Sýknudómur Brims í máli sjómannsins ómerktur Hæstiréttur hefur ómerkt dóm Landsréttar um sýknu Brims hf. af öllum kröfum foreldra ungs skipverja sem drukknaði á sjó í maí 2020. Málið verður því tekið fyrir á ný í Landsrétti. Innlent 4.3.2026 14:09
Eigendur Ítalíu í þriggja ára atvinnurekstrarbann Elvar Ingimarsson og Björgvin Narfi Ásgeirsson, fyrrum eigendur Ítalgest ehf., rekstrarfélags veitingastaðarins Ítalíu, hafa verið úrskurðaðir í atvinnurekstrarbann til þriggja ára. Landsréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms frá því í janúar. Innlent 4.3.2026 10:36
Dæmdir fyrir að stela dósum af ÍBV Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt tvo karlmenn fyrir að hafa stolið miklu magni af endurvinnanlegum dósum úr söfnunargámum íþróttafélagsins ÍBV í Vestmannaeyjum. Karlmennirnir eru á fertugs- og fimmtugsaldri búsettir í Eyjum. Innlent 4.3.2026 08:48
Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Tveir forsvarsmenn rafbílasölunnar Even sem varð gjaldþrota fyrir áratug voru dæmdir fyrir fjárdrátt í síðustu viku. Annar þeirra þarf að greiða hátt í tuttugu milljónir króna sem þeir tóku við sem greiðslur fyrir Teslur sem voru aldrei afhentar kaupendum. Viðskipti innlent 27. febrúar 2026 10:34
Steina vill áfrýja: „Brotið gegn grundvallarréttindum umbjóðanda míns“ Steina Árnadóttir hjúkrunarfræðingur hefur falið Vilhjálmi Vilhjálmssyni, verjanda sínum, að óska eftir áfrýjunarleyfi Hæstaréttar vegna dóms Landsréttar í dag. Þar var hún sakfelld fyrir manndráp af gáleysi. Vilhjálmur telur að brotið hafi verið á grundvallarréttindum Steinu til réttlátrar málsmeðferðar og það sé meðal margra atriða, sem gæti orðið til þess að Hæstiréttur veiti áfrýjunarleyfið. Innlent 26. febrúar 2026 16:58
Sakfelling Steinu staðfest Landsréttur hefur staðfest sakfellingu Steinu Árnadóttur hjúkrunarfræðingur fyrir manndráp af gáleysi fyrir hlut hennar í andláti sjúklings á geðdeild Landspítalans árið 2021. Henni er ekki gerð refsing. Innlent 26. febrúar 2026 15:08
Tekist á um kaupfox og hefð vegna 80 ára jeppa Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt mann réttmætan eiganda bifreiðar af gerðinni Willys Jeep, sem var fyrst skráð árið 1946, þar sem hann hefur haft umráð yfir bifreiðinni síðastliðin fjörutíu ár. Skráður eigandi bifreiðarinnar taldi að sá sem seldi manninum bifreiðina hefði ekki verið eigandi hennar. Dómurinn taldi öll skilyrði hefðar uppfyllt í málinu og því kæmi ekki til álita hvort upphaflegur seljandi hefði gerst sekur um kaupfox. Viðskipti innlent 26. febrúar 2026 14:22
Voru að tína dópið úr töskunni þegar löggan réðst til atlögu Albani á fertugsaldri kveðst vera fórnarlamb í máli sem snýr að smygli á sögulegu magni ketamíns og mikils magns MDMA. Hann hafi talið sig eiga að gera manni sem væri ekki með dvalarleyfi greiða en í staðinn hafi verkstæði sem hann hafði aðgang að verið notað til að fjarlægja fíkniefnin úr bifreið. Innlent 26. febrúar 2026 06:46
Átti að fá smáaura fyrir sögulegt smygl Þýsk kona á sextugsaldri segist hafa leiðst út í að flytja tuttugu kíló af sterkum fíkniefnum til landsins með Norrænu vegna fjárhagsvandræða í tengslum við handtöku sonar hennar í Frakklandi. Hún hafi átt að fá tvö til þrjú þúsund evrur fyrir ómakið, sem jafngildir um 290 til 340 þúsund krónum. Hún á nú yfir höfði sér allt að tólf ára fangelsi. Innlent 25. febrúar 2026 13:02
Hálfs árs fangelsi fyrir að berja mann með bifhjólakeðju Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi karlmann með langan sakaferil að baki í sex mánaða fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára, fyrir líkamsárás þegar hann sló mann í höfuðið með mótorhjólakeðju. Tekið var tillit til viðsnúnings á högum árásarmannsins þegar refsingin var ákveðin. Innlent 25. febrúar 2026 09:25
Tekinn í tollinum með tíu kíló af ketamíni Ionut Mihai Dinescu, Rúmeni á fertugsaldri, hefur verið ákærður fyrir stórfellt fíkniefnabrot, með því að hafa staðið að innflutningi á rúmum tíu kílóum af ketamíni. Innlent 24. febrúar 2026 14:43
Séð Margréti beita móður sína ofbeldi rétt áður en hún myrti föður sinn Sigurbjörn Bárðarson hestaþjálfari segist hafa orðið vitni að því þegar Margrét Halla Hansdóttir Löf beitti móður sína ofbeldi. Nokkrum dögum síðar hafi hún myrt föður sinn. Sigurbjörn leigði fjölskyldunni bás í hesthúsi sínu og segist lengi hafa furðað sig á því hversu illa Margrét hafi komið fram við foreldra sína. Innlent 24. febrúar 2026 00:17
Skilorð fyrir vopnaðan nytjastuld Kona á fertugsaldri hefur verið dæmd til þrjátíu daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir nokkurn fjölda brota. Hún var meðal annars ákærð fyrir hótun og nytjastuld, með því að neyða konu út úr bíl með því að hóta henni með hnífi og aka bílnum á brott. Innlent 23. febrúar 2026 14:14
