

Menning
Sviðslistir, bókmenntir, sagnfræði, tónlist, myndlist og aðrar listasýningar.

Töfrandi listakona, dauð gaupa og undarlegt samband systra, meðal mynda á RIFF
Kvikmyndahátíðin Reykjavík film festival, eða RIFF, verður haldin í tuttugasta skiptið í ár og fer fram dagana 28. september til 8. október. Hátíðin hefur fyrir löngu skipað sér sess sem ein eftirsóttasta kvikmyndahátíð Norðurlanda og því spennandi að sjá úrvalið í ár.

Robbie Williams syngur um stjóra Spurs: „Ég elska stóra Ange í staðinn“
Stuðningsmenn Tottenham eru hæstánægðir með nýja stjórann, Ange Postecoglou, meðal annars stórsöngvarinn Robbie Williams sem hefur breytt einu þekktasta lagi sínu til heiðurs Postecoglou.

Gildran valin bæjarlistamaður
Hljómsveitin Gildran hefur verið útnefnd bæjarlistamaður Mosfellsbæjar árið 2023. Hljómsveitin hefur gefið út sjö plötur og hóf stór hluti meðlima tónlistarferil sinn sem unglingar í Gagnfræðaskóla Mosfellsbæjar en Gildran var stofnuð árið 1985.

„Skemmtilegasta brúðkaup allra tíma“
Tónlistarmaðurinn Sverrir Bergmann Magnússon og Kristín Eva Geirsdóttir, lögfræðingur, gengu í hnapphelduna við hátíðlega athöfn í gær.

Schofield sagður stefna á endurkomu á skjáinn og útgáfu ævisögu
Phillip Schofield, sem hætti hjá ITV í maí eftir skandal sem tengdist sambandi hans við yngri samstarfsmann, virðist ætla að endurreisa feril sinn með útgáfu ævisögu og endurkomu á sjónvarpsskjáinn á TalkTV.

Sjónvarpsþáttakynnirinn Bob Barker látinn
Bob Barker, sem var þáttastjórnandi The Price is Right í 35 ár, er látinn, 99 ára að aldri. Hann lést af náttúrulegum orsökum á heimili sínu í dag.

Ævarandi leit að réttu stemningunni
„Þetta er kærulaus tónlist um hversdagsleg málefni. Um sápukúludiskótek og sangríu. Um þjóðarsálina, íslenska sumarið og hina eilífu leit að réttu stemningunni,“ segir tónlistarmaðurinn Jón Frímannsson um lagið Andalúsía sem hljómsveit hans JónFrí var að senda frá sér.

Floni stríðir aðdáendum og lætur glytta í nýja plötu
Rapparinn Floni er fyrir löngu orðinn þekkt stærð í íslensku tónlistarsenunni. Hann gaf síðast út plötu fyrir tveimur árum, og því ekki úr vegi að ætla að heitustu aðdáendur hans séu þyrstir í nýtt efni. Nú er útlit fyrir að þeim gæti orðið að ósk sinni á næstunni. Segja má að hann hafi „strítt“ aðdáendum sínum um liðna helgi.

Gítarleikari Whitesnake látinn
Bernie Marsden, gítarleikari og einn stofnenda bresku rokksveitarinnar Whitesnake, er látinn.

Skærasta stjarna landsins á lausu
Söngkonan Bríet Ísis Elfar og Rubin Pollock, gítarleikari Kaleo hafa slitið samvistum. Parið ruglaði fyrst saman reytum sumarið 2020 og hafa verið áberandi á listasviðinu síðan.

„Þetta lag fjallar um kynlíf“
Tónlistarfólkið Bríet Ísis Elfar og Ásgeir Trausti Einarsson sameina krafta sína á ný en í dag kemur út lagið þeirra Venus. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem listamennirnir leiða saman hesta sína því í fyrra gaf Bríet út ábreiðu á lagi Ásgeirs, Dýrð í dauðaþögn.

