

Íslenski boltinn
Fréttir, beinar lýsingar, úrslit og myndbönd úr efstu deildum í fótbolta á Íslandi.

Umfjöllun og viðtöl: Valur-ÍBV 1-1| Ásdís Karen tryggði Val stig í uppbótartíma
Valskonum tókst að kreista stig gegn ÍBV á heimavelli. Ásdís Karen Halldórsdóttir jafnaði leikinn í uppbótartíma en ÍBV hafði verið marki yfir frá því í byrjun síðari hálfleiks.

Rekinn eftir aðeins fjórar umferðir
Eiði Ben Eiríkssyni hefur verið sagt upp störfum sem þjálfara Lengjudeildarliðs Þróttar Vogum.

Guðjón Pétur og Hermann ná sáttum
Guðjón Pétur Lýðsson, leikmaður ÍBV, og Hermann Hreiðarsson, þjálfari liðsins, hafa náð sáttum eftir að sauð upp úr á milli þeirra tveggja í leik liðsins í Bestu deild karla í fótbolta nýverið. Í kjölfarið var Guðjón Pétur settur í vikustraff en hann segir nú málið úr sögunni.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss-KR 3-1 | Öruggur sigur Selfyssinga
Selfoss vann öruggan 3-1 sigur er liðið tók á móti KR í sjöundu umferð Bestu-deildar kvenna í kvöld. Sigurinn lyfti Selfyssingum upp í annað sæti deildarinnar, en KR-ingar sitja sem fastast á botninum.

Arnar: Að mörgu leyti okkar besti leikur í sumar
Arnar Páll Garðarson, annar af þjálfurum KR, var að vonum svekktur með 3-1 tap liðsins á Selfossi í kvöld. Hann segist þó hafa verið ánægður með frammistöðuna hjá liðinu.

Umfjöllun og viðtöl: Afturelding-Breiðablik 1-6 | Bikarmeistararnir gerðu góða fer í Mosó
Breiðablik gerði góða ferð í Mosfellsbæ í kvöld þegar þær mættu Aftureldingu í 7. umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu fyrr í kvöld. Leikar enduðu 1-6 fyrir Blika sem fara í 12 stig fyrir vikið og lyfta sér upp í efri helming deildarinnar.

Umfjöllun og viðtöl: Þróttur R. 0-1 Stjarnan | Þrótturum misstókst að sækja toppsætið
Stjarnan vann í kvöld 0-1 útisigur á Þrótti á Eimskipavellinum í sjöundu umferð Bestu deildar kvenna. Gyða Kristín Gunnarsdóttir skoraði eina mark leiksins.

Umfjöllun og viðtöl: Þór/KA 3-2 Keflavík | Akureyringar fá stigin þrjú
Þór/KA vann Keflavík í fjörugum leik á Salt-Pay vellinum á Akureyri í Bestu deild kvenna í kvöld. Lokatölur 3-2.

Ísak Snær ekki með gegn Val | Atli Hrafn aftur í bann
Aganefnd Knattspyrnusambands Íslands hefur birt lista yfir þá leikmenn og þjálfara Bestu deildar karla sem verða í leikbanni er deildin hefst á nýjan leik um miðjan júní eftir landsleikjahlé. Markahæsti maður deildarinnar er þar á meðal.

Þungavigtin: „Held að hann sé betri kostur en Heimir Hallgrímsson“
Slæmt gengi Vals og möguleg þjálfarabreyting hjá liðinu var meðal þess sem var til umræðu í nýjasta þætti hlaðvarpsins Þungavigtin.

Óskar Hrafn um Ísak Snæ: „Þurfti að leysa þessa orku, kraft og styrk úr læðingi“
„Það er erfitt að segja. Ég var ekki til staðar upp á Skaga en ég held í fyrsta lagi hafi hann ákveðið að nú væri kominn tími til að gera allt sem í hans valdi stæði til að vera í eins góðu formi og kostur er,“ segir Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, um Ísak Snæ Þorvaldsson, markahæsta mann liðsins.

Slapp með skrekkinn: „Hefði ég ekki náð því væri verið að setja mig saman eins og einhverja Legókubba“
„Ég er bara óvenju góður, er bara með smá hausverk og nokkra sauma í andlitinu. Þetta fór betur en á horfðist þar sem ég fékk fréttir eftir myndatökuna að ég væri tvíbrotinn í andliti,“ sagði Sveinn Sigurður Jóhannesson, markvörður Vals, sem var borinn af velli eftir skelfilegan árekstur í leik gegn Fram á dögunum.

Brynjar Atli framlengir við Breiðablik
Markvörðurinn Brynjar Atli Bragason hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Breiðabliks sem heldur honum innan raða félagsins til ársins 2024.

Þungavigtin: „Ef einhverjir þurfa að æfa eru það FH-ingar“
Gengi FH í Bestu deild karla í fótbolta það sem af er sumri var til umræðu í nýjasta þætti hlaðvarpsins Þungavigtin. Þar var farið yfir dræma stigasöfnun liðsins og þá staðreynd að Ólafur Jóhannesson, þjálfari liðsins væri á leið í sex daga golfferð.

Hrósar umgjörðinni hjá Stjörnunni en segir stuðninginn mega vera meiri
Þróttarinn Álfhildur Rósa Kjartansdóttir og Stjörnukonan Heiða Ragney Viðarsdóttir voru gestir Helenu Ólafsdóttir í upphitunarþætti Bestu markanna fyrir 7. umferð Bestu deildar kvenna sem hefst á morgun.

