
KR í lykilstöðu eftir sigur í Keflavík
KR er komið í þægilega 2-0 forystu í undanúrslitaeinvígi sínu við Keflavík í Iceland Express deildinni eftir 75-88 sigur í Keflavík í kvöld.
KR er komið í þægilega 2-0 forystu í undanúrslitaeinvígi sínu við Keflavík í Iceland Express deildinni eftir 75-88 sigur í Keflavík í kvöld.
KR-ingar hafa ekki unnuð leik í Keflavík í úrslitakeppni úrvalsdeildar karla í átján ár eða síðan liðið vann 71-84 í fyrsta leik undanúrslitaeinvígisins árið 1991.
Keflvíkingar hafa fengið góð tíðindi fyrir annan leikinn gegn KR í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar í kvöld.
Páll Axel Vilbergsson, leikmaður Grindavíkur, fékk góðar fréttir hjá læknum í morgun þegar hann fór í skoðun vegna hnémeiðsla sem héldu honum frá leik Grindavíkur og Snæfells í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar í körfubolta í gærkvöld.
"Það verður vonandi annar bragur á okkur í næsta leik. Ég vona að þetta sé það sem við þurftum til að vakna. Ef við spilum aftur svona á miðvikudaginn, þá slátra þeir okkur," sagði Hlynur Bæringsson, spilandi þjálfari Snæfells, eftir að lið hans var kjöldregið 110-82 í Grindavík í kvöld.
Grindvíkingar hafa tekið 1-0 forystu í undanúrslitaeinvígi sínu við Snæfell í Iceland Express deildinni eftir öruggan 110-82 sigur á heimavelli sínum í kvöld.
Það mun mikið mæða á þjálfurum Snæfells, Hlyni Bæringssyni og Sigurði Þorvaldssyni, í kvöld þegar Grindavík og Snæfell mætast í kvöld í fyrsta leik liðanna í undanúrslitaeinvígi þeirra í Iceland Express deild karla. Leikurinn fer fram í Grindavík, hefst klukkan 19.15 og verður í beinni sjónvarpsútsendingu á Stöð 2 Sport.
Grindavík og Snæfell mætast í kvöld í fyrsta leik liðanna í undanúrslitaeinvígi þeirra í Iceland Express deild karla. Leikurinn fer fram í Grindavík, hefst klukkan 19.15 og verður í beinni sjónvarpsútsendingu á Stöð 2 Sport.
Þrátt fyrir að lykilleikmenn Grindavíkur hafi ekki spilað með sama liðinu í fyrra eiga þeir það allir sameiginlegt að hafa mætt Snæfelli í úrslitakeppninni í fyrra.
Körfuknattleikslið Grindavíkur hefur orðið fyrir blóðtöku á versta mögulega tíma. Páll Axel Vilbergsson er meiddur á hné og getur ekki spilað með liðinu í fyrsta leiknum gegn Snæfelli í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar í Grindavík í kvöld.
"Þetta var flottur leikur hjá okkur, sérstaklega varnarleikurinn," sagði Jón Arnór Stefánsson hjá KR eftir að hans menn tóku Keflavík í kennslustund 102-74 í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar í kvöld.
KR hefur tekið 1-0 forystu í undanúrslitaeinvíginu við Keflavík í Iceland Express deildinni eftir öruggan 102-74 sigur á heimavelli í fyrsta leik liðanna í kvöld.
KR og Keflavík hefja undanúrslitaeinvígi sitt í Iceland Express deild karla í dag þegar fyrsti leikurinn fer fram í DHL-Höllinni í Frostaskjólinu. Þetta verður fimmti leikur liðanna í vetur og hefur KR unnið hina fjóra.
KR og Keflavík hefja undanúrslitaeinvígi sitt í Iceland Express deild karla í dag þegar fyrsti leikurinn fer fram í DHL-Höllinni í Frostaskjólinu.
Bikarmeistarar Stjörnunnar eru komnir í sumafrí eftir 1-2 tap fyrir Snæfelli í oddaleik liðanna í 8 liða úrslitum úrslitakeppni Iceland Express deildar karla í Stykkishólmi í gærkvöldi.
Nick Bradford hefur fengið leyfi frá læknum til þess að spila með Grindavík í undanúrslitum úrslitakeppni Iceland Express deildar karla í körfubolta en kappinn lenti í því að það leið yfir hann eftir að hann fékk sprautu hjá lækni í vikunni.
Fjögur efstu lið deildarkeppni Iceland Express deildar karla tryggðu sér öll sæti í undanúrslitum úrslitakeppninnar en þetta vare ljóst þegar Snæfell vann æsispennandi leik á móti Stjörnunni í gær.
Snæfell er komið í undanúrslit Iceland Express deildarinnar eftir 73-71 sigur á Stjörnunni í æsispennandi oddaleik í Stykkishólmi í kvöld.
Óvíst er hvort framherjinn Nick Bradford geti leikið með Grindvíkingum í undanúrslitunum í Iceland Express deildinni. Bradford datt illa og rotaðist þegar hann var að koma frá lækni.
Fannar Helgason og Guðjón Lárusson eru tilbúnir í slaginn með Stjörnunni fyrir oddaleik liðsins gegn Snæfelli í Stykkishólmi í kvöld.
Snæfell og Stjarnan mætast í kvöld í oddaleik í átta liða úrslitum Iceland Express deildar karla í körfubolta. Það lið sem vinnur leikinn sem fram fer í Stykkishólmi er komið í undanúrslit Íslandsmótsins.
Snæfell og Stjarnan mætast í kvöld í oddaleik í átta liða úrslitum Iceland Express deildar karla í körfubolta. Það lið sem vinnur leikinn sem fram fer í Stykkishólmi er komið í undanúrslit Íslandsmótsins.
Einar Árni Jóhannsson þjálfari Breiðabliks í Iceland Express deildinni tilkynnti í gærkvöld að hann væri hættur störfum hjá félaginu. Það var karfan.is sem greindi frá þessu.
Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR, á von á mjög sterkum andstæðingi í næstu umferð úrslitakeppni Iceland Express deildar karla.
"Þetta er verst í heimi," sagði Friðrik Stefánsson, fyrirliði Njarðvíkur í samtali við Vísi í kvöld. "Það er ekkert verra en að tapa 2-0 á móti Keflavík," sagði Friðrik.
Keflvíkingar tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum Iceland Express deildar karla í körfubolta með sigri á Njarðvík í öðrum leik liðanna 104-92. Keflavík vann einvígið því 2-0.
KR tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum úrslitakeppni Iceland Express deild karla eftir sigur á Breiðabliki á útivelli í kvöld, xx-xx.
Við viljum auðvitað ekkert fara í sumarfrí strax í mars þannig að það kemur ekkert annað til greina en að vinna í kvöld," sagði Magnús Gunnarsson leikmaður Njarðvíkur þegar Vísir náði tali af honum fyrir leik Njarðvíkur og Keflavíkur í kvöld.
Leikstjórnandinn Sverrir Þór Sverrisson hjá Keflavík segir sína menn ákveðna í að klára einvígið við Njarðvík í kvöld þegar liðin mætast öðru sinni í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í Iceland Express deildinni.
Tveir leikir fara fram í úrslitakeppni Iceland Express-deildar karla í kvöld. Á sama tíma fer einnig fram einn leikur hjá konunum.