Fresta frumsýningu Dune vegna verkfalls
Forsvarsmenn Warner Bros hafa ákveðið að fresta frumsýningu kvikmyndarinnar Dune: Part Two um rúma fjóra mánuði vegna verkfalls leikara. Timothée Chalamet, Zendaya og aðrir leikarar geta annars ekki tekið þátt í að kynna myndina vegna verkfalls leikara.

Hannes Þór ætlar sér stóra hluti með Atlavík
Hannes Þór Halldórsson, leikstjóri og fyrrverandi markmaður íslenska landsliðsins í knattspyrnu, hefur stofnað nýtt framleiðslufyrirtæki ásamt félögum sínum. Hann segir fyrirtækið vera með mörg járn í eldinum og vinna nú að þáttum fyrir Stöð 2, RÚV og Sjónvarp Símans.

Valdi að verða sextug í stað þess að flytja til Eþíópíu
Yrsa Sigurðardóttir, glæpasagnadrottning og margfaldur metsöluhöfundur, fagnar sextugsafmæli í dag. Hún segir ekkert planað í kvöld, annað en að skrifa næstu bók. Hún ætlar að halda upp á stórafmælið með pompi og prakt í febrúar að jólabókaflóði loknu og segist ekki geta beðið eftir að sjá Kulda, samnefnda mynd sem byggir á bók hennar og kemur í kvikmyndahús í næstu viku.

„Mikilvægt að myndlist geti líka verið ógeðsleg“
„Mér finnst gaman að kveikja á alls konar tilfinningum hjá áhorfendum. Mér finnst líka gaman að taka eitthvað sem mér finnst ógeðslegt eins og köngulær og ég reyni alltaf að gera þær girnilegri en þær eru í raun,“ segir myndlistarkonan Helena Margrét Jónsdóttir opnar einkasýningu í D sal Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsinu í kvöld. Blaðamaður hitti hana í kaffi og fékk að heyra nánar frá.

Ætlaði ekki að koma nálægt karlmönnum í tvö ár
„Ég var oft búin að kvíða fyrir því að hitta hann. Þetta var miklu verra en ég hélt,“ segir tónlistarkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir þegar hún mætti æskuástinni, Ólafi Friðriki Ólafssyni viðskiptafræðingi og eiganda Pizzunnar.

Lokaslagurinn við að taka aftur völdin eftir kynferðisofbeldi
Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á tónlistarmyndbandi við lagið Freedom eftir tónlistarkonuna Þórunni Sölku. Lagið fjallar um kynferðisofbeldi sem Þórunn Salka varð fyrir árið 2020 og í tónlistarmyndbandinu klæðist hún svipuðum fatnaði og kvöldið sem atvikið átti sér stað.

Borko og Birna selja Kleppsveginn
Tónlistarmaðurinn Björn Kristjánsson, betur þekktur sem Borko, og Birna Hjaltadóttir, kona hans, hafa sett íbúð sína og á Kleppsveginum í Reykjavík á sölu.

Tónlistarveisla í boði Félags tónskálda og textahöfunda
Félag tónskálda og textahöfunda fagnaði fjörutíu ár afmæli sínum um helgina. Af því tilefni komu bransamenn og -konur saman og glöddust í Gamla bíói. Ljósmyndari Vísis mætti að sjálfsögðu á staðinn og myndaði stemninguna.

„Margir halda að þetta sé Eyes guys út af augunum í Rúrik“
„Ég er fyrrverandi knattspyrnumaður og mig langaði að upplifa liðsheild, maður þurfti kannski faðm til að leita í,“ segir tónlistarmaðurinn Jón Jónsson og guðfaðir strákabandsins IceGuys, eins og hann orðar það.

