Frá Hippókratesi til Matthildar Í dag hafa fjölmargir bæst í hóp þeirra sem starfa í anda náttúrulækningastefnunnar og sinna heildrænni heilsufræði. Matthildur Þorláksdóttir náttúrulæknir er þeirra á meðal en hún rekur náttúrulækningastofu og matstofu í Grafarvogi. Heilsuvísir 7. október 2006 07:00
Á gjörgæslu vegna fæðuóþols Litli strákurinn minn byrjaði að fá magakveisu níu mánaða. Þá byrjaði ég að gefa honum sojajógúrt og graut. Hafði bara fengið brjóstamjólk, ávexti og grænmeti fram að því. Honum leið skelfilega, kúkaði blóði og grenjaði marga tíma á dag. Fór með hann til læknis en þeir fundu ekkert. Leitaði ráða hjá Möttu. Hann var þá með glútenóþol og sojaóþol. Heilsuvísir 7. október 2006 07:00
Segir fyrir um sjúkdóma Hugmyndin að tækinu byggir á hinni 5000 ára gömlu kenningu kínverskra lækninga um orkubrautir líkamans. Þannig er að hvert hinna stærstu líffæra á sína orkubraut í báðum hliðum líkamans – þar eru orkubrautir lifrar og galls, hjarta og blóðrásar, ristils og smáþarma, lungna, maga, þvagblöðru og nýrna, milta og briss. Heilsuvísir 7. október 2006 07:00
Kraftaverkakonan með tækið Fæðan er orðin svo mikið unnin hjá okkur - niðursoðin, hreinsuð, klóruð, söltuð, fitusprengd, lituð og sykruð. Svo er verið að auka framleiðsluna og þá eru notuð efni og aðferðir sem hafa áhrif á fæðuna – hormón, eitur og hver veit hvað. Heilsuvísir 7. október 2006 07:00
Ég var í tossabekk Já, fjölgreindarkenningin breytti öllu. Nú höfum við vísindalegar sannanir fyrir því að félags- og tilfinningaþroskinn segir best til um velgengni í lífinu. Og svo kom það líka í ljós eftir allt saman að heilinn virkar ekki vel þegar við erum óörugg og hrædd. Og fullur haus af niðursoðinni þekkingu hjálpar manni ósköp lítið á upplýsingaöld. Það eina sem raunverulega skiptir máli er hvernig okkur líður. Heilsuvísir 30. september 2006 07:00
Heilræðavísur í anda lífsleikninnar Ungum er það allra best -- Að eiga val sem allra mest -- Að leika sér útum allar trissur -- Og óttast hreint ekki að gera skyssur. -- Að lesa og skrifa list er góð -- En líka að dansa og yrkja ljóð -- Að kunna að ærslast og eignast vini -- Ýmist af sam- eða gagnstæðu kyni. Heilsuvísir 30. september 2006 07:00
Lífsleikni eykur sjálfsvitund og samhygð Lífsleikni hefur fyrst og fremst að gera með félags- og tilfinningaþroska og er m.a. ætlað að auka sjálfsvitund og samhygð, góð tjáskipti og skapandi hugsun. Heilsuvísir 30. september 2006 07:00
Hjón á miðjum aldri óska eftir svefni Þegar fjórða stelpan mín mætti í þennan heim var hún ekki viss um að þetta væri öruggur staður. Strax í móðurkviði hafði hún upplifað kvíðakast hjá móður sinni. Hún hafði tekið til sín ótta og spennu ... og kannski svolítið óæskilega mynd af jarðlífinu. Sú litla taldi því öruggast að vera við brjóstið á mömmu sinni. Heilsuvísir 23. september 2006 07:00
Efni, orka og andi Höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð er heildrænt meðferðarform sem á sér rætur í hefðbundnum vestrænum vísindum. Heilsuvísir 23. september 2006 07:00
Saga og þróun Höfuðbeina- og spjaldhryggsmefðerð hefur verið að þróast alla síðustu öld út frá vinnu og uppgötvunum þriggja lækna; A. T. Still, William Sutherland og Dr. John E. Upledger. Heilsuvísir 23. september 2006 07:00
Í sjúkrabíl á 4 fótum Það hefur oft verið kallað á sjúkrabíl á mínu heimili – við fíflumst með þetta viðkvæma mál og þykjumst vita að á 112 sé búið að koma upp sérstökum útkallsflokki sem kallist “Ásdísarútkall”. Ég fæ nefnilega kvíðaköst eða – ég fékk kvíðaköst. “Ykkur er óhætt að fara í kaffi strákar – það er ekki von á Ásdísarútkalli í bráð.” Heilsuvísir 16. september 2006 09:00
45% þjóðarinnar fær sjúklegan kvíða Margir vita ekki að þeir eru með kvíðaröskun og enn fleiri halda því leyndu. Fæstir vita að til eru einfaldar og góðar aðferðir til að losna undan kvíðanum og verða betri en nokkru sinni fyrr. Fylgist með athyglisverðri umræðu um kvíða í Mannlega þættinum á NFS í dag kl 10:00. Heilsuvísir 16. september 2006 09:00
