Garðabær

Garðabær

Mannfjöldi: 20.116 (2025). Flatarmál: 46 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Kosningapallborð frétta­stofu: Mun Sjálf­stæðis­flokkurinn halda velli í Garða­bæ?

Það styttist óðfluga í sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí og eins og stendur eru þrjár vikur þangað til landsmenn ganga til kosninga. Við höldum áfram að hita upp fyrir stóru stundina og því munu oddvitar þeirra flokka sem bjóða fram í Garðabæ koma saman í kosningapallborði fréttastofu til að ræða þau helstu málefni sem eru undir í kosningunum.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ari Edwald selur í Garða­bænum

Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, hefur sett íbúð sína að Þorraholti í Garðabæ á sölu. Ari festi kaup á íbúðinni síðasta sumar en ákvað svo að bjóða sig fram í sveitarstjórnarkosningunum Reykjavík og er því væntanlega í leit að fasteign í höfuðstaðnum. Hann óskar eftir tilboði í íbúðina.

Lífið
Fréttamynd

Sögu­frægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru

Íbúar í Garðabæ hafa margir hverjir lýst yfir áhyggjum af niðurníðslu húsa á Vífilsstöðum, sem að margra mati voru virðuleg hér áður fyrr. Börn og ungmenni hafa gert það að vana sínum að brjótast inn í húsin en Garðabær og talsmenn Landspítalans segjast kappkosta að tryggja öryggi á svæðinu. Áform eru um að gera húsin upp í sinni upprunalegu mynd í samráði við Minjastofnun.

Innlent
Fréttamynd

Voru send í skólasund eftir slysið

Neyðarlínan segist ekki hafa fengið fullnægjandi upplýsingar þegar bíll gjöreyðilagðist eftir aftanákeyrslu á hópferðabíl fullum af börnum fyrir tæpum tveimur vikum. Sjúkrabíll hefði verið sendur samstundis á vettvang hefðu þær borist. 

Innlent
Fréttamynd

Ó­sátt með á­byrgðar­leysi eftir að börn lentu í bíl­slysi á skóla­tíma

Foreldrar barna í Urriðaholtsskóla saka skólann og Garðabæ um ábyrgðarleysi eftir að börnin þeirra lentu í árekstri á leið í skólasund. Börnin voru send fótgangandi í sund og þegar eitt foreldrið bað um að haldinn yrði foreldrafundur sagði skólastjórinn ekki telja ástæðu til. Þau ætla að biðja um fund með Garðabæ til að fá lausn í málinu.

Innlent
Fréttamynd

Ekki er allt sem sýnist í rekstri Garða­bæjar

Í yfirlýsingum bæjaryfirvalda í Garðabæ er rætt um sterkan rekstur og trausta afkomu. Þegar fjárhagsáætlunin er skoðuð nánar kemur annað í ljós. Tekjumódelið byggir of mikið á sölu lóða til að fegra myndina, og ef byggingamarkaðurinn kólnar, eins og fleiri og fleiri vísbendingar gefa til kynna, mun það bitna á þjónustu bæjarins, sem íbúar reiða sig á.

Skoðun
Fréttamynd

Fjölga plássum og breyta nafni eins leik­skóla

Fjölga á leikskólaplássum á Hjallastefnuleikskóla í Garðabæ um 30 á næsta ári. Garðabær og Hjallastefnan hafa undirritað samkomulag um áherslur uppbyggingar skólasamfélags Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum. 

Innlent
Fréttamynd

Ekið á skólarútu

Eitthvað var um meiðsli að sögn lögreglu eftir að ekið var á skólarútu í umdæmi lögreglustöðvar tvö sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði og Garðabæ.

Innlent
Fréttamynd

Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn

Brynju Dan Gunnarsdóttur hefur verið gert að víkja sem oddviti Framsóknar í Garðabæ. Hún segist hvorki munu taka sæti á lista flokksins í komandi kosningum né styðja flokkinn á nokkurn hátt. 

Innlent
Fréttamynd

Segir gæði sér­náms heimilis­lækna í hættu

Gunnar Þór Geirsson, formaður félags íslenskra heimilislækna, segir ekki raunsætt að fólk fái tíma hjá heimilislækni innan fimm daga eins og viðmið landlæknis geri ráð fyrir. Hann kallar eftir því að sérnám heimilislækna verði styrkt, gæði námsins sé í hættu.

Innlent
Fréttamynd

Miðflokkur kynnir sex efstu í Garða­bæ

Efstu sex sæti Miðflokksins í Garðabæ hafa verið staðfest af stjórn kjördæmafélags Suðvesturkjördæmis. Lárus Guðmundsson, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu, verður áfram oddviti flokksins.

Innlent
Fréttamynd

Brynja Dan í ó­vissu um oddvitasætið í Garða­bæ

Það stefnir í talsverða spennu hjá Framsóknarflokknum í Garðabæ á laugardag þegar uppstillingarnefnd kynnir lista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Eins og staðan er í dag er vitað til þess að tveir hafi boðið sig fram sem oddvita flokksins, Brynja Dan Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi flokksins í Garðabæ, og Hlynur Bæringsson varamaður hennar.

Innlent
Fréttamynd

Þessi leiða Við­reisn í Garða­bæ

Guðlaugur Kristmundsson bæjarfluttrúi, Harpa Þorsteinsdóttir varabæjarfulltrúi, Jón Bjarni Steinsson lögfræðingur, skipa efstu þrjú sætin á lista Viðreisnar í Garðabæ í komandi sveitarstjórnarkosningum. 

Innlent