Tjallar héldu uppi stuðinu á Hlíðarenda: „Alveg trylltir“ Fimm Bretar vöktu mikla kátínu á meðal áhorfenda á N1-vellinum við Hlíðarenda í gær þegar Valur mætti ÍA í undanúrslitum Lengjubikarsins. Þeir héldu uppi stemningunni á vellinum og mátti vel heyra í þeim í sjónvarpsútsendingu frá leiknum. Íslenski boltinn 21. mars 2024 15:00
Sjáðu vítakeppnina og mörkin í fyrsta leik Gylfa með Val Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Val urðu að sætta sig við tap í fyrsta keppnisleik hans með liðinu. ÍA vann sigur á Val í vítakeppni og tryggði sér sæti í úrslitaleik Lengjubikars karla í fótbolta. Nú má sjá mörkin og vítaspynukeppnina úr leiknum inn á Vísi. Íslenski boltinn 21. mars 2024 13:31
„Ekkert að stressa sig of mikið á því hvað er að gerast í kringum þá“ „Það er búið að bíða eftir þessu í mjög langan tíma og núna er bara komið að þessu og það er bara geggjað og mikill spenningur,“ segir Arnór Ingvi Traustason landsliðsmaður í knattspyrnu. Fótbolti 21. mars 2024 12:30
Adam hafi nánast þvingað treyjuna upp á Gylfa: „Minn er heiðurinn“ Gylfi Þór Sigurðsson þakkar Adam Ægi Pálssyni fyrir að afhenda sér treyjunúmerið 23 hjá Val. Adam skipti um númer svo Gylfi gæti borið sömu tölu á bakinu og hann gerði á sínum bestu árum hjá Swansea í ensku úrvalsdeildinni. Íslenski boltinn 21. mars 2024 12:01
Sá föður sinn skrifa söguna: Reiðubúinn í að rita næsta kafla Andri Lucas Guðjohnsen, atvinnu- og landsliðsmaður í fótbolta segir að draumur sinn myndi rætast ef íslenska landsliðinu tækist að tryggja sér sæti á komandi Evrópumóti í fótbolta. Ísland mætir Ísrael í undanúrslitum umspils um EM sæti í kvöld. Fótbolti 21. mars 2024 11:01
Vill hafa sérstakar gætur á Blikabana í kvöld Það er ekki mikið um heimsþekkt nöfn í landsliði Ísraela, ekki frekar en því íslenska, en landsliðsþjálfarinn Åge Hareide vill að sínir menn hafi sérstakar gætur á 36 ára gömlum framherja mótherjanna í Búdapest í kvöld. Fótbolti 21. mars 2024 11:01
Er stress í liði Íslands? „Öðruvísi spennustig en maður er vanur“ Arnór Sigurðsson, landsliðsmaður Íslands í fótbolta, getur ekki beðið eftir því að halda út á völl og leika gegn Ísrael í mikilvægum undanúrslitaleik í umspili um laust sæti á EM. Möguleiki er á því að leikurinn fari alla leið í vítaspyrnukeppni, Arnór hefur reynslu af þeim en vill helst sleppa við að halda í svoleiðis keppni í þessum leik. Klára frekar bara verkefnið áður en til þess myndi koma. Fótbolti 21. mars 2024 10:01
Leikdagur í Búdapest: Kjartan Henry rekinn á hótelinu Ísland mætir Ísrael í undanúrslitum umspils um sæti á Evrópumóti karla í fótbolta í kvöld. Okkar menn í Búdapest hituðu upp fyrir leikinn. Fótbolti 21. mars 2024 09:30
Utan vallar: Ömurlegt kerfi bitnar enn á Íslandi (eða Ísrael) Glópalán ræður alveg óþolandi miklu varðandi það hvaða Evrópuþjóðir komast í lokakeppnir stórmóta í fótbolta, í gegnum þær umspilsleiðir sem nú er notast við. Þetta hefur bitnað á Íslandi með ömurlegum hætti. Fótbolti 21. mars 2024 09:05
