Danmörk

Danmörk

Höfuðborg: Kaupmannahöfn. Mannfjöldi: 6,0 milljónir (2025). Flatarmál: 43.094 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Løkke kallar rúss­neska sendi­herrann á teppið

Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, hefur boðað sendiherra Rússlands þar í landi á sinn fund í dag. Løkke segist ætla að ræða sjálfsprengidróna sem fundust á flugvelli í Þýskalandi í síðasta mánuði en ráðamenn í Þýskalandi sögðu í gær að Rússar bæru ábyrgð á þeim og að um fjölþáttaárás væri að ræða.

Erlent
Fréttamynd

Setja körlum aldurs­tak­mark í frjósemismeðferð

Dönsk heilbrigðisyfirvöld hafa ákveðið að setja körlum sem ætla sér að nýta sínar eigin kynfrumur í frjósemismeðferðir á vegum ríkisins aldurstakmark. Aldurstakmarkið verður 55 ár en fyrir konur er það fjörutíu ár. Nýja aldurstakmarkið tekur gildi um áramótin.

Erlent
Fréttamynd

Þór­dís Zoëga sló í gegn í Kaup­manna­höfn

Fullt var út úr dyrum þegar listakonan Þórdís Erla Zoëga opnaði sýninguna Samrými í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn 27. ágúst síðastliðinn. Sýningin fjallar um hvernig við skilgreinum okkur sjálf í gegnum rými, landamæri og tengsl við aðra.

Menning
Fréttamynd

Dönsk landsliðsstjarna dæmd

Allan Lund Nielsen, fyrrverandi leikmaður danska landsliðsins og Tottenham, hefur verið dæmdur fyrir að svíkja peninga undan skatti. Nielsen átti digra sjóði í aflandsfélagi í Panama. 

Fótbolti
Fréttamynd

María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu

Hin 24 ára gamla María Hrund naut sín í botn á tískuviku í Kaupmannahöfn full af innblæstri á meðan hún veitti tískuinnendum sjálf mikinn innblástur með frumlegum og skemmtilegum klæðaburði. María starfar sem verslunarstjóri Andrá Reykjavíkur og lifir og hrærist í heimi tískunnar.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Frederik­sen og Meloni taka höndum saman gegn inn­flytj­endum

Forsætisráðherrar Danmerkur og Ítalíu segjast ætla að standa vörð um kristna menningararfleið Evrópu og krefjast þess að innflytjendur virði þau gildi í sameiginlegri yfirlýsingu. Þeir vilja vísa fleiri innflytjendum á brott og halda hælisleitendum utan álfunnar.

Erlent
Fréttamynd

Meira en Kaupmannahafnarskilyrðin

Í grein sem birtist á Vísi 4. ágúst undir yfirskriftinni „Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins“ fjallar Ásta Guðrún Helgadóttir um aðildarferli Íslands að Evrópusambandinu.

Skoðun
Fréttamynd

Dani lést í þyrluslysinu

Annar tveggja manna sem létust eftir að tvær slökkiliðsþyrlur skullu saman í loftinu í Grikklandi í dag var danskur ríkisborgari. Hinn var heimamaður.

Erlent
Fréttamynd

Danir auka víg­búnað í Fær­eyjum

Dönsk stjórnvöld ætla að auka viðveru hersins í Færeyjum. Danski varnarmálaráðherrann Jeppe Bruus og færeyskur strafsbróðir hans, Bárður á Steig Nielsen, sem fer fyrir utanríkis- og sjávarútvegsmálum í Færeyjum, hafa gert samkomuag um þetta.

Erlent
Fréttamynd

Senda norð­lenskt rusl úr landi

Íslenska gámafélagið opnaði fyrr á árinu stóra endurvinnslustöð á Akureyri þaðan sem sorp, sem áður var urðað, er sent til húsaupphitunar í Danmörku. Þá er gler notað í malbik.

Innlent
Fréttamynd

Ríf­lega níu­tíu manns mættu í eitt stærsta pálínuboð Ís­lands­sögunnar

Íslenskur bakari sem saknar þess að mæta á viðburði á borð við köku-pálínuboð frá því að hún bjó erlendis ákvað í sumar að grípa til sinna ráða og skipulagði svokallað „mega-pálínuboð“. Þrátt fyrir að ekki hafi ræst úr veðrinu rættist svo sannarlega úr boðinu en það var haldið í Laugardalnum frá klukkan 14:00 til 16:00 í dag.

Matur
Fréttamynd

Ekki lengur á­kærður fyrir til­raun til manndráps

Fjörutíu og átta ára maður var ákærður fyrir manndráp og tilraun til manndáps í Danmörku í gær en hann hefur nú verið úrskurðaður í gæsluvarðhald og ákærunni hefur verið breytt að hluta. Hann hefur sagst ekki muna hvað átti sér stað á föstudag.

Erlent
Fréttamynd

Fjöl­skyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir

Eigandi áfengisverksmiðju í Laos hefur verið ákærður eftir að fjöldi fólks lést úr metanól-eitrun í borginni Vang Vieng, þar á meðal áströlsku bakpokaferðalangarnir Bianca Jones og Holly Morton-Bowles. Þær voru einungis nítján ára gamlar þegar þær létust eftir að hafa verið fluttar fárveikar á sjúkrahús í Tælandi. Foreldrar stúlknanna gefa lítið fyrir viðbrögð í Laos.

Erlent
Fréttamynd

Á­rásar­maðurinn hafi sagst „ekki geta meir“

Fjörutíu og átta ára maður sem var færður fyrir dómara fyrir skömmu hefur verið ákærður fyrir manndráp og tilraun til manndráps í tengslum við skotárásina í Nørresundby norðan við Álaborg í gær. Hann hefur játað að hafa skotið sextíu og tveggja ára mann í gær með þeim afleiðingum að sá lést, auk lögreglumanns sem er særður.

Erlent
Fréttamynd

Alltaf jafn ó­þægi­legt að heyra af ná­lægri á­rás

Ung íslensk kona sem býr nálægt vettvangi skotárásar í Nørresundby skammt frá Álaborg í Danmörku segir málið óþægilegt. Einn er látinn og hinn grunaði er sagður þungt haldinn á sjúkrahúsi. Lögreglumaður var sömuleiðis skotinn en hann er sagður vera í stöðugu ástandi.

Innlent
Fréttamynd

Skot­á­rás við Ála­borg

Skotárás hófst skammt frá Álaborg í Danmörku um tólfleytið á staðartíma. Fólk á svæðinu, sem er við Nørresundby, er hvatt til að leita sér skjóls. En að sögn lögreglu er árásinni sjálfri lokið.

Erlent
Fréttamynd

Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lög­reglu

Sænskur þingmaður Evrópusambandsins hefur lagt fram kæru til lögreglu þar sem hún sakar danskan kollega sinn um hatursorðræður byggðar á kynþáttafordómum. Þingmaðurinn varð fyrir áreiti á samfélagsmiðlum fyrir að fordæma fagnaðarlæti á Evrópuþinginu.

Erlent
Fréttamynd

„Við unnum í nágranna­lottóinu“

Thelma Hrund Hermannsdóttir segist hafa unnið í „nágrannalottóinu“ en nágrannar hennar í Danmörku hafa orðið eins konar amma og afa sonar hennar. Sambandið hófst með einu bananabrauði.

Lífið