

Fréttir og úrslit úr heimi golfsins.
Darren Clarke missir af Masters-mótinu í golfi sem hefst á Augusta-vellinum á fimmtudag. Meiðsli í læri er ástæða þess að Norður-Írinn hefur orðið að draga sig úr keppni.
Bandaríkjamennirnir Stewart Cink og Bill Haas eru með eins höggs forskot fyrir síðasta hringinn á opna Houston-mótinu í golfi sem fer nú fram um páskahelgina. Báðir hafa þeir félagar leikið þrjá fyrstu hringina á 11 höggum undir pari.
Bandaríkjamaðurinn D.A. Points er með eins höggs forystu eftir fyrsta daginn á Houston Open golfmótinu en það gekk ekki vel hjá Rory McIlroy í tilraun sinni til að endurheimta efsta sæti heimslistans af Tiger Woods. Tiger tók fyrsta sætið af McIlroy á mánudaginn.
Tiger Woods fagnaði sigri á Bay Hill PGA-mótinu í golfi í dag og endurheimti þar með toppsæti heimslistans í golfi eftir þriggja ára bið.
Spænski atvinnukylfingurinn Sergio Garcia vakti mikla athygli í gær á Arnold Palmer golfmótinu í gær þegar hann elti kúluna sína upp í tré og sló þaðan sitt annað högg á tíundu holu.
Tiger Woods er í góðum málum á Arnold Palmer golfmótinu í Flórída en það tókst þó ekki að klára leik í gær vegna þrumuveðurs sem gekk þá yfir á Bay Hill vellinum í Orlando.
Bandaríkjamaðurinn Nicholas Thompson átti eitt af höggum ársins á PGA-mótaröðinni í gær. Hann er við keppni á Arnold Palmer Invitational mótinu sem fram fer á Bay Hill vellinum í Flórída.
Tiger Woods lék mjög vel á þriðja hring á Arnold Palmer Invitational mótinu sem fram fer í Flórída. Woods er samtals á 11 höggum undir pari eftir að hafa leikið þriðja hringinn á 66 höggum eða sex höggum undir pari. Woods er tveimur höggum á undan Justin Rose, John Huh og Rickie Fowler.
Tiger Woods er fjórum höggum á eftir efstu mönnum á Arnold Palmer boðsmótinu en annar hringurinn var leikinn í gær. Tiger endaði hringinn á þremur skollum og það kom honum í bobba.
Hinn 83 ára gamli Arnold Palmer, einn besti kylfingur allra tíma, er með golfmótið sitt í gangi þessa dagana. Það verður mikið um að vera á Bay Hill í kringum mótið og Palmer gamli nýtur lífsins.
Tiger Woods fór nokkuð vel af stað á Arnold Palmer Invitational-mótinu. Hann kom í hús á 69 höggum, eða þrem höggum undir pari, en það setur hann meðal efstu manna.
Kylfingurinn Tiger Woods og skíðakonan Lindsey Vonn hafa nú staðfest samband sitt en þau birtu myndir af sér saman í dag inn á fésbókarsíðu Tiger Woods. Bæði eru þau í hópu besti íþróttamanna í sinni grein frá upphafi og vekur samband þeirra því heimsathygli.
Einn af hörðustu aðdáendum Tiger Woods er farinn að vekja mikla athygli á internetinu. Hann öskrar alltaf nöfn á mat eftir að Tiger slær boltann.
Tiger Woods vann sitt annað mót á árinu þegar hann bar sigur úr býtum á móti í heimsmótaröðinni í golfi á Flórída um helgina.
Tiger Woods er í góðri stöðu fyrir lokadaginn á WGC Cadillac Meistaramótinu í golfi sem fram fer á Blá Skrímslinu í Flórida nú um helgina. Woods lék þriðja daginn á 67 höggum og jók forystu sína úr tveimur í fjögur högg.
Tiger Woods lék annan hringinn á WGC-Cadillac Meistaramótinu á 65 höggum og náði tveggja högga forystu á Norður-Írann Graeme McDowell en leikið er á TPC Bláa Skrímslinu í Flórída.
Tiger Woods er í forystuhópnum eftir fyrsta dag á Cadillac Championship mótinu í Doral í Flórída í Bandaríkjunum en mótið er hluti af Heimsbikarmótunum.
Rory McIlroy, efsti kylfingurinn á heimslistanum í golfi, sér eftir því að hafa hætt keppni á miðjum öðrum hring á Honda Classic mótinu í Flórída í síðustu viku. McIlroy gaf þá skýringu þá að hann væri að drepast úr tannpínu en segir það hafa verið seinni tíma afsökun.
Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, var kjörinn vallarstjóri ársins 2012 þegar Samtök íþrótta og golfvallastarfsmanna (SÍGÍ) héldu ráðstefnu um uppbyggingu og viðhald golf og knattspyrnuvalla á laugardaginn.
Besti kylfingur heims, Rory McIlroy, gafst upp og gekk af velli eftir aðeins átta holur á öðrum hring Honda Classic-mótsins.
Kylfingurinn Tiger Woods er engum líkur. Hann bjargaði pari í gær á Honda Classic-mótinu eftir að hafa lent út í vatni.
Tveir bestu kylfingar heims samkvæmt opinbera heimslistanum, Norður-Írinn Rory McIlroy og Bandaríkjamaðurinn Tiger Woods, fóru ekki langt í Heimsmeistaramótinu í holukeppni sem fram fór á dögunum í Arizona í Bandaríkjunum.
Skilnaður Tiger Woods og Elin Nordegren var ansi hávaðamikill og lítið hefur heyrst af samskiptum þeirra síðan Elin lét sig hverfa með hvelli árið 2009.
Ólafur Þór Ágústsson, framkvæmdastjóri Keilis, tók um helgina við sem formaður FEGGA. Ólafur hefur verið varaformaður samtakanna síðustu tvö ár.
Accenture Match Play Championship golfmótið á Heimsmótaröðinni er í fullum gangi þessa dagana. 64 kylfingar hófu mótið en nú eru aðeins fjórir kylfingar eftir sem mætast í undanúrslitum í dag.
Aflýsa varð síðasta hringnum á móti í eGolf-mótaröðinni í Suður-Karólínu vegna mikillar rigningar í gær en tveir íslenskir kylfingar tóku þátt í mótinu.
Ólafur Björn Loftsson hélt uppteknum hætti á móti á eGolf-mótaröðinni í Bandaríkjunum í gær en hann er í öðru sæti þegar mótið er hálfnað.
Afar óvænt úrslit urðu á fyrsta keppnisdegi heimsmótsins í holukeppni en þá féllu þeir Tiger Woods og Rory McIlroy báðir úr leik.
Birgir Leifur Hafþórsson og Ólafur Björn Loftsson fara vel af stað á móti í eGolf-mótaröðinni í Bandaríkjunum.
Tiger Woods spilaði merkilegan golfhring um síðustu helgi en hann fékk þá tækifæri til þess að spila með sjálfum Bandaríkjaforseta, Barack Obama, en þeir spiluðu saman í Flórída og fengu engir fjölmiðlamenn að fylgjast með golfinu.