Segir byrjun Breiðabliks vera framar öllum vonum
„Nei, ég gerði það ekki. Ég skal vera fyrsti maður til að viðurkenna það. Þessi byrjun er stigalega og úrslitalega séð framar öllum vonum,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks í Bestu deild karla í fótbolta, um ótrúlega byrjun liðsins sem hefur unnið alla sína leiki í sumar.

Uppgjör fyrstu átta umferða Bestu: Breiðablik best, Ísak Snær bestur og Valur valdið mestum vonbrigðum
Áttunda umferð Bestu deildar karla í fótbolta fór fram á sunnudag. Að henni lokinni gerði Stúkan upp fyrstu átta umferðir mótsins. Eðlilega var Breiðablik mikið í umræðunni þar sem liðið er með fullt hús stiga.

Fóru yfir agavandamál Eyjamanna: Lárus Orri telur að Guðjón Pétur spili ekki aftur fyrir ÍBV
Nýliðar ÍBV hafa ekki átt sjö dagana sæla í Bestu deild karla í fótbolta til þessa. Liðið er með þrjú stig eftir átta umferðir og hefur ekki unnið leik. Það virðist lítill agi vera á liðinu sem hefur sankað að sér spjöldum og þá er Guðjón Pétur Lýðsson í vikustraffi.

Uppgjör Stúkunnar: Leikmaður umferðarinnar í Fram og mark umferðarinnar kom í Garðabæ
Áttunda umferð Bestu deildar karla í fótbolta fór fram á sunnudag. Guðmundur Benediktsson gerði umferðina upp í Stúkunni að leikjum loknum. Farið var yfir lið umferðarinnar, leikmann og mark umferðarinnar.

Hörður um stöðu mála hjá FH: „Í einhverskonar tilvistarkreppu“
Hörður Magnússon, starfsmaður Viaplay og fyrrum leikmaður FH um árabil, segist ekki átta sig á hver stefna félagsins. Hann telur að „menn séu ekki alveg að dansa sama dans í Hafnafirðinum.“

Ákvörðun KSÍ nær ekki til FH sem leyfir Eggerti að spila
Eggert Gunnþór Jónsson var í byrjunarliði FH í Bestu deildinni í fótbolta í gær þrátt fyrir að niðurfelling máls hans og Arons Einars Gunnarssonar, vegna nauðgunarkæru, hafi verið kærð.

Sömu lið og mættust í úrslitum í fyrra
Liðin sem mættust í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna í fyrra eigast við í átta liða úrslitum keppninnar í ár. Dregið var í átta liða úrslit Mjólkurbikars kvenna og sextán liða úrslit Mjólkurbikars karla í dag.

Gummi Ben skammaði Valsmenn: „Þetta er óvirðing“
Hinn 17 ára gamli Kristján Hjörvar Sigurkarlsson upplifði stóra stund í gær þegar hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir Val í Bestu deildinni í fótbolta. Það gerði hann í treyju merktri allt öðrum leikmanni.

Neitaði að svara því hvort Óli Jó yrði áfram þjálfari FH
„Óli Jó er okkar maður og ekki mikið meira um það að segja,“ segir Valdimar Svavarsson, formaður knattspyrnudeildar FH, um stöðu þjálfarans Ólafs Jóhannessonar nú þegar FH situr í 9. sæti Bestu deildar karla í fótbolta.

Telur að Heimir verði rekinn
Albert Brynjar Ingason, sérfræðingur Stúkunnar, telur að Heimir Guðjónsson verði látinn taka pokann sinn sem þjálfari Vals.

Áfram skorar Ísak Snær, óvæntar hetjur og markasúpur í Safamýri og Kaplakrika
Það fór heil umferð fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær, sunnudag. Hér að neðan má sjá öll mörk umferðarinnar en af nægu er að taka. Viktor Örlygur Andrason reyndist hetja Íslands- og bikarmeistara Víkings gegn KA á meðan Ísak Snær Þorvaldsson getur ekki hætt að skora.

Umfjöllun og viðtal: Leiknir - Breiðablik 1-2 | Sigurganga Blika heldur áfram
Breiðablik er enn með fullt hús stiga í Bestu-deild karla í fótbolta eftir 2-1 útisigur gegn Leikni í kvöld.

Umfjöllun: FH - KR 2-3 | KR hafði betur í stórveldaslagnum
KR hafði betur, 3-2, þegar Vesturbæjarliðið sótti FH heim á Kaplakrikavöll í áttundu umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Liðin þurftu bæði sárlega á stigum að halda í þessum leik til þess að halda í við topplið deildarinnar.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan 1-0 ÍBV | Einstaklingsframtak Óla Vals tryggði Stjörnunni stigin þrjú
Stjarnan sigraði ÍBV á Samsung vellinum í 8. umferð Bestu-deildar karla, 1-0, eftir glæsilegt mark frá Óla Val Ómarssyni.

Umfjöllun og viðtöl: ÍA - Keflavík 0-2 | Sanngjarn sigur Keflvíkinga
Keflavík sótti mikilvæg þrjú stig þegar þeir mættu ÍA á Akranesi í dag þar sem að þeir fyrrnefndu unnu sannfærandi 0-2 sigur þar sem að Dani Hatakka og Kian Williams gerðu mörkin. Léleg spilamennska Skagamanna þar sem að þeir sáu aldrei til sólar og fjórði leikurinn í röð þar sem að þeim mistekst að skora mark né sækja stig.