Heilsa

Heilsa

Allt um heilsu, hreyfingu og hollan mat

Fréttamynd

Trúir ekki á megrunarkúra

"Ég er reyndar ekki í ræktinni núna þó að ég myndi glöð vilja segjast fara alla daga. En ég er að safna mér fyrir korti í Nordica. Ég prófaði það í tvo mánuði og fannst það æðislegt. Ég þarf að hafa dekur með ef ég fer í ræktina - annars fer ég ekki.

Menning
Fréttamynd

Hollywood-kúrinn tekinn úr umferð

Innflytjendum Hollywood-kúrsins hefur verið synjað um leyfi til að markaðssetja hann af Umhverfisstofnun. Innflytjandinn hefur samkvæmt Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis fjarlægt drykkinn af sölustöðum.

Menning
Fréttamynd

Leikum okkur með líkamann

"Að kenna börnum jóga felst að nokkru í því að gera æfingarnar skemmtilegar og skapa úr þeim leik þannig að þau verði aldrei leið. Við leikum okkur með líkamann, hermum eftir dýrum, búum til sögur og segjum þær með jógastöðum.

Menning
Fréttamynd

Eitt tonn af spiki

"Við opnuðum í september og viðtökurnar hafa verið fínar," segir Georg Ögmundsson sjúkraþjálfari í Orkuverinu sem er ný líkamsrækt í Egilshöllinni. Tímaritið <strong>Magasín</strong> fylgir <strong>DV</strong> á fimmtudögum.

Menning
Fréttamynd

Baðstofan eins og nýr heimur

Ég æfi í World Class í Laugum og er með kort sem veitir mér aðgang í baðstofuna sem er eitt það besta sem gerst hefur á Íslandi. Baðstofan hefur svo sannarlega gert lífið betra. Það er yndislegur staður og hann gerir það að verkum að ég fer oftar í ræktina. 

Menning
Fréttamynd

Tekur tonn af fitu af landsmönnum

 "Systur mínar, Sara og Halldóra Ögmundsdætur, reka stöðina með mér og svo sýnir náttúrlega restin af fjölskyldunni mikinn stuðning. Það er bæði gott og slæmt að vinna með systrum sínum. Þá er stundum óþarfa hreinskilni en það verða að minnsta kosti ekki varanleg vinaslit.

Menning
Fréttamynd

Fitnessdrottning opnar fataskápinn

"Maðurinn minn er duglegur að kaupa handa mér föt enda þekkir hann mig vel og veit alveg hvað ég vil," segir fitness drottningin Freyja Sigurðardóttir. Freyja gengur aðallega í íþróttafötum enda æfir hún daginn út og daginn inn auk þess sem hún starfar sem einkaþjálfari í Perlunni í Keflavík.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Áhersla lögð á sjálfstyrkingu

"Kennd verða námskeið sem eru 5 vikna löng en fólk getur hagað tíma sínum eins og það vill. Það velur einfaldlega hversu oft það vill vera í viku og á hvaða tímum það vill mæta og borgar svo námskeiðsgjaldið samkvæmt því, " segir Guðbjörg Ósk eigandi nýja Rope Yoga-stúdíósins og eini kennari þess

Menning
Fréttamynd

Svefnleysi skerðir lífsgæði

Öll þekkjum við hversu vont það er að sofa illa, hvað þá að ná ekki að festa svefn heilu næturnar. Svefnleysið, sem hrjáir margan Íslendinginn, skerðir lífsgæði hans til muna. Fréttamaður Stöðvar 2 kannaði þessi mál í dag og leitaði leiða til að losna við andvökunæturnar. 

Menning
Fréttamynd

Farandleikari á ferð og flugi

Pétur Eggerz Möguleikhússtjóri segist ekki gera neinar stórkostlegar ráðstafanir til heilsuræktar. "Það er helst að ég reyni að fara í sund á hverjum morgni. Ég fer ýmist í Breiðholtslaugina, sem er rétt hjá heimili mínu, eða Sundhöllina, sem er rétt hjá vinnunni. 

