
Khabib vildi ekki fá sér vínglas með Ferguson
Þeir eru ekki margir sem myndu sleppa tækifærinu á að fá sér vínglas með Sir Alex Ferguson. En bardagakappinn fyrrverandi, Khabib Nurmagomedov, gerði það samt.
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Þeir eru ekki margir sem myndu sleppa tækifærinu á að fá sér vínglas með Sir Alex Ferguson. En bardagakappinn fyrrverandi, Khabib Nurmagomedov, gerði það samt.
Enska knattspyrnufélagið Watford rak á laugardag Francisco Javier Muñoz Llompart – kallaður Xisco – en hann hafði stýrt liðinu frá því í desember á síðasta ári. Hann er þrettándi þjálfari félagsins á síðustu tíu árum.
Manchester City hefur lagt inn kvörtun til Liverpool eftir leik liðanna á Anfield í dag vegna aðdáenda sem ákvað að hrækja á starfslið félagsins í fyrri hálfleik.
„Mögulega minna en miðlungs, við vorum of afslappaðir, bæði með og án bolta,“ sagði Jürgen Klopp, þjálfari Liverpool, eftir 2-2 jafntefli lærisveina sinna gegn Manchester City.
Jóhann Berg Guðmundsson hefur ákveðið að draga sig úr íslenska landsliðshópnum sem mætir Armeníu og Liechtenstein í undankeppni HM 2022 á næstu dögum.
Manchester United vann 2-0 útisigur á Birmingham City í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. María Þórisdóttir lék allan leikinn í hjarta varnar Man United.
Pep Guardiola, þjálfari Manchester City, opinberaði ást sína á ensku úrvalsdeildinni eftir 2-2 jafntefli sinna manna gegn Liverpool er liðin mættust á Anfield í stórleik helgarinnar.
Liverpool og Englandsmeistarar Manchester City gerðu 2-2 jafntefli í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.
Fjórir leikir eru á dagskrá ensku úrvalsdeildarinnar í dag og nú er þrem þeirra lokið. Crystal Palace gerði 2-2 jafntefli gegn Leicester eftir að hafa lent 2-0 undir, og Brentford vann dramatískan 2-1 sigur gegn West Ham þar sem að sigurmarkið kom í uppbótartíma.
Eftir þrjú töp í röð í ensku úrvalsdeildinni náði Tottenham Hotspur loksins að vinna leik þegar að liðið lagði Aston Villa á heimavelli 2-1.
Andros Townsend skoraði jöfnunarmark Everton er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Manchester United á Old Trafford í gær. Fagn hans vakti athygli, en hann hermdi eftir frægu fagni Cristiano Ronaldo sem var nýkominn inn á sem varamaður fyrir andstæðingana.
Enska knattspyrnufélagið Watford lét þjálfara liðsins, Xisco Muñoz, taka poka sinn í morgun etir rétt tæpa tíu mánuði í starfi.
Þjóðverjinn Jürgen Klopp, þjálfari enska knattspyrnufélagsins Liverpool, hefur sent væna pillu á fólk sem neitar að láta bólusetja sig við kórónuveirunni. Líkir hann því við að keyra fullur þar sem þeir einstaklingar setja fjölda fólks í hættu með ákvörðun sinni.
Það virðist sem sæti Ole Gunnar Solskjær, þjálfara Manchester United, sé farið að hitna. Liðið missteig sig enn á ný er vængbrotið lið Everton mætti á Old Trafford en leik liðanna lauk með 1-1 jafntefli.
Arsenal hafði unnið þrjá leiki í röð áður en liðið mætti á Amex-völlinn í dag þar sem liðið sótti Brighton & Hove Albion heim. Heimamenn voru sterkari aðilinn en markvörður Arsenal hélt þeim inn í leiknum.
Burnley varð í dag fyrsta liðinu sem mistókst að vinan Norwich City í ensku úrvalsdeildinni. Lokatölur 0-0 í leik þar sem Jóhann Berg Guðmundsson spilaði síðasta hálftímann í liði Burnley.
Chelsea lyfti sér á topp ensku úrvalsdeildarinnar með 3-1 sigri gegn Southampton á heimavelli í dag. Heimamönnuum gekk illa að hrista gestina af sér þangað til að James Ward-Powse fékk að líta rauða spjaldið.
Manchester United og Everton gerðu 1-1 jafntefli þegar að liðin mættust á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Þegar sex umferðir eru búnar af ensku úrvalsdeildinni hafa fimm lið ekki enn unnið leik. Það þarf að fara aftur til tímabilsins 1964-1965 til að finna álíka tölfræði.
Thomas Tuchel, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að bakvörður liðsins, Reece James, sé ekki heill heilsu fyrir komandi leiki enska landsliðsins í undankeppni HM 2022. Hann segist búast við því að James taki ekki þátt í leikjunum, og að það hafi verið byggt á misskilningi þegar að hann var valinn í hópinn í vikunni.
Fyrrum leikmaður Liverpool hrósar Mohamed Salah mikið og segir að hann sé kominn fram úr þeim Cristiano Ronaldo og Lionel Messi sem besti fótboltaleikmaður heims í dag.
Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englendinga, valdi í gær 23 manna hóp fyrir komandi leiki gegn Andorra og Ungverjalandi í undankeppni HM 2022.
Dómstóll í Birmingham dæmdi fimmtugan mann í fangelsi fyrir framkomu sína á fótboltaleik.
Cristiano Ronaldo minnti á sig með dramatískum hætti í gær þegar hann tryggði Manchester United gríðarlega mikilvægan 2-1 sigur á Villarreal í Meistaradeildinni.
Kelechi Iheanacho missir af Evrópudeildarleik Leicester City í dag eftir að hafa verið stöðvaður af landamæravörðum við komuna til Póllands.
Fjöldi leikja fór fram í ensku B-deildinni í kvöld. Derby County vann sigur sem þýðir að liðið er komið með eitt stig en tólf stig voru dregin af félaginu nýverið vegna skuldastöðu þess. Þá skoraði Aleksandar Mitrović þrennu í sigri Fulham og Peterborough United hélt hreinu.
Ensku stórliðin Manchester City, Arsenal og Chelsea unnu stórsigra í FA-bikar kvenna í fótbolta í kvöld.
Granit Xhaka, leikmaður Arsenal, verður frá næstu þrjá mánuðina vegna hnémeiðsla.
Norska landsliðskonan María Þórisdóttir kann afar vel við sig hjá Manchester United. Hún gekk í raðir liðsins frá Chelsea í byrjun þessa árs.
Liverpool og Manchester City upplifðu ólík úrslit í Meistaradeildinni í gærkvöldi fimm dögum áður en þau mætast í ensku úrvalsdeildinni.