

Fréttir af flugi
Allt það helsta sem viðkemur flugi.

Sveik peninga út úr Íslandsbanka í háloftunum
Kona á fertugsaldri sveik rúmlega 400 þúsund krónur út úr Íslandsbanka á meðan hún var á ferðalagi með Easy Jet og WOW air. Hún játaði brot sín í héraðsdómi og var dæmt í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Segir 60 prósenta launalækkun aldrei hafa komið til tals
Formaður Félags atvinnuflugmanna segir að ekki hafi komið til tals að flugmenn hjá Icelandair taki á sig fimmtíu til sextíu prósent launalækkun.

Segir að flugfreyjur og flugmenn þurfi að taka á sig allt að 60% launalækkun
Flugfreyjur og flugmenn Icelandair verða að taka á sig 50 til 60% launalækkun til þess að forða flugfélaginu frá gjaldþroti.

Ríkisflugfélag Kólumbíu sækir um gjaldþrotavernd
Ríkisflugfélag Kólumbíu, Avianca, hefur sótt um gjaldþrotavernd fyrir bandarískum dómstólum sem gefur stjórnendum færi á að koma lagi áreksturinn án þess að kröfuhafar geti sótt aðfyrirtækinu á sama tíma.

Flugmenn og Icelandair funda áfram á morgun
Fundi samninganefnda Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) og Icelandair lauk skömmu fyrir klukkan tíu í kvöld. Formaður FÍA segist vongóður um að viðræðurnar séu á réttu spori. Fundað verður áfram á morgun.

Telur Icelandair stefna í gjaldþrot að óbreyttu
Icelandair stefnir að óbreyttu í gjaldþrot að sögn fjármála- og efnahagsráðherra. Ekkert tilefni sé til þess að ríkið gerist hluthafi í félaginu nema í algjörri neyð.

Flugmenn bjóðast til að taka á sig fjórðungslækkun
Félag íslenskra atvinnuflugmanna hefur gert samninganefnd Icelandair tilboð sem felur í sér kjaraskerðingu upp á 25 prósent. Samninganefndir þeirra sitja nú á fundi sem búist er við að standi fram á kvöld.

Flugvirkjar taka á sig skerðingu með samningi við Icelandair
Icelandair ehf. og Flugvirkjafélag Íslands hafa undirritað nýjan kjarasamning á milli félaganna sem gildir til ársloka 2025. Formaður Flugvirkjafélagsins segir félagsmenn taka á sig kjaraskerðingu til að veita sveigjanleika vegna ástandsins.

Flugfreyjufélagið sættir sig ekki við launaskerðingu til langs tíma
Guðlaug Líney Jóhannsdóttir, starfandi formaður Flugfreyjufélags Íslands, segir félagsmönnum sínum brugðið yfir bréfi Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair, þar sem hann segir starfsfólk félagsins helstu fyrirstöðu þess að hægt sé að bjarga félaginu frá falli.

Framtíð Icelandair á bláþræði og aðgerðir stjórnvalda í Víglínunni
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir hundruð milljaðra aðgerðir stjórnvalda þrengja að ríkissjóði í framtíðinni. Hann ræðir framtíð Icelandair og aðgerðapakka stjórnvalda í Víglínunni ásamt Helgu Völu Helgadóttur formanni velferðarnefndar sem einnig gagnrýnir frumvarp um útlendinga harðlega,

Fundi slitið hjá FFÍ og Icelandair án niðurstöðu
Saminganefnd Icelandair gekk út af fundi með samninganefnd Flugfreyjufélags Íslands nú fyrir skömmu.

FFÍ meðvitað um erfiða stöðu Icelandair en segir tillögurnar fela í sér of mikla skerðingu
Flugfreyjufélag Íslands segir þær tillögur sem Icelandair hefur sett á borðið færa flugfreyjur nær þeim kjörum sem þekkjast í vestrænum heimi.

Segir starfsfólk Icelandair vera lausnina, ekki vandamálið
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, virðist ekki vera kátur með þá upplifun forstjóra Icelandair að helsta fyrirstaðan fyrir björgun Icelandair sé starfsfólkið sem starfi hjá fyrirtækinu

Ríkissáttasemjari boðar Flugfreyjufélag Íslands og Icelandair á fund
Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair til fundar klukkan tvö í dag.

