

Kauphöllin
Fréttir úr Kauphöllinni á Íslandi og af skráðum félögum á markaði.


Ætla að nýta sjóði VR til íbúðakaupa
Forsvarsmenn VR hyggjast nýta digra sjóði stéttarfélagsins til þess að koma á fót leigufélagi sem myndi leigja íbúðir á 15 til 30 prósenta lægra verði en gengur og gerist á almennum leigumarkaði.

Lífeyrissjóðir hafa áhuga á að kaupa um tíu prósent í Arion
Tólf lífeyrissjóðir samþykktu að fara í viðræður um kaup í Arion banka. Lýstu yfir áhuga á að kaupa tæplega tíu prósent. Einnig viðræður við tryggingafélög og verðbréfasjóði. Kaupréttur að hlut ríkisins verður nýttur gangi áformin eftir.

Jón Ingi til Landsbankans
Jón Ingi Árnason, sem starfaði áður í markaðsviðskiptum Kviku fjárfestingabanka, hefur gengið til liðs við Landsbankann, samkvæmt heimildum Markaðarins. Mun hann starfa í markaðsviðskiptum bankans.


Nýir eigendur Fákasels
Félagið Á Ingólfshvoli ehf. hefur keypt jörðina Ingólfshvol í Ölfusi og allar eignir Fákasels sem rak samnefndan hestagarð. Stendur vilji nýrra eigenda til þess að byggja upp blómlega starfsemi á sviði hesta- og ferðamennsku en meðal annars er gert ráð fyrir uppbyggingu gistirýma á jörðinni.

Hátt vægi innlendra eigna lífeyrissjóðanna býður hættunni heim
Ef íslenskir lífeyrissjóðir auka ekki erlendar fjárfestingar sínar munu þeir eiga rétt rúman helming allra eigna hér á landi árið 2060 samkvæmt greiningu Hagfræðistofnunar HÍ. Afleiðingin yrði sú að eignaverð myndi hækka og samkeppni á milli fyrirtækja minnka.

Verð til ferðamanna komið að þolmörkum
Ferðaþjónustufyrirtæki hefðu þurft að hækka verð um 66 prósent í evrum til þess að geta haft sömu framlegð í íslenskum krónum árið 2017 og árið 2012. Miklar innlendar kostnaðarhækkanir og gengisstyrking krónunnar á umliðnum árum hafa haft víðtæk áhrif á rekstur fyrirtækja í atvinnugreininni.

Ingibjörg Pálmadóttir bætir við hlut sinn í 365 miðlum
Félagið Apogee, sem er í eigu félaga á vegum Ingibjargar Stefaníu Pálmadóttur, forstjóra 365 miðla, hefur keypt 14,5 prósenta hlut fagfjárfestasjóðsins Auðar I í A-flokki í fjölmiðlafyrirtækinu.

Bjóða lífeyrissjóðunum að kaupa í Arion banka í vikunni
Kaupþing mun bjóða íslenskum lífeyrissjóðum að kaupa að lágmarki fimm prósenta hlut í Arion banka í vikunni. Sjóðirnir verða að taka afstöðu til tilboðsins fyrir birtingu ársreiknings þann 14. febrúar.

Stoðir að verða stærsta fjárfestingafélag landsins
Rekstri Stoða, áður FL Group, verður ekki hætt þegar salan á Refresco klárast á öðrum ársfjórðungi. Vilji meirihluta hluthafa stendur til að halda starfseminni áfram. Til verður fjárfestingafélag með um átján milljarða króna í eigið fé.

Umhverfismál snerta okkur öll
Almenningur hér á landi lítur ekki á Ísland sem brautryðjanda á alþjóðavettvangi á sviði loftslagsmála ef marka má nýlega könnun Gallup.

Látinn borga fyrir fyrri flugleið til að halda þeirri seinni
Dæmi eru fyrir því að flugfarþegar þurfi að greiða fargjaldamismun og breytingargjald fyrir það eitt að afboða sig í fyrri flugleið til útlanda þegar það á annað flug með sama félagi heim. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir skilmálana til endurskoðunar.

