„Sammála að þetta sé dýfa en þú þarft að gera þetta“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 23. febrúar 2026 13:45 Gabriel þótti falla til jarðar með frekar leikrænum tilburðum. Justin Setterfield/Getty Images Leikmenn og stuðningsmenn Tottenham upplifðu sig svikna þegar mark var tekið af Randall Kolo Muani í leiknum gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.
Tottenham hefði jafnaði leikinn 2-2 með þessu marki á 53. mínútu, en það var dæmt af vegna bakhrindingar Kolo Muani á miðvörðinn Gabriel. Staðan hélst 1-2 fyrir Arsenal, sem vann leikinn á endanum 1-4. Jöfnumark hefði breytt gangi leiksins mikið og væntanlega blásið lífi í lið Tottenham, en Kjartan Henry Finnbogason segir dómarann Peter Bankes hafa tekið hárrétta ákvörðun, þó viðbrögð Gabriel hefðu ekki þurft að vera svona mikil. „Já. Hann setur báðar hendurnar á bakið á Gabriel. En hann gerir vel líka, Gabriel, hann gerir mikið úr þessu og ég er kannski sammála Tudor [þjálfara Tottenham] að þetta sé dýfa en þú þarft að gera þetta til að fá eitthvað. Dómarinn ætlaði ekki að dæma fyrst, beið í svolitla stund og hugsaði sig tvisvar um, en jú þetta er brot“ sagði Kjartan. Klippa: Rétt ákvörðun að taka markið af Tottenham? Tottenham-menn hafa bent á að sambærilegt atvik kom upp í leik þeirra gegn Liverpool í desember. Þá ýtti Hugo Ekitike augljóslega aðeins í bakið á varnarmanninum Cristian Romero, en markið sem hann skoraði fékk að standa. Ólafur Kristjánsson sagði þá að þó atvikin séu sambærileg, séu þau ekki alveg eins. „Þarna eru tveir að hoppa upp. Það sem við sáum í þessu atviki í dag þá ýtir Kolo Muani í hann áður en þeir fara í loftið. En þetta er mjög sambærileg atriði, og það er það sem maður tuðar alltaf um með dómgæsluna, að það sé samræmi.“ Atvikin og umræðuna má sjá í spilaranum að ofan.
Arsenal FC Tottenham Hotspur Enski boltinn Messan Mest lesið Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Enski boltinn Þjóðarhöllin á að rísa í janúar 2030 Sport Kristall fékk tveggja leikja bann Fótbolti Arnar um pressuna: „Það vilja allir núna vera með hnífana úti“ Sport Lebron talaði hreint út Körfubolti Fleiri fréttir City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Sjá meira