Menning
Fréttamynd

Fjórða hamingjusamasta þjóðin

Íslendingar ættu að gleyma París og New York í leitinni að hamingjunni og vera frekar heima hjá sér eða fara til Danmerkur eða Írlands. Íslendingar eru fjórða hamingjusamasta þjóð í heimi samkvæmt nýjum lista yfir hamingju hundrað og tólf þjóða.

Menning
Fréttamynd

Deilt um hvert sé rétta mataræðið

Viltu lifa lengi? Reykta kjötið um jólin hefur líklega ekki lengt lífið en vín og dökkt súkkulaði gætu hafa vegið á móti. Þeir sem gæddu sér líka á ávöxtum og grænmeti eru vel staddir því rétta matarætið gæti dregið úr tíðni hjartasjúkdóma um allt að þrjá fjórðu.

Menning
Fréttamynd

Nýjasta æðið í líkamsræktinni

Nú þegar margir vilja fara leggja drög að heilbrigðu líferni, eftir freistingar og syndir jólahátíðanna, er gott að vita til þess að æfingar ríka og fallega fólksins eru nú orðnar aðgengilegar almenningi. Tímaritið <strong>Magasín</strong> fylgir DV í dag.

Menning
Fréttamynd

Reykingar hafa áhrif á námsárangur

Börn sem verða fyrir óbeinum reykingum á unga aldri standa sig verr í skóla en önnur börn samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar. Rannsóknin, sem náði til 4400 barna í Bandaríkjunum, leiddi í ljós að jafnvel óbeinar reykingar í litlu magni leiddu til fylgni við slakari árangur í lestri og stærðfræði.

Menning
Fréttamynd

Vaxandi örorka vegna sykursýki

Algengi offitu og sykursýki henni tengdri hefur farið vaxandi á Íslandi á undanförnum árum. Svo virðist sem algengi örorku vegna sykursýki hafi einnig vaxið.

Menning
Fréttamynd

Ný sundlaug og stærri salir í Laug

"Á annan í jólum fengum við 900 manns hingað og var þó bara opið frá 10-18. Það segir mér að fólk komi vegna þess að því þyki gaman en ekki bara til að púla," segir Björn Leifsson framkvæmdastjóri í World Class í Laugardal. 

Menning
Fréttamynd

Inflúensan komin á kreik

Inflúensan er komin hingað til lands og tilfellunum fjölgar jafnt og þétt að sögn Haraldar Briem sóttvarnarlæknis. "Það er svona stígandi í þessu. Yfirleitt tekur 6 til 8 vikur fyrir svona inflúensufaraldur að ganga yfir þannig að reikna má með því að það verði talsvert mikið um lasleika nú í janúar.

Menning
Fréttamynd

Golffíkill í fitubollubolta

"Ég er mikið í golfi og stunda fótbolta einu sinni í viku. Ég fer alltof lítið í ræktina finnst mér en það er vegna þess að það er mikið að gera hjá mér. Ég er með lítinn grísling heima sem var að verða eins árs þannig að ég er heima hálfan daginn og hálfan daginn í vinnunni," segir Jón Gunnar.

Menning
Fréttamynd

Engin leyfi til vítamínbætingar

Nýr vítamínbættur gosdrykkur, Kristall Plús frá Ölgerð Egils Skallagrímssonar, hefur verið settur á markað. Ekki hefur verið sótt um leyfi til vítamínbætingar drykkjarins til Umhverfisstofu. Almennt gildir þó sú regla að ekki eigi að vítamínbæta matvæli án leyfis að sögn Elínar Guðmundsdóttur, forstöðumanns matvælasviðs Umhverfisstofu.

Menning
Fréttamynd

Djúpsteikt Mars vinsælt

Greint er frá rannsókn á matarvenjum Skota á heilsuvef Yahoo. Fylgst var með þrjú hundruð skoskum verslunum sem selja fisk og franskar en djúpsteikt Mars-súkkulaði er mjög vinsælt á þessum slóðum.

