
Sérstakar hleranir og símtölin sem gætu alltaf orðið til
Leki á gögnum frá sérstökum saksóknara er kominn til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi í máli sem má rekja allt aftur til falls bankanna haustið 2008. Hleranir, njósnir, vanhæfi, auðmenn og embættið sem enginn vildi stýra; allt er orðið að miklum graut og margir hættir að skilja málið. Jafnvel Namibíumál Samherja fléttast inn í það.