Icelandair flýgur til San Francisco
Þetta er í þriðja sinn í vikunni sem flugfélagið tilkynnir beint flug til nýrrar borgar í Bandaríkjunum.

Eigendur Egils Árnasonar og Harðviðarvals skoða sölu
Eigendur verslananna Egils Árnasonar og Harðviðarvals skoða nú mögulega sölu á fyrirtækjunum. Samkvæmt heimildum Markaðarins hafa þeir leitað til verðbréfafyrirtækisins Arctica Finance til þess að kanna áhuga fjárfesta á kaupum á fyrirtækjunum.

Icelandair aldrei flutt jafn marga og á síðasta ári
Flutningatölur Icelandair fyrir árið 2017 liggja fyrir og kemur þar fram að félagið hefur aldrei flutt fleiri farþega á einu ári. Voru farþegar alls fjórar milljónir.

Rannsókn lokið í Icelandair-máli
Ólafur segir málið nú fara í ákærumeðferð þar sem tekin verður ákvörðun um hugsanlega saksókn.

Flugvirkjar sagðir brattir þegar nýr kjarasamningur var kynntur
Fundurinn stóð yfir í eina og hálfa klukkustund þar sem meðal annars var útskýrt frekar form kosninga um samninginn og opnað fyrir spurningar úr sal þessi efnis.

Fá kynningu á samningi
Samningurinn verður kynntur á félagsfundi þar sem jafnframt verður útskýrt hvernig staðið verður að atkvæðagreiðslu um samninginn.

Hlutabréfin flugu upp eftir úrlausn deilunnar
Gengi hlutabréfa í Icelandair Group rauk upp eftir að samningar náðust í kjaradeilu flugvirkja.

Forstjóri Icelandair svaraði harðri gagnrýni sem flugfélagið hefur fengið á sig
"Við vorum allan tímann að reikna með því að við myndum ná að semja“

„Hver fundur færir okkur nær niðurstöðu“
Óvíst hve lengi fundur í kjaradeilu flugvirkja Icelandair mun standa yfir.

„Það hafa meira og minna allir farþegar orðið fyrir einhverskonar röskun“
Fjöldinn allur af farþegum Icelandair komst ekki ferða sinn í dag vegna verkfalls flugvirkja flugfélagsins.

Fjöldi áhyggjufullra farþega hefur sett sig í samband við Samgöngustofu
Verkfallið hófst í gær og er talið hafa áhrif á flug tíu þúsund farþega á degi hverjum.

Fundur stendur yfir í flugvirkjadeilunni
Síðasta fundi samninganefnda deiluaðila var slitið um fjögur leytið í nótt án þess að nokkur niðurstaða fengist.

Hlutabréf í Icelandair lækka flugið
Verkfallið hófst klukkan 6 í gærmorgun og hefur valdið mikilli röskun á flugi Icelandair. Lækkun dagsins það sem af er nemur 3,26 prósentum.

Fundi slitið án árangurs
Árangurslitum fundi samninganefnda flugvirkja og Icelandair var slitið klukkan 4 í nótt.

Meint verkfallsbrot tekin til skoðunar
Meðal þess sem verður tekið til skoðunar er hvort gengið hafi verið í störf flugvirkja á meðan á verkfalli stóð.

Vill fjölga sendiherrum íslensks iðnaðar
Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins skorar á stjórnvöld að einfalda stjórnsýslu byggingamála í landinu. Furðar sig á því af hverju ekki er keypt meira af íslenskri hönnun í opinberar byggingar. Samkeppnisstaðan oft verið betri.

Sigurður Hreiðar til Íslenskra fjárfesta
Sigurður Hreiðar Jónsson, forstöðumaður markaðsviðskipta Íslenskra verðbréfa (ÍV), hefur sagt upp störfum hjá félaginu og mun senn ganga til liðs við verðbréfafyrirtækið Íslenska fjárfesta, samkvæmt heimildum Markaðarins.