
Segir Kína og Bandaríkin færast nær „köldu stríði“
Utanríkisráðherra Kína segir ákveðin pólitísk öfl í Bandaríkjunum halda samskiptum ríkjanna í gíslíngu. Hann segir þó ekki um hvaða öfl er að ræða.
Fréttir tengdar 45. og 47. forseta Bandaríkjanna, Donald Trump.
Utanríkisráðherra Kína segir ákveðin pólitísk öfl í Bandaríkjunum halda samskiptum ríkjanna í gíslíngu. Hann segir þó ekki um hvaða öfl er að ræða.
Joe Biden, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, hefur beðist afsökunar á ummælum sem hann lét falla í viðtali í gær. Þar sagði hann að þeldökkir kjósendur sem íhuguðu að kjósa Donald Trump, núverandi forseta, væru ekki raunverulega þeldökkir.
Donald Trump Bandaríkjaforseti mætti grímulaus til fundar við fréttamenn í verksmiðju bílaframleiðandans Ford í Michigan í gær, þrátt fyrir að grímuskylda gildi í ríkinu vegna faraldurs kórónuveiru.
Michael Cohen, fyrrverandi lögmaður Trump sem dæmdur var í þriggja ára fangelsi í desember 2018, hefur verið sleppt úr fangelsi og færður í stofufangelsi.
Niðurstaða rannsóknar faraldursfræðinga við Columbia-háskóla í Bandaríkjunum hefur leitt í ljós að ef brugðist hefði verið við faraldri kórónuveirunnar viku fyrr hefði mátt bjarga allt að 36 þúsund mannslífum.
Hæstiréttur Bandaríkjanna kom í dag í veg fyrir að þingmenn fengu aðgang að skýrslu Robert Mueller úr Rússarannsókninni svokölluðu og önnur undirliggjandi gögn.
Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að innri endurskoðandi utanríkisráðuneytisins hefði átt að vera rekinn fyrir löngu.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði í dag tveimur ríkjum Bandaríkjanna að hann myndi stöðva fjárveitingar alríkisstjórnarinnar til þeirra ef þau hættu ekki við áform um að bjóða upp á utankjörfundar- og póstatkvæði til að draga úr smithættu vegna kórónuveirufaraldursins í kosningum á þessu ári.
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir það ákveðinn heiður að flest tilfelli kórónuveiru á heimsvísu hafi greinst í Bandaríkjunum.
Demókratar á Bandaríkjaþingi segja að innri endurskoðandi utanríkisráðuneytisins sem Donald Trump forseti rak skyndilega á föstudagskvöld hafi verið við það að ljúka rannsókn á mögulegu misferli við umfangsmikla vopnasölu Bandaríkjastjórnar til Sádi-Arabíu. Áður hefur komið fram að endurskoðandinn hafi verið að kanna möguleg brot utanríkisráðherrans í embætti.
Nancy Pelosi, demókrati og forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, kveðst hafa áhyggjur af Donald Trump Bandaríkjaforseta eftir að hann sagðist taka inn malaríulyf gegn kórónuveirunni.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað því að Bandaríkin hætti fjárframlögum til Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um ókomna tíð vegna viðbragða stofnunarinnar við faraldri kórónuveiru.
Bandaríkjaforseti, Donald Trump, sagði á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í dag að hann hafi undanfarna eina og hálfa viku tekið inn malaríulyfið Hydroxychloroquine til varnar gegn faraldri kórónuveirunnar.
Dómsmálaráðherra Bandaríkjanna býst hvorki við því að Barack Obama, fyrrverandi forseti, né Joe Biden, fyrrverandi varaforseti og líklegt forsetaefni demókrata, verði rannsakaðir þrátt fyrir ítrekaðar fullyrðingar Donalds Trump forseta um óljóst samsæri þeirra. Gaf hann þó í skyn að „aðrir“ gætu verið sóttir til saka.