Dæmd fyrir að slasa farþega þegar hún sofnaði undir stýri rútu Kona sem sofnaði undir stýri hópferðabifreiðar sem lenti utan vegar sunnan við Blönduós árið 2023 var dæmd í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi. Hún var sakfelld fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi vegna áverka sem þrír farþegar hlutu í slysinu. Innlent 20. febrúar 2026 14:53
Milljónir farið í sáttagreiðslur í Hafnarfirði Hafnarfjarðarbær hefur greitt þremur fyrrverandi starfsmönnum alls vel rúmlega fimm milljónir króna í sáttagreiðslur á yfirstandandi kjörtímabili. Þá hafa verið gerðir sextán starfslokasaminga sem eru umfram þriggja mánaða uppsagnarfrest. Innlent 20. febrúar 2026 13:32
Máttu reka leiðsögumann sem ók vinnubíl próflaus Atvinnurekandi í ferðaþjónustu, sem sagði upp starfsmanni eftir að hann ók bíl fyrirtækisins sviptur ökuréttindum tvívegis, þarf ekki að greiða starfsmanninum skaðabætur vegna uppsagnarinnar. Ekki var fallist á að riftun á ráðningarsamningi án undangenginnar samningsbundinnar áminningar vegna brotanna hafi verið ólögmæt. Innlent 19. febrúar 2026 21:01
Braut ítrekað á stjúpdóttur og bar fyrir sig kynferðislega svefnröskun Karlmaður hefur verið dæmdur til tólf mánaða fangelsisvistar í Landsrétti fyrir að hafa ítrekað brotið kynferðislega á stjúpdóttur sinni þegar hún var sjö og átta ára. Hann bar fyrir sig að hann væri haldinn kynferðislegri svefnröskun og hefði verið sofandi þegar hann braut á stúlkunni. Landsréttur taldi sannað að hann hefði verið vakandi þegar hann snerti kynfæri stúlkunnar og rass og fróaði sér við hlið hennar. Innlent 19. febrúar 2026 16:40
Níu ára fangelsi fyrir að nauðga fatlaðri konu ítrekað Landsréttur hefur dæmt Sigurjón Ólafsson, karlmann á sextugsaldri, í níu ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað andlegra fatlaðri konu ítrekað og látið aðra menn sem hann var í samskiptum við nauðga henni. Hann var yfirmaður hennar og neyddi son hennar til að fylgjast með kynferðislegum athöfnum þeirra. Hann hlaut ára dóm í héraði, áfrýjaði sjálfur og Landsréttur þyngdi dóminn um eitt ár. Innlent 19. febrúar 2026 15:50
Tíu ára fangelsi fyrir að verða manni að bana í Kiðjabergi Gedirninas Saulys, litáískur karlmaður, hefur verið sakfelldur fyrir meiri háttar líkamsárás sem leiddi til dauða í sumarhúsi í Kiðjabergi í apríl árið 2024 og dæmdur til tíu ára fangelsisvistar. Innlent 19. febrúar 2026 15:06
Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Þorsteinn Pétur Guðjónsson, forstjóri Deloitte á Íslandi, hefur verið sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot. Honum var gefið að sök að hafa veist að ungri konu á hóteli á Suðurlandi vorið 2023. Hann segist þakklátur því að réttlætið hafi náð fram að ganga í málinu. Innlent 19. febrúar 2026 12:57
Málið verði flutt upp á nýtt með nýju vitni Margrét Friðriksdóttir og verjandi hennar Hilmar Garðar Þorsteinsson hafa krafist þess að mál gegn henni vegna ummæla um héraðsdómara verði endurflutt. Dómsuppkvaðningu hefur ítrekað verið frestað umfram þann tímaramma sem lög gera ráð fyrir. Innlent 18. febrúar 2026 18:32
Braut á ungri bróðurdóttur sinni sem bjó á heimilinu Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs langa fangelsisvist fyrir nauðgun, kynferðisbrot gegn barni, stórfellt brot í nánu sambandi og vörslu barnaníðsefnis. Brotaþoli var bróðurdóttir hans sem var tveggja til fimm ára gömul þegar brotin áttu sér stað. Innlent 18. febrúar 2026 17:19
Nauðgari hélt því fram að Snapchat-skilaboð væru ekki frá honum Hæstiréttur hefur staðfest dóm Landsréttar yfir Ívari Gísla Vignissyni, sem var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga táningsstúlku sem tengist honum fjölskylduböndum. Hann bar fyrir sig að sönnunarmat Landsréttar hefði verið í skötulíki þar sem sakfelling hans hefði fyrst og fremst byggt á því að tiltekin Snapchat-skilaboð hefðu stafað frá honum. Innlent 18. febrúar 2026 16:55
Hæstiréttur gefur ÁTVR á baukinn Hæstiréttur hefur vísað máli heildsölunnar Distu á hendur Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins frá Hæstarétti og því stendur dómur Landsréttar í málinu óhaggaður. ÁTVR greiddi málskostnað fyrir Landsrétti daginn eftir dómsuppsögu og fyrirgerði sér þannig rétti til áfrýjunar til Hæstaréttar. Hæstiréttur benti á að ÁTVR er ríkisfyrirtæki með löglærða menn í vinnu og naut aðstoðar lögmanna við rekstur málsins og því hefði það staðið ÁTVR næst að sýna fram á hvers vegna málskostnaður var greiddur, en það hefði ekki verið gert. Viðskipti innlent 18. febrúar 2026 16:00