

MMA
Nýjustu fréttir af Gunnari Nelson og fleiri MMA-köppum.

Allir dómararnir dæmdu bardaga Gunnars og Burns eins
Gilbert Burns vann tvær af þremur lotum gegn Gunnari Nelson.

Gunnar: Ég er að tapa og það sökkar
Gunnar Nelson var að vonum niðurlútur er Vísir hitti á hann skömmu eftir tapið gegn Gilbert Burns í Kaupmannahöfn.

Burns: Vissi að ég hefði unnið er ég náði fellunni
Það var eðlilega létt í Brasilíumanninm Gilbert Burns eftir sigurinn á Gunnari Nelson í kvöld. Sá sigur gefur honum mikið fyrir framhaldið.

Gunnar Nelson tapaði fyrir Burns
Brasilíumaðurinn Gilbert Burns sigraði Gunnar Nelson á bardagakvöldi UFC í Kaupmannahöfn. Eftir þrjár lotur gáfu allir þrír dómarar bardagans Burns 29 stig og Gunna 28.

Í beinni: Gunnar Nelson - Gilbert Burns | Mikið undir í Köben
Gunnar Nelson mætir Brasilíumanninum Gilbert Burns á bardagakvöldi í Kaupmannahöfn í kvöld. Vísir er á staðnum.

Calderwood: Eins og Gunni sé að berjast við sjálfan sig
Íslandsvinurinn og skoska UFC-bardagakonan Joanne Calderwood er í Kaupmannahöfn og ætlar sér ekki að missa af bardaga Gunnars Nelson í kvöld.

The Grind | Gunnar á rassinum og dansar salsa í Köben
Í nýjasta þættinum af The Grind með Gunnari Nelson er komið víða við. Gunnar er bæði nakinn í þættinum og dansar salsa.

Leon: Ég held að Gunni taki Burns
Bretinn Leon Edwards, sem hafði betur gegn Gunnari Nelson í London í mars, er mættur til Kaupmannahafnar og verður staddur á bardaga Gunnars og Gilbert Burns í kvöld.

Gunnar: Væri til í að berjast í kvöld
Það var létt yfir Gunnari Nelson í kvöld eftir að hafa stigið á vigtina fyrir framan fjölda áhorfenda. Það var meira klappað fyrir honum heimamönnunum sem segir sitt um baklandið sem hefur fylgt honum hingað.

Fimmta lotan: Mikið undir hjá Gunnari í Köben
Henry Birgir Gunnarsson og Pétur Marinó Jónsson settust niður á hóteli UFC í Kaupmannahöfn og fóru yfir stöðuna fyrir bardaga Gunnars Nelson um helgina.

Luka: Gunnar æfði þrisvar sinnum meira en venjulega
Luka Jelcic, einn af þjálfurum Gunnars Nelson, er í skýjunum með standið á Gunnari fyrir bardaga hans gegn Gilbert Burns á morgun. Hann segir Gunnar vera í rosalegu formi.

Sjáðu Gunnar og Burns á vigtinni
Gunnar Nelson og Gilbert Burns náðu báðir löglegri þyngd er þeir stigu á vigtina í morgun. Bardagi þeirra er því formlega staðfestur.

Gunnar og Burns báðir í löglegri þyngd
Vigtunin fyrir bardagakvöldið í Kaupmannahöfn fór fram snemma í morgun en kapparnir höfðu þá tvo tíma til þess að stíga á vigtina.

Burns: Gunnar er með marga veikleika
Brasilíumaðurinn Gilbert Burns er mjög spenntur fyrir komandi bardaga gegn Gunnari Nelson. Hann er handviss um að þetta verði hans kvöld því hann sér veikleika í stíl Gunnars.

The Grind | Gunnar æfði með Dalby í Köben
The Grind heldur áfram að fylgjast með Gunnari Nelson í bardagavikunni. Í gærkvöldi fór Gunnar að æfa með Dananum Nicolas Dalby.