Innri endurskoðandi bandaríska utanríkisráðuneytisins var byrjaður að kanna ásakanir um að Mike Pompeo, utanríkisráðherra, hafi látið pólitískt skipaðan starfsmann sinna persónulegum viðvikum eins og fara út að ganga með hundinn sinn, sækja föt í hreinsun og fleira þegar Donald Trump forseti rak endurskoðandann skyndilega á föstudag. Pompeo er sagður hafa hvatt Trump til að reka eftirlitsmanninn.
Obama segir embættismenn í ríkisstjórn Donalds Trump ekki hafa fyrir því að þykjast vera við stjórnvölinn.
Steve Linick, aðaleftirlitsmaður í utanríkisráðuneytinu, er sagður hafa staðið að rannsókn á mögulegum embættisbrotum Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Norður-írski kylfingurinn Rory McIlroy segist ekki hafa áhuga á því að spila aftur golf við Donald Trump, Bandaríkjaforseta, og efast reyndar um að hann fái aftur slíkt boð eftir að hafa sett út á það hvernig Trump hefur tekist á við kórónuveirufaraldurinn.
Ritstjórn breska læknaritsins Lancet sakar Donald Trump Bandaríkjaforseta um „mótsagnarkend og sundurlaus“ viðbrögð við kórónuveirufaraldrinum og að hafa ýtt sóttvarnayfirvöldum til hliðar. Hún hvetur Bandaríkjamenn til að kjósa sér forseta sem skilur að flokkapólitík ætti ekki að stjórna lýðheilsumálum.
Bandaríska alríkisstjórnin hefur greitt fyrirtæki Donalds Trump forseta og æðsta stjórnanda hennar að minnsta kosti rúmlega 140 milljónir króna fyrir gistingu á hótelum og klúbbum hans frá því að Trump tók við embætti fyrir rúmum þremur árum. Útgjöldin tengjast nær öll ferðalögum Trump, fjölskyldu hans og æðstu embættismanna.
Bandaríkin standa mögulega frammi fyrir myrkasta vetri sögunnar. Þetta segir fyrrverandi yfirmaður bandarískrar alríkisstofnunar sem ber ábyrgð á því að þróa lyf gegn kórónuveirunni.
Rúmum þremur árum eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, rak Michael Flynn, þáverandi þjóðaröryggisráðgjafa sinn, fyrir að ljúga að Mike Pence, varaforseta, og starfsmönnum Alríkislögreglu Bandaríkjanna, sem er glæpur, eru Trump-liðar nú að reyna að endurskrifa söguna.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur varið miklum tíma á Twitter síðustu daga. Þar hefur hann meðal annars sakað þáttastjórnanda um morð og fjölmarga pólitíska andstæðinga sína um allskonar glæpi.
Paul Manafort, fyrrverandi framkvæmdastjóra forsetaframboðs Donald Trump, hefur verið færður í stofufangelsi vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar.
Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikanaflokksins í öldungadeild Bandaríkjaþings, segir að Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefði ekki átt að gagnrýna Donald Trump, núverandi forseta, fyrir viðbrögð hans við heimsfaraldri nýju kórónuveirunnar og vegna inngripa hans í dómskerfi Bandaríkjanna.
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, gekk út af blaðamannafundi í Hvíta húsinu í gær.
Kannanir sýna að Demókrötum hefur vaxið ásmegin og viðbrögð Donald Trump, forseta, vegna heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar hafa verið harðlega gagnrýnd.
Michael Flynn, fyrsti þjóðaröryggisráðgjafi Donald Trump Bandaríkjaforseta, er velkominn aftur til starfa í ríkisstjórninni, að sögn Mike Pence, varaforseta. Flynn var látinn segja af sér á sínum tíma fyrir að ljúga að Pence.
Viðbrögð Donalds Trump Bandaríkjaforseta við kórónuveirufaraldrinum hafa verið „óreiðukennd“ að mati Baracks Obama, forvera hans í embætti. Þetta er Obama sagður hafa sagt á fjarfundi með fólki sem gegndi embættum í ríkisstjórn hans á sínum tíma. Varaði Obama jafnframt við vaxandi flokkadráttum og óeiningu innan bandarísku þjóðarinnar.
Þá kvaðst forsetinn treysta þeim yfirvöldum sem fara nú með málið.