Hugræn atferlismeðferð Hugræn atferlismeðferð fer fram í hópi og byggist á fræðslu og heimaverkefnum, þar sem kenndar eru aðferðir til að takast á við kvíða og þunglyndistilfinningar. Í hverjum hópi eru 15-25 þátttakendur en tveir sálfræðingar veita meðferðina. Meðferðin fer fram einu sinni í viku, tvær stundir í senn, í fimm vikur. Áður en meðferðin hefst fær hver þátttakandi einstaklingsviðtal hjá sálfræðingi, þar sem vandi hans er metinn. Heilsuvísir 16. september 2006 07:00
Minnkar líkur á heilabilun Regluleg hreyfing fólks á miðjum aldri minnkar líkurnar á heilabilun í ellinni. Niðurstöður nýrrar rannsóknar sænskra lækna benda til þess að þeir sem hreyfi sig í hálftíma minnst tvisvar í viku á fimmtugsaldri minnki líkurnar á heilabilun á eldri árum um helming. Menning 4. október 2005 00:01
Insúlín í æð liðin tíð? Allt útlit er fyrir að fólk með sykursýki muni í nánustu framtíð ekki lengur þurfa að sprauta sig með insúlíni á hverjum degi. Lyfjanefnd á vegum stjórnvalda í Bandaríkjanna lagði í gær blessun sína yfir insúlín sem tekið er inn í gegnum munn í stað þess að sprauta því í æð. Menning 9. september 2005 00:01
Spriklar í golfi á sumrin Jón Ingi Hákonarson, leikari, mun stjórna íslenska Bachelornum á SKJÁEINUM í haust, en stressar sig þó ekki á því að koma sér í form fyrir það.</font /></b /> Menning 16. ágúst 2005 00:01
Innblástur er allt Undirbúningshópur fyrir Íslandsbanka Reykjavíkurmaraþon hefur hlaupið í einar tólf vikur og á laugardaginn uppsker hópurinn árangur erfiðis síns.</font /></b /> Menning 16. ágúst 2005 00:01
Menn verða að þekkja sín takmörk Georg Ögmundsson hefur krafta í kögglum enda er hann iðinn við að lyfta lóðum. Hann hefur keppt í aflraunum erlendis í sumar og gert það gott. </font /></b /> Menning 16. ágúst 2005 00:01
Partý, stuð og sviti í ræktinni Líkamsrækarstöðvarnar Bjarg á Akureyri og Hress í Hafnarfirði bjóða nú upp á kennslu í Body Jam. Um er að ræða nýtt líkamsræktarprógramm sem er um það bil að slá í gegn. </font /></b /> Menning 6. júlí 2005 00:01
Ætlar að ná tveggja stafa tölu Davíð Smári Harðarson, Idol-stjarna og tónlistarmaður, hefur tekið sig rækilega í gegn síðan Idol-keppninni lauk og hefur svo sannarlega breytt um lífsstíl.</font /></b /> Menning 6. júlí 2005 00:01
Sojabaunir slæva frjósemina Ný bresk rannsókn bendir til þess að frjósemi karlmanna kunni að minnka ef þeir borða sojabaunir og tófú. Þessi matvæli innihalda efni sem virðist hafa mjög sterk áhrif á sæði í karlmönnum. Menning 23. júní 2005 00:01
Afstaða tekin til lífs og dauða Unnið er að því hjá Landlæknisembættinu að koma á fót sérstakri líknaskrá undir heitinu Lífsskrá sem mun meðal annars geyma upplýsingar um viljuga líffæragjafa.</font /></b /> Menning 20. júní 2005 00:01
Fá útrás fyrir keppnisskapið Hjónin Brynja og Jón iðka veggtennis daglega ásamt börnum sínum þremur: Rósu, Þorbirni og Matthíasi. Þau eru sammála um að veggtennis sé hin besta líkamsrækt. </font /> </font /></b /></b /> Menning 20. júní 2005 00:01
Vináttan lengir lífið Gamalt fólk sem á vini er líklegra til að njóta lífsins og lifir lengur en þeir vinafáu. </font /></b /> Menning 20. júní 2005 00:01
Meðgöngusykursýki getur skaðað Óléttar konur sem fá meðgöngusykursýki verða að hljóta stífa meðferð eigi börn þeirra að verða heilbrigð. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar ástralskra lækna. Menning 13. júní 2005 00:01
Hristir af sér vetrarforðann Guðlaugur Þór Þórðarson leggur mikið upp úr hreyfingu og finnst fjölbreytni mikilvæg</font /></b /> Menning 7. júní 2005 00:01
Mikilvægt að vera í góðu formi Björgvin Franz Gíslason leikari hreyfir sig reglulega og passar upp á heilsuna</font /></b /> Menning 7. júní 2005 00:01
Tónlist og teygjur fara vel saman Sinfóníuhljómsveit Íslands gerir teygjuæfingar í kaffitímunum </font /></b /> Menning 24. maí 2005 00:01
Aspirín hættulegt eldra fólki Fólk yfir sjötugu ætti ekki að taka inn aspirín þar sem það getur valdið blæðingum í maga og heila. Læknar í Ástralíu hafa undanfarið rannsakað áhrif aspiríns á eldra fólk og komist að því að ekki sé ráðlegt fyrir það að taka inn lyfið, nema undirgangast ítarlega skoðun fyrst. Menning 20. maí 2005 00:01
Klífur Esjuna þrisvar í viku Að skokka, synda, skíða og hjóla. Allt þetta og fleira til notar Guðmundur Gunnarsson verkalýðsforingi til að efla heilsu sína bæði líkamlega og andlega. </font /></b /> Menning 18. maí 2005 00:01