Menning
Fréttamynd

Húsdýr í sprengjuregni

Dýr bera lítið skynbragð á það hvort hvellir, sprengingar og eldglæringar eru eldgos, stríðsátök eða gamlárskvöld. Gælu- og húsdýraeigendur verða því að sinna dýrunum sínum sérstaklega vel þegar áramótasprengingarnar ganga í garð. Sif Traustadóttir hjá Dýralæknastofu Dagfinns gefur góð ráð varðandi dýrin okkar yfir áramótin: 

Menning
Fréttamynd

Hressir hjólamenn

"Við erum nokkrir galvaskir hjólreiðakappar sem keppum innanlands og erum að reyna að koma okkur allhressilega á kortið. Við erum með bikarmeistara í hjólreiðum síðasta árs í okkar röðum og þessi klúbbur er fullur af ungum og efnilegum hjólreiðamönnum," segir Guðni Dagur Kristjánsson, stjórnarformaður félagsins.

Menning
Fréttamynd

Styrkir ónæmiskerfið

Sólhattur er ein þeirra jurta sem menn hafa gripið til í þeim tilgangi að styrkja ónæmiskerfið og þá sérstaklega á veturna þegar kvef og flensa er algengt vandamál. Indíánar Norður-Ameríku þekktu Echinacea eða sólhatt vel og notuðu hann til að lækna sár, skordýrabit og sjúkdóma. 

Menning
Fréttamynd

Nýtt lyf við sykursýki 1

Nýtt lyf sem gæti læknað sykursýki 1 verður prófað á sjúklingum innan tíðar. Vísindamenn við Kings College í Lundúnum og Bristol-háskóla hafa valið 72 sjúklinga sem munu reyna lyfið í vor. Vonir standa til að lyfið stöðvi eyðileggingu á frumunum sem framleiða insúlín, en insúlín er manninum nauðsynlegt til að brjóta niður sykur. 

Menning
Fréttamynd

Nýr vaxtarstuðull ungbarna

Allir sem þekkja til ungbarnaeftirlits hér á landi kannast við vaxtarkúrfuna sem notuð er til að mæla hæð og þyngd barna. Vaxtarstuðullinn kemur frá Svíþjóð og þótt hann eigi ágætlega við íslensk börn er ekki sömu sögu að segja um börn af erlendum uppruna sem iðulega ná ekki upp í lægstu staðalfrávik.

Menning
Fréttamynd

Spor liggja í allar áttir

"Fyrir mér er þetta bara svo spennandi vinna að svo mörgu leyti. Með gerð Íslendingabókar var sett saman rannsóknartæki sem gagnast ekki aðeins við rannsóknir á meingenum, heldur reynist líka geysiöflugt tæki til að rannsaka íslenska sögu," segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.

Menning
Fréttamynd

Minnistöflur í daglegu amstri

"Ég er náttúrlega með stóra fjölskyldu og í fullri vinnu þannig að ég þarf á því að halda að vera hraust," segir Bryndís. "Ég fer því í leikfimi að meðaltali fjórum sinnum í viku og passa vel upp á mataræðið.  

Menning
Fréttamynd

Sneiðum hjá spikinu

Offita er vaxandi vandamál á Íslandi og víst er að margir munu bæta á sig ófáum kílóum um jólin. Guðrún Þóra Hjaltadóttir hefur nokkur ráð handa landsmönnum í þessum efnum enda er henni umhugað um fræðslu um hollustu.

Menning
Fréttamynd

Díoxín skaðlegt en ekki banvænt

Díoxín komst í fréttirnar eftir að austurrískir læknar staðfestu að það hefði verið notað til að eitra fyrir úkraínska stjórnarandstöðuleiðtoganum Viktor Júsjenkó. Það olli því að andlit hans breyttist svo mjög að það varð í raun óþekkjanlegt; grátt, guggið og fullt af útbrotum.

Menning
Fréttamynd

Dagreykingamönnum fækkar mjög

Innan við fimmtungur Íslendinga á aldrinum 15-89 ára reykja daglega samkvæmt niðurstöðum þriggja kannana á tóbaksnotkun hér á landi sem lýðheilsustöð hefur látið taka saman. Til samanburðar reyktu um 30% fólks á þessum aldri daglega fyrir tólf árum síðan. Í aldurshópnum 30-40 ára reykja helmingi færri nú en árið 1992.

Menning