Senn lokað fyrir félagaskipti Frá og með miðnætti næsta sunnudagskvöld verður íslenskum knattspyrnufélögum ekki lengur heimilt að fá til sín nýja leikmenn í sumar en þá lokar félagaskiptaglugga KSÍ til fimmtánda október. Það má því búast við erli í félagaskiptunum fyrir og um helgina enda lokaspretturinn framundan á Íslandsmótinu. Sport 27. júlí 2005 00:01
Fjölnir burstaði ÍR Einn leikur var á dagskrá í 1. deild kvenna í gærkvöldi. Efsta liðið Fjölnir burstaði ÍR með fimm mörkum gegn engu. Sport 26. júlí 2005 00:01
KS sigraði -staðan í öðrum leikjum Einum leik er lokið í 1. deild karla, KS sigraði Þór 1-0 á Siglufirði. Staðan í öðrum leikjum kvöldsins er eftirfarandi.... Sport 15. júlí 2005 00:01
Búið að velja U21 kvenna Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari U21 landsliðs kvennaí knatspyrnu, hefur valið 18 manna hóp til þátttöku á Opna Norðurlandamótinu, sem fram fer í Svíþjóð síðar í mánuðinum. Sport 13. júlí 2005 00:01
A landslið kvenna gegn Bandaríkjun Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari A landsliðs kvenna, hefur valið íslenska hópinn fyrir vináttulandsleik gegn Bandaríkjunum, en liðin mætast á Home Depot Center vellinum í Los Angeles 24. júlí næstkomandi. Sport 13. júlí 2005 00:01
Breiðablik,KR og Fjölnir áfram Breiðablik, KR og Fjönir eru komin í undanúrslit Visa Bikar kvenna eftir sigra í kvöld. Breiðablik sigraði Keflavík 3-1. Fyrstu deildarlið Fjölnis sigraði Skagastúlkur 4-1 og loks sigraði KR lið Stjörnunnar 3-1 í Garðabæ. Auk þessara þriggja liða er Valur einnig komið í undanúrlit. Sport 12. júlí 2005 00:01
Margrét Lára með fimm mörk Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði fimm mörk þegar lið hennar Valur kjöldró ÍA 9-0 í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í gærkvöld. Dóra María Lárusdóttir, Rakel Logadóttir, Laufey Ólafsdóttir og Málfríður Sigurðardóttir skoruðu hin mörkin. Valur er í öðru sæti með 21 stig, þremur minna en Breiðablik sem á leik til góða. Skagastúlkur eru neðstar án stiga. Sport 9. júlí 2005 00:01
Margrét Lára skoraði fimm mörk Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði fimm mörk fyrir Val sem vann ÍA 0-9 upp á Akranesi í kvöld. Margrét Lára skoraði tvö fyrstu mörk sín úr vítaspyrnum í fyrri hálfleik en skoraði síðan þrjú mörk til viðbótar utan af velli. Sport 8. júlí 2005 00:01
Landsbankadeildin í kvöld ÍA og Valur eigast við í Landsbankadeild kvenna í fótbolta og hefst leikurinn klukkan 20 á Akranesvelli. Þá mætast Haukar og KA á sama tíma í fyrstu deild karla. Sport 8. júlí 2005 00:01
Landsbankadeild kvenna 5. júlí Þrír leikir verða í Landsbankadeild kvenna í kvöld. Stórleikurinn er viðureign efstu liðanna Breiðabliks og Vals sem mætast á heimavelli Vals að Hlíðarenda. Breiðablik hefur unnið alla 7 leikina í deildinni í sumar. Sport 5. júlí 2005 00:01
Blikastúlkur lögðu Val í toppslag Íslandsmeistarar Vals töpuðu fyrir toppliði Breiðabliks í stórleik kvöldsins í Landsbankadeild kvenna en lokatölur urðu 1-2 á Hlíðarenda. Gréta Mjöll Samúelsdóttir skoraði sigurmark Kópavogsstúlkna á lokamínútunni. Sport 5. júlí 2005 00:01
6 marka sigur Keflvíkinga Keflavík lagði FH 0-6 í fyrsta leik 8. umferðar Landsbankadeildar kvenna í kvöld. Vesna Smiljkovic og Nína Ósk Kristinsdóttir skoruðu tvö mörk hvor en Ágústa Jóna Heiðdal og Hrefna Magnea Guðmundsdóttir eitt hvor. Nýliðar Keflavíkur eru nú með 12 stig en ennþá í 5. sæti með jafnmörg stig og ÍBV og KR. Sport 4. júlí 2005 00:01
Breiðablikskonur ósigrandi Breiðablik er enn ósigrað í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu eftir stórsigur á FH 7-0 í Hafnarfirði í gærkvöldi. Gréta Mjöll Samúelsdóttir skoraði 3 mörk, Erna Sigurðardóttir 2 og þær Ólína Viðarsdóttir og Casey McCluskey sitt markið hvor. Sport 29. júní 2005 00:01
Valsstúlkur lögðu KR naumlega Valsstúlkur lögðu KR naumlega, 1-2 í Landsbankadeildar kvenna í kvöld en sigurmarkið kom skömmu fyrir leikslok. Breiðabliksstúlkur unnu stórsigur á FH, 0-7 á útivelli í kvöld en þrír leikir fóru fram í 7. umferð. Sport 28. júní 2005 00:01
Keflavík skellti ÍA á útivelli Keflavík skellti ÍA, 5-0, á útivelli í Landsbankadeild kvenna í fótbolta í gærkvöldi. Ágústa Jóna Heiðdal, Lilja Íris Guðmundsdóttir, Hrefna Guðmundsdóttir, Nína Ósk Kristinsdóttir og Vesna Smiljkovic skoruðu mörkin. Sport 28. júní 2005 00:01
ÍBV stúlkur lögðu Stjörnuna Einum leik er lokið í Landsbankadeild kvenna en þrír leikir eru á dagskrá í kvöld. ÍBV lagði Stjörnuna á útivelli, 2-3 og eru Eyjastúlkur komnar með 12 stig í 4. sæti. Enn er markalaust í stórleik KR og Vals vestur í bæ en Breiðablik er 4-0 yfir gegn FH á útivelli. Sport 28. júní 2005 00:01
Leikir kvöldsins Þrír leikir verða á dagskrá í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í kvöld, þar á meðal stórleikur KR og Vals í Frostaskjóli klukkan 20. Einn leikur er á dagskrá í fystu deild karla. Sport 28. júní 2005 00:01
Tveir leikir hjá konunum í kvöld Tveir leikir eru í Landsbankadeild kvenna í fótbolta í kvöld. Stjarnan tekur á móti ÍBV klukkan 19 og klukkutíma síðar hefst viðureign ÍA og Keflavíkur á Akranesvelli. Sport 27. júní 2005 00:01
Uppgjörið: Króatía - Slóvenía 29-26 | Dagur stýrði Króötum til sigurs og sendi strákana okkar heim Handbolti