

Fréttir af leikmönnum og liðum í körfubolta, bæði á Íslandi og erlendis.
Njarðvíkingar og Valskonur unnu sigra í Subway-deild kvenna í kvöld. Njarðvíkingar fengu Fjölniskonur í heimsókn og unnu tíu sti-ga sigur, 71-61, og á sama tíma unnu Valskonur 22 stiga útisigur gegn Skallagrími, 92-70.
Robbi Ryan, leikmaður Grindavíkur, átti framúrskarandi leik í 69-83 sigri Grindavíkur í Njarðvík í kvöld. Ryan skoraði alls 28 stig ásamt því að taka 7 fráköst og gefa 5 stoðsendingar. Hún varar önnur lið í deildinni við því að Grindavík er rétt að byrja.
Nýliðar Grindavíkur unnu sinn fyrsta sigur í Subway-deild kvenna þegar að liðið heimsótti Breiðablik í kvöld. Lokatölur 83-69, en Blikar eru enn án sigurs.
Martin Hermannsson var stigahæsti maður vallarins með 20 stig þegar að Valencia tapaði fyrir Real Madrid í spænsku ACB deildinni í körfubolta í dag, 93-79.
Njarðvíkingar hafa á að skipa afar öflugum mannskap í Subway deildinni í körfubolta og þykja líklegir til að vinna mótið örugglega.
Subway deildin í körfubolta hófst fyrir helgi og goðsögnin Logi Gunnarsson var á sínum stað í liði Njarðvíkur.
Subway deildin í körfubolta fór af stað með pompi og pragt fyrir helgi.
Tryggvi Snær Hlinason og félagar í Zaragoza gerðu ekki góða ferð til Tenerife í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.
Körfuboltakvöld hefur hafið göngu sína á ný og í gærkvöld var farið yfir allt það helsta sem gerðist í fyrstu umferð Subway-deildar karla í körfubolta. Hér að neðan má sjá flottustu tilþrif umferðarinnar.
Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Tindastóls, var ánægður með 14 stiga sigur sinna manna gegn Val í kvöld og var sérstaklega ánægður með varnarleikinn sem var frábær hjá liði hans.
Tindastóll hafði ekki unnið Val undanfarin tvö tímabil en á því varð breyting íkvöld er heimamenn unnu 14 stiga sigur, lokatölur 76-62.
Grindvíkingar unnu sigur á Þór frá Akureyri í 1.umferð Subway-deildarinnar í körfuknattleik en leikurinn fór fram í Grindavík í kvöld. Lokatölur 69-61.
„Við gerðum þetta óþarflega erfitt. Þeir misstu Bandaríkjamanninn sinn snemma út og hann var ófær til vinnu í leiknum og við nutum góðs af því,“ sagði Daníel Guðni Guðmundsson þjálfari Grindavíkur eftir sigur á Þór Akureyri í kvöld.
Tindastóll tekur á móti Val í Subway-deild karla í körfubolta í stórleik kvöldsins en þetta er fyrsti deildarleikur liðanna á tímabilinu.
Liðsmenn útvarpsþáttarins Boltinn lýgur ekki eru mjög spenntir fyrir vetrinum hjá Val og þá sérstaklega Kára Jónssyni. Fyrsti þátturinn var sendur út í gær á X977.
Teitur Örlygsson átti í smá erfiðleikum með að einbeita sér í Tilþrifunum í gær, og það skiljanlega.
Stjörnumenn unnu torsóttan sigur á ÍR í fyrsta leik sínum í Subway-deild karla í Garðabæ í kvöld. Lokatölur venjulegs leiktíma 99-99 en Stjörnumenn stigu upp undir lokin og kláruðu svo leikinn í framlengingu 113-102.
Vestri tók á móti deildarmeisturunum frá Keflavík í sínum fyrsta leik í efstu deild í háa herrans tíð. Það er óhætt að segja að nýliðarnir hafi staðið í deildarmeisturunum, en lokatölur urðu 99-101, Keflvíkingum í vil, eftir tvöfalda framlengingu.
