Samningar breiðfylkingar nánast í höfn en verkfallsboðun hjá Icelandair Allt bendir til að skrifað verði undir nýja kjarasamninga breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins á morgun en vel hefur gengið í viðræðum þeirra í dag. Ef af verður mun ríkisstjórin einnig kynna aðgerðarpakka sinn í tengslum við samningana. Innlent 6. mars 2024 17:28
Icelandair og Emirates ætla í samstarf Icelandair og Emirates skrifuðu fyrr í dag undir viljayfirlýsingu um samstarf. Samkvæmt viljayfirlýsingunni munu flugfélögin vinna að samningi um sammerkt flug sem mun gera viðskiptavinum kleift að tengja á þægilegan hátt á milli leiðakerfa flugfélaganna. Viðskipti innlent 6. mars 2024 16:25
„Aldrei orðið vitni að öðrum eins vinnubrögðum og beinni íhlutun lífeyrissjóða“ Frambjóðandi til stjórnar úr röðum stærstu einkafjárfesta Festar fór hörðum orðum um starfshætti tveggja stórra lífeyrissjóða, sem höfðu lýst yfir óánægju sinni með tilnefningu hans til stjórnar, í ræðu á aðalfundi og sagðist aldrei hafa upplifað önnur eins vinnubrögð og beina íhlutun af hálfu stofnanafjárfesta. Sakaði Þórður Már Jóhannesson, sem dró framboð sitt til baka á fundinum, sjóðina meðal annars um nýta sér glufu í lögum um kynjakvóta sem tæki í „valdabaráttu“ sinni við stjórnarkjörið. Innherji 6. mars 2024 13:18
Ekki hlustað á starfsmenn í mörg ár Formaður VR segir ekki boðlegt að slíta sundur dagvinnuvaktir starfsmanna félagsins hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Ekki hafi verið hlustað á kröfur um breytingar undanfarin ár og þess vegna hafi verið ákveðið að boða til verkfalls þessara starfsmanna hjá Icelandair. Innlent 6. mars 2024 11:46
Forstjórinn tekur fram kjuðana á ný Birgir Jónsson forstjóri Play hefur ákveðið að rífa fram kjuðana á ný og hefja leik með sínum fornu félögum í þungarokkssveitinni Dimmu. Lífið 6. mars 2024 10:28
Verslunarmenn boða atkvæðagreiðslu um verkfall á Keflavíkurflugvelli Samninganefnd VR hefur ákveðið að boða til atkvæðagreiðslu um verkfall félagsmanna í farþega- og hleðsluþjónustu hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Með aðgerðunum á að þrýsta á breytingar á vaktafyrirkomulagi starfsfólksins á flugvellinum. Innlent 6. mars 2024 10:05
Bankar veita „skjól á tvísýnum tímum“ og verðmat Íslandsbanka hækkar Viðskiptabankar veita skjól á tvísýnum tímum, segir í hlutabréfagreiningu þar sem verðmat Íslandsbanka hækkar um 18 prósent frá síðasta mati. Verðmatið er 39 prósentum hærra en markaðsgengi. Innherji 5. mars 2024 16:30
Hætta á að kosning á grundvelli aðeins hæfismats skili „of einsleitri“ stjórn Tilnefningarnefnd Arion varar við því að farin sé sú leið, sem meðal annars framkvæmdastjóri LSR hefur kallað opinberlega eftir, að einvörðungu sé framkvæmt hæfismat á frambjóðendum til stjórnarkjörs enda sé hætta á því að kosning myndi þá ekki skila nauðsynlegri fjölhæfni og þekkingu innan stjórnar. Hún segist hins vegar hafa skilning á því ef stórir hluthafar, sem „ekki hafa fylgst með“ tilnefningarferlinu, finnist skorta á gagnsæi þegar ítrekað sé sjálfkjörið í stjórnir félaga. Innherji 5. mars 2024 14:04
Sigrún Helga og Birgir Örn í framkvæmdastjórn Skaga Sigrún Helga Jóhannsdóttir og Birgir Örn Arnarson hafa tekið sæti í framkvæmdastjórn Skaga, nýs móðurfélags VÍS, Fossa fjárfestingarbanka og SIV eignastýringar. Viðskipti innlent 5. mars 2024 10:59
Play tekur flugið til Afríku Flugfélagið PLAY hefur hafið miðasölu til tveggja nýrra áfangastaða. Annars vegar til Marrakesh í Marokkó og hins vegar Madeira í Portúgal. Flug Play til Marrakesh verður áætlunarflugið milli Íslands og Afríku. Viðskipti innlent 5. mars 2024 10:45