FM Belfast tryllti lýðinn á svölum Halla og Möggu
Haraldur Þorleifsson og Margrét Rut Eddudóttir héldu Menningarnæturboð síðastliðið laugardagskvöld og fögnuðu um leið brúðkaupsafmæli sínu. Hjónin eru búsett í glæsilegri þakíbúð í miðborginni þar sem gestir fengu stórbrotið útsýni þegar flugeldasýningin fór í gang.

Fjölbreytt leikár í Þjóðleikhúsinu og ný byltingarkennd áskriftarleið
Þjóðleikhúsið hefur bætt við nýrri áskriftarleið í anda Spotify fyrir 15 til 25 ára sem veitir ótakmarkaðan aðgang að öllum sýningum leikhússins fyrir aðeins 1450 krónur á mánuði. Nýtt leikár rennur nú af stað, stútfullt af mögnuðum sögum, átökum, klassík, gleði og gamansýningum. Sýningar Þjóðleikhússins sópuðu að sér öllum helstu verðlaununum á Grímunni og öðrum verðlaunahátíðum í vor.

Draumafríið á Íslandi breyttist í martröð
Jacqueline Bussie guðfræðingur stendur fyrir áhugaverðum fyrirlestri í Áslandskirkju í kvöld, þriðjudaginn 22. ágúst. Þar fjallar hún um sálgæslu en hún varð fyrir þeirri hræðilegu reynslu að missa eiginmann sinn í göngu um Sólheimajökul.

Þrír Íslendingar í hópi tuttugu efnilegustu undir þrítugu í tónlistariðnaðinum
Þrír Íslendingar fengu í gær viðurkenningu fyrir að tilheyra efstu tuttugu einstaklingunum undir þrítugu sem skara fram úr í tónlistariðnaðinum. Útflutningsskrifstofur Norðurlandanna, NOMEX, birtu listann og segir í tilkynningu frá ÚTON að um sé að ræða sjötta stærsta tónlistarmarkað í heimi.

„Eins mikið og ég elska þessar stelpur gæti ég ekki viku í viðbót“
Fyrsta stiklan af annarri þáttaröð raunveruleikaþáttanna LXS hefur verið birt. Þar má sjá vinkonurnar og áhrifavaldana Birgittu Líf, Ástrós Trausta, Magneu Björg, Sunnevu Einars og Ínu Maríu ferðast, skála, gráta, hlægja og allt þar á milli.

Á ferð með mömmu tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs
Kvikmyndin Á ferð með mömmu sem kom út í fyrra í leikstjórn Hilmars Oddssonar hefur verið tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2023.

„Við erum ekkert stödd á voðalega góðum stað“
Guðríður Torfadóttir, eða Gurrý, er á leiðinni í loftið með þættina Gerum betur á Stöð 2 þar sem venjulegu fólki er kennt hvernig á að komast í form á heilbrigðan hátt.

Matti í Hatara og Brynhildur Karls giftu sig í íslenskri sveitasælu
Listræna parið Matthías Haraldsson og Brynhildur Karlsdóttir giftu sig um helgina með pomp og prakt í íslenskri sveitasælu, umkringd sínu nánasta fólki. Faðir Brynhildar, leikarinn Karl Ágúst Úlfsson, gaf þau saman með táknrænum en ólögformlegum hætti.

Painkiller: Netflix-níðvísa um Oxy
Netflix hóf nýverið sýningar á þáttaröðinni Painkiller, sem byggð er á sögum í kringum ópíóðafaraldurinn sem dunið hefur á Bandaríkjunum. Meginfókusinn er á Oxycontin-lyfið, framleiðendur, neytendur og svo fólk sem reyndi að láta lyfjafyrirtækið Purdue Pharma svara fyrir starfshætti sína.

„Af því verður maður ríkastur“
Þýskur listmálari og íslenskur æðarbóndi sem skilja ekki tungumál hvors annars láta það ekki setja stein í götu vinskaparins. Síðan þeir kynntust hefur æðarbóndinn orðið að aðalgagnrýnanda listmálarans sem lætur nú ekkert frá sér nema bóndinn sé búinn að sjá það.