Segir starfsfólkið helstu fyrirstöðu þess að Icelandair verði bjargað
Starfsfólk Icelandair er helsta fyrirstaða þess að hægt sé að bjarga Icelandair frá falli, að sögn Boga Nils Bogasonar, forstjóra flugfélagsins, í bréfi til starfsmanna. Hann segir að ljúka verði langtímasamningum við flugstéttir félagsins fyrir föstudaginn 22. maí.

Skrautleg áskorun Ístaks að hefja smíði stærsta skóla Grænlands í veirufaraldri
Ístaksmenn glíma við einhverja skrautlegustu áskorun í sögu fyrirtækisins; að hefja smíði þrettán milljarða króna skólabyggingar á Grænlandi. Starfsmennirnir þurfa að gangast undir tvöfalt veirupróf og vinnusvæðið í Nuuk er sérstök sóttkví.

Flugmönnum boðin sömu laun og vinna þá meira, fara á hlutabótaúrræði eða lækka launin sín
Flugfélagið Air Atlanta bauð flugmönnum sínum að halda óbreyttum launum og vinna umfram vinnuskyldu, fara á hlutabótaleið stjórnvalda eða taka á sig launalækkun. Forstjórinn segir það gert til að takast á við mikið tekjutap vegna kórónuveirufaraldurs.

Bjarni segir eðlilegt að fyrirtæki skili stuðningi stjórnvalda þegar betur árar
Fjármálaráðherra segir til greina komið að fyrirtæki sem nýti sér hlutabætur á uppsagnartíma greiði þær til baka á þremur til fimm árum þegar fyrirtækin fari að skila hagnaði.
Palli hefði getað valið úr flugvélum
Keflavíkurflugvöllur er tómlegur þessa dagana svo vægt sé til orða tekið. Icelandair heldur úti flugi til Stokkhólms, Boston og London en annars er lítið annað en fraktflutningar sem ratar hingað til lands.

Öryggi farþega og starfsmanna á Reykjavíkurflugvelli
Um framtíðarstaðsetningu Reykjavíkurflugvallar hefur lengi verið karpað.

WOW air ræður framkvæmdastjóra Rússlandsflugs
Michele Ballarin, stjórnarformaður nýja WOW air, segir flugfélagið hafa ráðið til sín Dmitry Kaparulin.

1700 farþegar flugu með Icelandair í apríl
Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu þar sem segir að þessi fjöldi farþega endurspegli þá stöðu sem nú ríkir í alþjóðaflugi vegna kórónuveirufaraldursins og þeirra ferðatakmarkana sem eru í gildi núna um allan heim.

Samningur ríkisins við Icelandair um flugferðir framlengdur
Icelandair heldur áfram að bjóða upp á lágmarksflugferðir til þriggja áfangastaða samkvæmt endurnýjuðu samkomulagi við íslensk stjórnvöld. Alls mun félagið fljúga 22 tvær ferðir til og frá landinu til og með 16. maí.

Icelandair verði í skötulíki næsta árið
Stjórnendur Icelandair Group áætla að starfsemi félagsins verði lítil sem engin næstu 12 mánuðina.

Flytja að meðaltali aðeins sautján farþega í hverju innanlandsflugi
Farþegafjöldi í hverju innanlandsflugi bandarískra flugfélaga er að meðaltali aðeins sautján farþegar, 29 ef horft er til alþjóðaflugs sömu flugfélaga.

Icelandair og flugfiskurinn verðmæti
Til að tryggja sem hæst verð fyrir íslenskan fisk þurfa íslenskir fisksölumenn að hafa allar klær úti við að finna kaupendur og koma fisknum til þeirra.

Frá Abu Dhabi til Íslands með lággjaldafélagi og einu stoppi
Lággjaldaflugfélagið Wizz Air mun í sumar hefja flug frá fimm áfangastöðum flugfélagsins í Evrópu til Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

„Það er samfélagsleg nauðsyn að hér sé flugfélag“
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir það markmið stjórnvalda og sína eindregnu skoðun að nauðsynlegt sé að hér sé flugfélag sem sé með höfuðstöðvar og að flugsamgöngum sé ekki haldið uppi með tilviljanakenndum hætti.

Skoða sín mál eftir að hafa flogið smekkfullri vél
Forsvarsmenn írska flugfélagsins Aer Lingus segjast vera með vinnureglur sínar til skoðunar eftir að vél á vegum félagsins flaug full af farþegum í gær.

SAS fær ríkisstyrkta lánalínu
Sænsk og dönsk stjórnvöld hafa nú heimilað lánalínu til SAS flugfélagsins.