Áfall fyrir Ísland: Jóhann fyrirliði ekki með í kvöld Jóhann Berg Guðmundsson verður ekki með fyrirliðabandið í leiknum mikilvæga við Ísrael í Búdapest í kvöld, í undanúrslitum EM-umspilsins í fótbolta. Fótbolti 21. mars 2024 08:59
„Þessir tveir mánuðir voru gríðarlega erfiðir“ Gylfi Þór Sigurðsson þreytti frumraun sína með Val gegn ÍA í Lengjubikarnum í gær. Síðustu mánuðir hafa verið honum strembnir og þá verður skrýtið fyrir hann að vera ekki með landsliðinu í kvöld. Íslenski boltinn 21. mars 2024 08:00
Ofsóttur í bílakjallara og á flugvelli en dæmir leik Íslands í sömu borg í kvöld Enski dómarinn Anthony Taylor verður með flautuna í leiknum mikilvæga í kvöld þegar Ísland mætir Ísrael í undanúrslitum EM-umspils karla í fótbolta. Fótbolti 21. mars 2024 07:34
Neuer meiddur og missir mögulega af leiknum gegn Arsenal Þýski landsliðsmarkvörðurinn Manuel Neuer hefur dregið sig úr hóp fyrir komandi æfingaleiki gegn Frakklandi og Hollandi. Fótbolti 20. mars 2024 23:00
Barcelona og PSG í kjörstöðu eftir útisigra Barcelona og PSG eru í kjörstöðu eftir góða útisigra gegn Brann og BK Häcken í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Fótbolti 20. mars 2024 21:54
Lögregluleit í húsakynnum Rubiales og spænska knattspyrnusambandsins Meiriháttar lögregluaðgerðir fóru fram í dag eftir rannsóknir á spillingarmáli tengt spænska ofurbikarnum. Lögregluleit var gerð í húsnæði spænska knattspyrnusambandsins og á heimili fyrrum formanns þess, Luis Rubiales. Fótbolti 20. mars 2024 20:30
Umfjöllun og viðtöl: Valur - ÍA 5-6 | Skagamenn unnu eftir vítaspyrnukeppni Skagamenn báru sigurorð af Val þegar liðin áttust við í undanúrslitum Lengjubikars karla í fótbolta á Hlíðarenda í kvöld. Það þurfti vítaspyrnukeppni til þess að útkljá leikinn. Íslenski boltinn 20. mars 2024 20:12
Hættir hjá Bournemouth og tekur við sem íþróttastjóri Liverpool: „Treysti honum fullkomlega“ Liverpool gerir breytingar á allri stjórnsýslu félagsins í sumar þegar knattspyrnustjórinn Jürgen Klopp lætur af störfum. Allir sem koma að knattspyrnulegum ákvörðunum hjá félaginu verða nýir í starfinu, Enski boltinn 20. mars 2024 16:01
Richarlison: Þetta bjargaði lífi mínu Brasilíski knattspyrnumaðurinn Richarlison hjá Tottenham er afar þakklátur fyrir sálfræðimeðferðina sem hann fékk sjálfur á sínum tíma og er því mjög ánægður með að brasilíska landsliðið sé nú komið með sálfræðing til starfa hjá sér. Fótbolti 20. mars 2024 15:30
Sviptir hulunni af heimildarmynd og sér um föstudagskvöldin á RÚV Logi Bergmann Eiðsson fjölmiðlamaður til margra ára segir fyndið símtal hafa orðið til þess að hann ákvað að taka að sér framleiðslu heimildarmyndar um Ásgeir Elíasson, einn sigursælasta fótboltaþjálfara landsins. Logi er nú að vinna í gerð fleiri heimildamynda og er í ritstjórn spurningaþáttanna Er þetta frétt? sem sýndir eru á föstudagskvöldum á RÚV. Lífið 20. mars 2024 15:29