Stjörnumenn unnu torsóttan sigur á ÍR í fyrsta leik sínum í Subway-deild karla í Garðabæ í kvöld. Lokatölur venjulegs leiktíma 99-99 en Stjörnumenn stigu upp undir lokin og kláruðu svo leikinn í framlengingu 113-102. Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnunnar, var sáttur í leikslok.
Það fór ekki mikið fyrir varnarleiknum þegar KR vann Breiðablik í fyrstu umferð Subway deildar karla í körfuknattleik fyrr í kvöld. Leikar enduðu 128-117 eftir framlengdan leik.
KR lagði Breiðablik í hreint út sagt ótrúlegum leik á Meistaravöllum fyrr í kvöld. Leikurinn endaði 128-117 fyrir heimamenn en leikið var í fyrstu umferð Subway deildar karla í körfubolta. Varnarleikurinn var ekki til útflutnings en þjálfari KR, Helgi Már Magnússon, var ánægður með að ná í sigurinn þó að það væri mikið sem þyrfti að laga. Sérstaklega varnarlega.
Íslandsmeistarar Þórs Þ. hófu titilvörn sína í Njarðvík þar sem að bikarmeistararnir tóku á móti þeim. Liðin mættust fyrir tæpri viku í Meistarakeppni KKÍ þar sem að Þórsarar höfðu betur, en Njarðvíkingar hefndu svo sannarlega fyrir það í kvöld með 25 stiga sigri, 107-82.
Njarðvík byrjar tímabilið í Subway-deildinni frábærlega. Liðið vann 25 stiga sigur á heimavelli gegn Íslandsmeisturunum frá Þorlákshöfn. Logi Gunnarsson tók það á sig þjálfaraviðtalið eftir leik þar sem Benedikt Guðmundsson tók út leikbann.
Tveir leikmenn Atlanta Dream liðsins í WNBA-deildinni í körfubolta fá ekki að spila áfram hjá félaginu á næstu leiktíð. Ástæðan er að myndband með þeim í slagsmálum fyrr á árinu komst á flug á netinu.
Bandaríkjamaðurinn Tyler Sabin fór á kostum með KR-ingum í körfuboltanum á síðustu leiktíð en það voru ekki allir liðsfélagarnir nógu ánægðir með hann. Matthías Orri Sigurðsson sagði sína skoðun á Sabin þegar hann mætti í hlaðvarpsþáttinn Þungavigtina.
Útvarpsþátturinn Boltinn lýgur ekki hefur göngu sína í dag. Boltinn lýgur ekki er útvarpsþáttur um körfubolta sem er á dagskrá alla fimmtudaga frá 16:00-18:00 á X-inu 977.
Njarðvík vann Hauka í fyrstu umferð Subway-deildarinnar. Leikurinn var jafn og spennandi þrátt fyrir að vera afar kaflaskiptur. Í 4. leikhluta gerði Njarðvík ellefu stig í röð og unnu á endanum sanngjarnan sigur 58-66.
Haukar töpuðu gegn Njarðvík í fyrsta leik Subway-deildarinnar. Leikurinn endaði 58-66 og var Bjarni Magnússon, þjálfari Hauka, afar ósáttur með liðið sitt eftir leik.
Íslandsmeistarar Vals og Keflavík byrja tímabilið í Subway-deild kvenna á nokkuð öruggum sigrum. Valur vann stórsigur á Grindavík, 94-69, á meðan Keflavík vann Skallagrím, 80-66.
Halldór Karl Þórsson, þjálfari Fjölnis, var ánægður með sigur síns liðs síns en ekki nægilega sáttur með spilamennskuna. Fjölnir lagði Breiðablik 75-71 í fyrstu umferð Subway-deildar kvenna í körfubolta í Grafarvogi í kvöld.