Sebastiaan Boelen nýr fjármálastjóri Marel Sebastiaan Boelen hefur verið ráðinn í stöðu fjármálastjóra Marels og tekur við af Stacey Katz, sem hefur gegnt stöðunni undanfarin tvö ár. Viðskipti innlent 4. mars 2024 17:45
Búast við að Alvotech nái „verulegri“ markaðshlutdeild eftir samþykki FDA Erlendir og innlendir greinendur hafa hækkað talsvert verðmat sitt á Alvotech eftir að félagið hlaut markaðsleyfi í Bandaríkjunum og vegna tímabundins einkaréttar er líftæknilyfjafyrirtækið, ásamt samstarfsaðila sínum Teva, sagt vera í stöðu til að ná „verulegri“ markaðshlutdeild þar í landi í nálægri framtíð með sölu á hliðstæðu við Humira, að mati fjárfestingabankans Barclays. Með blessun FDA á framleiðsluaðstöðu Alvotech er talið að félagið muni í framhaldinu eiga auðveldara um vik að fá samþykki fyrir fleiri lyf á mikilvægasta markaði heims. Innherji 4. mars 2024 15:55
Leggja til Paul Horner í stað Brynjólfs Tilnefningarnefnd Arion banka leggur til að Paul Horner verði næsti stjórnarformaður bankans. Brynjólfur Bjarnason lætur af störfum sem formaður eftir fimm ár í brúnni. Viðskipti innlent 4. mars 2024 11:23
Skilvirkara CAPE-hlutfall eftir fjölgun félaga í Úrvalsvísitölunni Með aðstoð Kóða og Nasdaq hafa janúar- og febrúargildi CAPE og VH-hlutfallsins verið birt fyrir Úrvalsvísitöluna OMXI15. Við lokun viðskipta á síðasta viðskiptadegi febrúar endaði virði Úrvalsvísitölunnar á móti hagsveifluleiðréttum hagnaði, svonefnt CAPE-hlutfall, í tæplega 28 og hefur því lækkað lítillega frá áramótum. Umræðan 4. mars 2024 08:08
„Það er fátt skemmtilegra en að taka einn Tene dag“ Arnar Már Magnússon, framkvæmdastjóri Flurekstrarsviðs Play og flugstjóri, segir fáa koma sér í betra skap en Sveppa og Pétur Jóhann. Skemmtilegasta eldamennskan er á föstudögum og eftir uppvaskið er það Gísli Marteinn. Að taka einn og einn dag í flugi til Tene er líka á topplistanum. Atvinnulíf 2. mars 2024 10:00
Arion hyggst stórauka eignir í stýringu og skoðar að stofna fasteignafélag Arion banki, sem er með leiðandi stöðu á eignastýringarmarkaði, stefnir á að auka eignir í stýringu samstæðunnar um meira en fjörutíu prósent á næstu fimm árum. Þá hefur bankinn hefur til skoðunar að stofna fasteignafélag á íbúðamarkaði sem mögulega yrði skráð í Kauphöll. Innherji 1. mars 2024 16:40
Fasteignafélag Festar fær nýtt nafn Festi hefur breytt nafninu á Festi fasteignum, einu ekstrarfélaga sinna sem sérhæfir sig í útleigu atvinnuhúsnæðis til félaga í verslunarrekstri og eru fasteignirnar að mestu leyti í útleigu til félaga innan samstæðunnar, það er N1, Krónunnar, Elko og Bakkans. Félagið hefur fengið nafnið Yrki eignir. Viðskipti innlent 1. mars 2024 13:50
Undantekning að samspil trygginga- og fjármálastarfsemi „gangi ekki vel“ Forstjóri Skaga, móðurfélag tryggingafélagsins VÍS, Fossa fjárfestingarbanka og SIV eignastýringar, segist sjá mikil tækifæri í samþættingu í tryggingafélagsins við fjármálstarfsemi. Reynslan hérlendis og alþjóðlega sýni að slíkt samspil sé farsælt. „Það heyrir heldur til undantekninga að slíkt samspil gangi ekki vel.“ Innherji 1. mars 2024 13:35
Hástökk Alvotech fyrir bí Fjórða daginn í röð lækkar verð á bréfum í Alvotech eftir hástökkið á mánudaginn þegar verðið hækkaði um ellefu prósent. Það er nú lægra en það var áður en matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna veitti fyrirtækinu langþráð leyfi síðastliðna helgi. Viðskipti innlent 1. mars 2024 10:23
Hafa tryggt sér fjóra milljarða Play hefur tryggt sér áskriftarloforð að andvirði fjögurra milljarða króna í heildina vegna hlutafjáraukningar sem unnið hefur verið að. Fjórir milljarðar var lágmark hlutafjáraukningarinnar og er hún nú háð leyfis hluthafa. Fáist það stendur til að auka hlutaféð á aðalfundi félagsins þann 21. mars. Viðskipti innlent 29. febrúar 2024 23:11