Stórsér enn á Oliveira tæpu ári frá því hann lenti í "rakvélablöðum“ Gunnars Nelson
Brasilíumaðurinn Alex Oliveira er í Köben en hann fór mjög illa út úr bardaga sínum gegn Gunnari Nelson í Toronto. Vísir heilsaði upp á kappann.

Gunnar og Burns hittust í fyrsta skipti | Myndband
Fjölmiðladagurinn fyrir bardagakvöld UFC í Kaupmannahöfn var í morgun á hóteli bardagakappanna. Þar horfðu Gunnar Nelson og Gilbert Burns í augu í fyrsta skipti.

Maður er alltaf að brýna alla sína hnífa
Gunnar Nelson er orðinn 31 árs gamall og með hækkandi aldri kemur meiri reynsla. Okkar maður hefur gengið í gegnum súrt og sætt síðustu árin en hvað hefur hann lært?

Gunnar: Væri rosalega gaman að ná uppgjafartaki á Burns
Gunnar Nelson fer ekkert leynt með það að stefnan sé að klára Brasilíumanninn Gilbert Burns á laugardag en ekki setja bardagann í hendurnar á dómurunum.

Burns: Mun reyna að klára Gunnar eins fljótt og ég get
Nái Gilbert Burns að hafa betur gegn Gunnari Nelson á laugardag þá munu klárlega opnast nýjar dyr fyrir hann og ekki útilokað að hann komist inn á styrkleikalista UFC.

Gunnar: Kannski kemur Burns dýrvitlaus út úr horninu
Gunnar Nelson var ekki alveg nógu ánægður með sig í síðasta bardaga gegn Leon Edwards og hefði viljað vera miklu grimmari en hann var.

Gunnar er lítillega meiddur: Ekkert til að hafa áhyggjur af
Gunnar Nelson er ekki alveg heill heilsu í aðdraganda bardagans gegn Gilbert Burns en þeir berjast í Kaupmannahöfn á laugardag.

Gunnar: Burns er öflugri en Alves
Gunnar Nelson stígur inn í búrið í Kaupmannahöfn næstkomandi laugardag er hann berst við Brasilíumanninn Gilbert Burns.

Burns: Gunnar hentar mér vel
Brasilíumaðurinn Gilbert Burns er mættur til Kaupmannahafnar þar hann mun berjast við Gunnar Nelson á laugardag. Hann mætti í toppformi þó svo hann hafi tekið bardagann með skömmum fyrirvara.

The Grind með Gunnari Nelson | Gunnar aldrei verið sterkari
Mjölnir hitar upp fyrir bardaga Gunnar Nelson með þáttunum "The Grind með Gunnar Nelson“ en fylgst er með æfingabúðum bardagakappans í fyrsta þætti.

Gunnar æfði af krafti í Köben | Myndir
Gunnar Nelson er ekkert að eyða tímanum í Kaupmannahöfn í vitleysu og hann var fljótur að mæta á æfingu eftir lendingu í Danaveldi.

Gunnar mættur og borðar rétt fyrir bardagann
Gunnar Nelson kom til Kaupmannahafnar í gær en á laugardag mun hann berjast við Brasilíumanninn Gilbert Burns í hinni glæsilegu Royal Arena.

UFC staðfestir bardaga Gunnars og Burns
Það er búið að bíða eftir þessu í nokkra daga en UFC staðfesti loks í morgun að Gunnar Nelson mun berjast við Brasilíumanninn Gilbert Burns í Kaupmannahöfn eftir rúma viku.

Burns segist vera búinn að samþykkja bardagann við Gunnar
Það hefur ekki enn komið staðfesting frá UFC en Gilbert Burns segist vera búinn að skrifa undir samning um að berjast við Gunnar Nelson þann 28. september í Kaupmannahöfn.

Conor að snúa aftur?
Conor McGregor birti athyglisvert tíst á Twitter-síðu sinni í nótt þar sem hann skrifaði einfaldlega daginn 14. desember og borgina Dublin.