NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Lovísa Arnardóttir skrifar 3. september 2026 06:48 Mark Rutte og Ursula von der Leyen segja að það verði brugðist við. Vísir/EPA Leiðtogar NATO og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hafa varað við því að hegðun Rússa verði sífellt glannalegri og heita því að bregðast við „nýju ástandi“. Sendiherrar Rússa hafa víða í Evrópu verið kallaðir til fundar vegna niðurstöðu þýskra rannsakenda að Rússar hafi staðið að fjölþátta árás í Þýskalandi í síðustu viku. „
Leipzig markar nýja stigmögnun á yfirráðasvæði Evrópusambandsins sem rekja má beint til Rússlands,“ sagði Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, í gær, degi eftir að Þýskaland sakaði Rússa um misheppnaða drónaárás á Leipzig-flugvöll í síðasta mánuði. Von der Leyen sagði að refsiaðgerðum hefði þegar verið beitt til að fæla Rússa frá frekari aðgerðum og að utanríkisráðherrar ESB ræddu frekari leiðir til að „ganga enn harðar að stríðskassa Rússlands“. Sjá einnig: Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum ESB hefur þegar samþykkt 90 milljarða evra lán til Úkraínu og sagði von der Leyen að stjórnvöld í Kænugarði hefðu óskað eftir milljörðum evra til viðbótar til að greiða fyrir PAC-3 loftvarnareldflaugar. Hún bætti við að þegar væri unnið að sameiginlegu loftvarnaverkefni Evrópu og Úkraínu, Freyja, gegn eldflaugum. Hún hét því að Evrópa og NATO myndu halda áfram að þrýsta á Moskvu en að þau myndu auka þrýstinginn. „… við munum ekki hætta, ekki fyrr en Rússland hættir að sprengja og drepa saklausa karla, konur og börn í Úkraínu.“ Loka menningarsetrum Rússar hafa brugðist við nýjum refsiaðgerðum Þjóðverja með því að tilkynna að þeir muni loka menningarsetrum Goethe-Institut í Rússlandi. Sergej Lavrov utanríkisráðherra Rússlands tilkynnti að menningarsetrum Goethe-Institut í Moskvu, Sankti Pétursborg og Jekaterínborg yrði lokað í svari við aðgerðum Berlínar. Fyrr hafði Bernd Finke, sendifulltrúi Þýskalands í Rússlandi, verið kallaður á fund þar sem honum var tilkynnt um höfnun Moskvu á „algjörlega tilefnislausum ásökunum“ Berlínar. Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, sagði að bandalagið stæði „af fullri samstöðu með Þýskalandi“. Greint var frá því í gær að þýskir rannsakendur teldu sig hafa borið kennsl á tvo menn sem grunaðir eru um að hafa reynt fjölþáttaárás á Leipzig/Halle-flugvellinum í síðasta mánuði. Annar er sagður vera Rússi með vegabréf frá Lettlandi en hinn er frá Belarús og með rússneskt vegabréf. Vladimír Pútín forseti Rússlands hefur fordæmt aðgerðir Þjóðverja og sagt þær alvarleg mistök sem „gangi augljóslega gegn hagsmunum þýsku þjóðarinnar“. Í umfjöllun BBC um málið segir að gagnrýnendur í Þýskalandi hafi sagt viðbrögð stjórnvalda tiltölulega veik en að í Berlín sé horft til samræmdari viðbragða með bandamönnum Þýskalands, þar á meðal auknum refsiaðgerðum ESB og takmörkunum á komu rússneskra ríkisborgara til landa sambandsins. Von der Leyen var skýr í yfirlýsingu sinni um að árásin í Leipzig hefði falið í sér „hernaðarlegan búnað sem rússneskir útsendarar komu með á yfirráðasvæði Evrópusambandsins“. „Við munum ekki sætta okkur við þetta,“ sagði hún. „Við verðum að herða róðurinn og það þýðir að vera tilbúin að bregðast hraðar og betur við gáleysi Rússa.