

Neytendur
Neytendafréttir af íslenskum markaði.

Fjöldi fyrirtækja skellti í lás í dag
Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir fjölda fyrirtækja skella í lás í dag á fyrsta degi herts samkomubanns.

Reiknivél fyrir hlutastarfsútreikninga
Útbúin hafa verið reiknilíkön til að meta áhrif nýrra laga um aukinn rétt til atvinnuleysisbóta við minnkað starfshlutfall starfsmanna á almennum vinnumarkaði.

Fá margar kvartanir vegna dónalegra viðskiptavina
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að félaginu hafi borist töluvert af kvörtunum frá verslunum vegna þess dónaskapar sem viðskiptavinir sýna starfsfólki búðanna.

Frystikistur og vefmyndavélar rjúka út á tímum kórónuveiru
Gríðarmikil aukning hefur verið í sölu á vefmyndavélum og öðrum fjarfundarbúnaði síðustu vikur og er svo komið að slíkar myndavélar eru hér um bil uppseldar.

Ekki útilokað að innfluttar vörur hækki í verði
Ekki er útilokað að innfluttar vörur kunni að hækka í verði að sögn fjármálaráðherra í ljósi þess að blikur eru á lofti í efnahagsmálum og flugsamgöngur í lamasessi. Því sé tilvalið að styðja við íslenska framleiðslu að hans mati.

Costco lækkar bensínverð duglega
Meðfram lækkandi heimsmarkaðsverði á olíu hefur mátt gæta verðlækkunar við bensíndælurnar - hvergi þó meiri en hjá Costco í Kauptúni.

Almennt ekki hægt að afpanta vöru eða þjónustu án þess að greiða seljanda bætur
Afpöntun á vöru og/eða þjónustu sem þegar hefur verið bókuð getur almennt ekki farið fram bótalaust.

Leiðrétta misskilning sem spratt upp vegna merkinga á spritti
Sprittbrúsar sem nú eru seldir í verslunum hér á landi hafa vakið athygli fyrir umbúðir sem taldar eru geta valdið misskilningi um að um drykk sé að ræða. Framleiðendur sprittsins hafa ráðist í breytingar til að eyða slíkum misskilningi.

World Class frystir ekki kort vegna kórónuveirunnar
Líkamsræktarstöðin World Class ætlar ekki að frysta líkamsræktarkort hjá þeim viðskiptavinum sem óska eftir því.

Telur galið að Heimsferðir vilji fljúga með sig á hááhættusvæði
Jónína Símonardóttir segir farþega í spennitreyju, þeir verði að ákveða sjálfir hvort þeir fari eða ekki.

Bankarnir bregðast við ástandinu
Stóru bankarnir munu bjóða viðskiptavinum sínum að gera hlé á afborgunum íbúðalána til að auðvelda þeim að takast á við áskoranir í tengslum við útbreiðslu kórónuveirunnar.

Skilja ekkert í því af hverju fólk er að hamstra klósettpappír
Alma Möller og Andrés Magnússon segjast lítið skilja í því af hverju einhverjir hafa ákveðið að hamstra klósettpappír síðustu daga.

Samgöngustofa segir að flugfarþegar eigi endurgreiðslurétt
Flugfarþegar eiga rétt á fullri endurgreiðslu farmiða falli flugferðir niður hætti flugrekandi við flugferðir.

Örtröð í verslunum: „Það er til nóg af vöru í landinu“
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir að oft sé sagt að almenning skynsemi sé ekki mjög almenn. Það eigi ekki við um Íslendinga. Íslendingar séu almennt með mjög góða skynsemi.


Munu horfa til þess að styðja viðskiptavini Landsbankans í erfiðu árferði
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir bankann í stakk búinn að mæta áföllum viðskiptavina vegna þess ástands sem hefur skapast vegna kórónuveirunnar.