Barca vill losna við Lewandowski og Atlético áhugasamt Spænskir fjölmiðlar greina frá því að Barcelona hyggist selja pólska framherjann Robert Lewandowski í sumar. Atlético Madrid er sagt fylgjast vel með stöðu mála. Fótbolti 20. mars 2024 15:00
„Það er kannski ekkert gáfulegt“ Gylfi Þór Sigurðsson segist treysta sér til að spila meira í kvöld en honum ef til vill leyfist. Hann mun þreyta frumraun sína fyrir Val gegn ÍA í Lengjubikarnum. Íslenski boltinn 20. mars 2024 14:39
Búnir að æfa vítaspyrnur og Åge búinn að velja þá sem taka vítin Ísland mætir Ísrael í undanúrslitaleik umspils um laust sæti á EM annað kvöld og þar verður spilað til þrautar um það hvort liðið kemst í úrslitaleik um laust sæti á EM. Fótbolti 20. mars 2024 13:00
Hareide fann enga pressu frá KSÍ: „Stúlkan var í fullum rétti“ Norðmaðurinn Åge Hareide, landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, segir að sér hafi þótt nauðsynlegt að senda út yfirlýsingu í gær til að skýra mál sitt vegna ummæla í tengslum við kæru gegn Alberti Guðmundssyni. Fótbolti 20. mars 2024 12:37
Jóhann Berg fékk högg á lærið Jóhann Berg Guðmundsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, sagði frá því í viðtali við blaðamann Vísis að hann sé að glíma við meiðsli. Fótbolti 20. mars 2024 12:18
Ísraelskir blaðamenn þjörmuðu að Åge Ísraelskir blaðamenn spurðu íslenska landsliðsþjálfarann út í stríðið á milli Ísraels og Hamas-samtakanna á blaðamannafundi liðsins fyrir mikilvægan leik á morgun. Fundurinn var fljótur að verða pólítískur og ísraelskir blaðamenn þjörmuðu að Åge Hareide landsliðsþjálfara. Fótbolti 20. mars 2024 11:52
149 milljóna trygging og Dani Alves laus úr fangelsi Dani Alves hefur verið sleppt úr fangelsi gegn tryggingu en Brasilíumaðurinn hafði áfrýjað fangelsisdómi sínum. Fótbolti 20. mars 2024 11:30
Aðeins átta hundruð manns sjá Ísland mæta Ísrael Segja má að hvorugt liðanna verði á heimavelli á morgun, þegar Ísland mætir Ísrael í undanúrslitum umspilsins mikilvæga um sæti á EM karla í fótbolta. Fótbolti 20. mars 2024 11:18
Afhjúpa númerið hans Gylfa í gæsahúðarmyndbandi Gylfi Þór Sigurðsson sem skrifaði undir tveggja ára samning við Valsmenn fyrir skömmu mun leika sinn fyrsta leik fyrir félagið gegn ÍA í undanúrslitum Lengjubikarsins á N1-vellinum að Hlíðarenda í kvöld. Fótbolti 20. mars 2024 11:01
Svona var fundur KSÍ fyrir EM-umspilið Åge Hareide landsliðsþjálfari og fyrirliðinn Jóhann Berg Guðmundsson sátu fyrir svörum á blaðamannafundi í Búdapest, daginn fyrir leik Íslands við Ísrael í umspilinu um sæti á EM í fótbolta. Fundurinn var í beinni útsendingu á Vísi. Fótbolti 20. mars 2024 10:46
Einn dagur í EM-umspil: Aðeins fimm voru með liðinu á síðasta EM Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er aðeins tveimur sigurleikjum frá því að tryggja sér sæti á Evrópumótinu í Þýskalandi í sumar. Þetta er þó mikið breytt lið frá því sem skrifaði nýjan kafla í íslensku fótboltasöguna fyrir tæpum átta síðan. Fótbolti 20. mars 2024 10:30