“ Utanríkisráðherra Frakklands, Jean-Noel Barrot kallar eftir viðbrögðum. Vísir/EPA Á meðan hún fundaði með Rutte í Brussel komu utanríkisráðherrar Evrópusambandsins saman í Wicklow á Írlandi. Í frétt BBC segir að Jean-Noël Barrot, utanríkisráðherra Frakklands, hafi sagt eftir fundinn að hægt væri að grípa til aðgerða á vettvangi Evrópu gegn svokölluðum „skuggaflota“ Rússa, skipum sem flytja olíu og annan varning til að komast hjá refsiaðgerðum ESB. Kalla sendiherra á sinn fund Barrot og utanríkisráðherrar frá Belgíu og Hollandi sögðust einnig hafa kallað rússneska sendiherra á sinn fund til að mótmæla árásinni. Greint var frá því í gær að Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, hefði boðað sendiherra Rússlands þar í landi á sinn fund í dag. Kaja Kallas ræddi við blaðamenn á fundi utanríkisráðherranna á Írlandi. Vísir/EPA Þá segir í frétt BBC að Kaja Kallas, utanríkismálastjóri ESB, hafi í gær sagt að unnið væri að því að herða framkvæmd gildandi refsiaðgerða og bætti við að víðtækur stuðningur væri við bann við komu fyrrverandi rússneskra hermanna til ESB, auk strangari takmarkana á vegabréfsáritanir fyrir rússneska ferðamenn. Í fréttinni segir enn fremur að tilkynnt hafi verið um nokkur meint skemmdarverk í Þýskalandi aðeins á síðustu 24 klukkustundum, þar á meðal tvær árásir á raforkuvirki, annars vegar í austurhluta landsins og hins vegar í vestri, nærri Köln. Ekki sé vitað hver hafi staðið að þeim en grunur liggi á að árásirnar hafi verið vísvitandi.
Evrópusambandið NATO Rússland Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Þýskaland Frakkland Holland Danmörk Belgía Tengdar fréttir Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Danska leyniþjónustan segist hafa komið upp um áform rússneskra stjórnvalda um að vinna skemmdarverk á dönskum varnarmálafyrirtækjum. Rússar eru sagðir setja sig í samband við danska ríkisborgara og reyna að fá þá til að taka myndir af tilteknum fyrirtækjum. 2. september 2026 20:36 Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Sjálfsprengjudróni sem fannst nærri flugvelli í Þýskalandi er frá Rússlandi samkvæmt bandarískum embættismanni sem þekkir til leynilegrar skýrslu um málið. 8. ágúst 2026 13:49 „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Úkraínska fragtflugvélin sem sjálfsprengidróni fannst við hliðina á á flugvelli í Leipzig í Þýskalandi í gær, var hlaðin skotfærum sem höfðu verið flutt frá Frakklandi og talið er að átti að flytja áfram til Úkraínu. Sprengiefnið sem dróninn bar ku vera öflugt og er notað í hernaði en hvelletan mun hafa verið gölluð. 6. ágúst 2026 13:21 Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Leipzig í Þýskalandi í gærkvöldi, við hlið úkraínskrar fraktflugvélar. Fjölmiðlar í Þýskalandi segja að sprengjusérfræðingar hafi staðfest að dróninn hafi borið sprengju en hann er sagður hafa verið gallaður. 5. ágúst 2026 11:43 Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Sjá meira
Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Danska leyniþjónustan segist hafa komið upp um áform rússneskra stjórnvalda um að vinna skemmdarverk á dönskum varnarmálafyrirtækjum. Rússar eru sagðir setja sig í samband við danska ríkisborgara og reyna að fá þá til að taka myndir af tilteknum fyrirtækjum. 2. september 2026 20:36
Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Sjálfsprengjudróni sem fannst nærri flugvelli í Þýskalandi er frá Rússlandi samkvæmt bandarískum embættismanni sem þekkir til leynilegrar skýrslu um málið. 8. ágúst 2026 13:49
„Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Úkraínska fragtflugvélin sem sjálfsprengidróni fannst við hliðina á á flugvelli í Leipzig í Þýskalandi í gær, var hlaðin skotfærum sem höfðu verið flutt frá Frakklandi og talið er að átti að flytja áfram til Úkraínu. Sprengiefnið sem dróninn bar ku vera öflugt og er notað í hernaði en hvelletan mun hafa verið gölluð. 6. ágúst 2026 13:21
Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Leipzig í Þýskalandi í gærkvöldi, við hlið úkraínskrar fraktflugvélar. Fjölmiðlar í Þýskalandi segja að sprengjusérfræðingar hafi staðfest að dróninn hafi borið sprengju en hann er sagður hafa verið gallaður. 5. ágúst 2026 11:43