Þarf að skoða nánast hvert tilfelli fyrir sig þegar kemur að réttindum flugfarþega eftir ferðabann Trump
Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir að samtökin hafi fengið fjölmargar fyrirspurnir varðandi hver réttindi flugfarþega séu nú þegar Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hefur sett á ferðabann frá Evrópu til Bandaríkjanna.

Nýsköpun: Viðskiptavinir geta séð hvað bankarnir gera við peningana
Í hvað nota bankarnir peningana frá viðskiptavinum? Nú geta neytendur í Bandaríkjunum valið sér banka sem falla best að þeirra eigin gildum og lífsviðhorfum.

Eiga erfitt með að fá nógu marga sprittstanda
Mikið hefur gengið á í íslensku samfélagi eftir að fyrsta kórónuveirusmitið greindist hér á föstudag og hafa Íslendingar eflaust sjaldan verið duglegri að sótthreinsa sig í bak og fyrir af ótta við sýkjast af veirunni alræmdu.

Pétur og Hulda neituðu sér um matarinnkaup í fjörutíu daga og svona gekk þeim
Hjónin Pétur Guðjónsson, viðburðastjóri, leikstjóri, leikskáld, plötusnúður og dagskrárgerðarmaður, og Hulda Ingadóttir, sjúkraliði á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri, ákváðu á dögunum að fara í gegnum fjörutíu daga án þess að kaupa í matinn og aðeins borða það sem til er heima fyrir í þann tíma.

Hætta á meindýrum mistökum: Segja fyrirtækjanöfn meindýraeyða geta verið villandi
Meindýraeyðar bæði hjá hinu opinbera og í einkageiranum eru sammála um að nöfn fyrirtækja sem taki að sér slík verkefni geti valdið ruglingi hjá neytendum. Neytendasamtökin telja að framsetning slíkra fyrirtækja sé í sumum tilfellum villandi.

Íslendingar sem starfa erlendis gætu brátt tekið lán í íslenskum krónum
Fjármála- og efnahagsráðherra hefur birt til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lánum sem tengjast erlendum gjaldmiðlum.

Opna fyrstu sérverslun sína í sögufrægu húsi í Hafnarstræti
ORF líftækni opnar í dag fyrstu Bioeffect sérverslun sína á Íslandi við Hafnarstræti 19. Verslunin er staðsett í húsinu sem áður hýsti Rammagerðina en það var reist árið 1925.

Í aðdraganda aðalfunda: Fjögur atriði úr skýrslu Jeff Bezos
Í aðdraganda aðalfundarhrinunnar sem framundan er rýnum við í skýrslu Jeff Bezos forstjóra Amazon frá því í fyrra. Hverjar eru áherslur farsæls leiðtoga og eins ríkasta manns heims?

Coronakaup Íslendinga stóraukist á síðustu vikum
Vínbúðirnar hafa merkt umtalsverða söluaukningu á Corona-bjór frá upphafi árs.

Prikið áfram vegan: Enginn munur á að leggja sér svín eða hund til munns
Aðstandendur Priksins hafa tekið ákvörðun um að kaffihúsið verði vegan til frambúðar.

Bein útsending: Grænt frumkvæði fyrirtækja
Félag atvinnurekenda boðar til opins fundar um umhverfismál í dag.

Hristu af sér hræðsluna og kynntu nýjan Royal-búðing til leiks
Í fyrsta sinn síðan sítrónubúðingurinn var kynntur leiks fyrir 55 árum hefur Royal kynnt nýja búðingabragðtegund til sölunnar.

Two Birds kaupir Aurbjörgu
Fjártæknifyrirtækið Two Birds, sem hefur sérhæft sig í þróun á nýjum og notendavænum viðskiptalausnum á fasteigna- og fjármálamarkaði, hefur fest kaup á Aurbjörgu.

Kalla inn kjúkling vegna gruns um salmonellu
Matvælastofnun hefur varað við neyslu á kjúklingi frá Matfugli sem seldur var undir mekjum Bónus, Ali eða FK.