Hyggjast breyta banka í ráðhús Norðurþing hefur gert tilboð í gömlu húsakynni Íslandsbanka á Húsavík og ætlar að breyta því í ráðhús. Mygla fannst í stjórnsýsluhúsinu og hentugra þykir að flytja starfsemina. Innlent 29. febrúar 2024 19:08
Ráðin ábyrgðarmaður Arion vegna aðgerða gegn peningaþvætti Cecilia Agneta Ståhle hefur tekið við hlutverki ábyrgðarmanns vegna aðgerða Arion banka gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Viðskipti innlent 29. febrúar 2024 13:08
Loðnan við Vestfirði ekki nægilega mikil Loðnan sem fannst undan Patreksfirði í gær reyndist ekki vera í nægilegu magni til að unnt sé að heimila veiðar. Von um loðnuvertíð er því orðin veik og blasir loðnubrestur við þennan veturinn. Fulltrúar Hafrannsóknastofnunar funda með fulltrúum útgerðarinnar í dag um stöðuna. Viðskipti innlent 29. febrúar 2024 11:55
Alvotech sagði 21 upp í gær 21 starfsmanni var sagt upp störfum hjá Alvotech í gær. Þar af voru fjórtán sem starfa á Íslandi. Þetta staðfestir Benedikt Stefánsson, forstöðumaður fjárfesta- og almannatengsla hjá Alvotech, í samtali við Vísi. Viðskipti innlent 29. febrúar 2024 11:03
Útkoma kjarasamninga „langstærsti“ óvissuþátturinn fyrir vaxtalækkunarferlið Þrátt fyrir hátt aðhaldsstig peningastefnunnar þá þarf „allt að falla með okkur“ til þess að hægt verði að hefja vaxtalækkunarferlið í maí, meðal annars að niðurstaða kjarasamninga fái grænt ljós frá Seðlabankanum, að mati skuldabréfamiðlara. Hagfræðingar Arion banka segja hækkun matvöruverðs mestu vonbrigðin í nýjustu verðbólgumælingum en benda á að undirliggjandi verðbólga virðist enn vera að hjaðna. Innherji 29. febrúar 2024 10:15
Skagi inn í Kauphöllina í stað VÍS Skagi er nýtt móðurfélags VÍS, Fossa fjárfestingarbanka og SIV eignastýringar. Framtíðarskipulag samstæðunnar hefur verið kynnt og samþykkt af hluthöfum með tilfærslu tryggingareksturs í dótturfélag. Skagi verður skráða félagið í félagið í Kauphöll Íslands, sem áður var undir merkjum VÍS. Viðskipti innlent 29. febrúar 2024 08:28
Hafa fundið mikið magn nikkels og kopars á Suður-Grænlandi Amaroq Minerals Ltd. hefur fundið umfangsmikið magn nikkels og kopars við leit í Stendalen á Suður-Grænlandi. Er um að ræða 140 metra þykkt lag af því sem kallað er „disseminated“ kviku súlfíð sem inniheldur kopar, nikkel og kóbalt. Efnin fundust í stóru innskoti í tilraunaborholu í Stendalen. Viðskipti innlent 29. febrúar 2024 07:38
Mælir með kaupum í Play og telur útboðsgengið „vel undir“ sanngjörnu virði Virðismatsgengi Play, sem vinnur núna að því að klára að lágmarki fjögurra milljarða króna hlutafjáraukningu, er rúmlega tvöfalt hærra en útboðsgengið, samkvæmt nýrri hlutabréfagreiningu. Talið er að Play muni skila lítillegum rekstrarhagnaði á þessu ári og það náist jafnvægi milli einingatekna- og kostnaðar í rekstri flugfélagsins. Innherji 28. febrúar 2024 17:20
Uppsagnir hjá Alvotech Þónokkrum starfsmönnum lyfjafyrirtækisins Alvotech var sagt upp störfum í dag. Viðskipti innlent 28. febrúar 2024 16:42
Fjárfestar virðast enn hafa „litla trú“ á viðsnúningi í rekstri Kviku Á síðustu fjórðungum hefur „fátt ef eitthvað“ fallið með rekstrinum hjá Kviku og miðað við markaðsvirði bankans, sem er með TM í söluferli, eru væntingar fjárfesta til framhaldsins „mjög hófstilltar,“ að sögn forstjóra Stoða sem telur að undirliggjandi hagnaður eigi að geta tvöfaldast. Fjárfestingafélagið, sem er ráðandi hluthafi í First Water, segir eldið hafa gengið „vonum framar“ í fyrsta fasa og útlit sé fyrir að heildarframleiðsla landeldisfyrirtækisins verði töluvert meiri en áður var talið. Innherji 28. febrúar 2024 14:04