

Sebastian Alexanderson, þjálfari HK í handbolta, var allt annað en sáttur eftir 4 marka tap á móti FH er liðin mættust í Kórnum í kvöld. FH leiddi leikinn nánast frá upphafi. Lokatölur 29-25.
Stefán Árni Pálsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson fóru yfir komandi þriðju umferð í Olís deild karla í handbolta í sérstökum aukaþætti af Seinni bylgjunni sem finna má hér inn á Vísi.
Haukar rúlluðu yfir Selfyssinga sem voru afar andlausir og litu út fyrir að hafa takmarkaðan áhuga á að veita Haukum mótspyrnu.Yfirburðir Hauka voru það miklir að það var orðið ljóst í hálfleik hvert stigin tvö færu. Haukar unnu á endanum níu marka sigur 31-22.
Selfoss átti aldrei möguleika gegn Haukum á Ásvöllum í kvöld. Haukar unnu leikinn með níu mörkum 31-22. Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari Selfoss, var afar svekktur með liðið sitt eftir leik.
„Það er alltaf skemmtilegt og gott að ná að sigra,“ sagði Erlingur Richardsson, þjálfari ÍBV eftir nauman sigur sinna manna á FH í Olís-deild karla í dag.
ÍBV vann í dag nauman sigur á FH í Olís-deild karla í handbolta. Eyjamenn reyndust sterkari aðilinn á lokakaflanum og lönduðu að lokum eins marks sigri, 26-25.
Fram er komið í úrslit í Coca-Cola bikarsins eftir sigur á Stjörnunni í æsispennandi leik á Ásvöllum. Lokatölur 28-25 og það er því Fram sem mætir Val í úrslitaleiknum.
Íslandsmeistarar Vals eru komnir í bikarúrslit eftir sigur á Aftureldingu 21-32. Dúndur seinni hálfleikur hjá Val gerði það að verkum að þeir unnu sannfærandi ellefu marka sigur og mæta annað hvort Fram eða Stjörnunni í úrslitum Coca Cola bikarsins.
FH-ingar spiluðu á Selfossi í gærkvöldi og þeir spila tvo leiki til viðbótar á næstu dögum. Það fer aðeins einn leikur fram á næstu níu dögum þar sem FH er ekki að spila.
Tuttugu og tveggja ára gamall Færeyingur hefur skorað tuttugu mörk í fyrstu tveimur leikjum Fram á Olís deild karla á tímabilinu. Seinni bylgjan fór yfir frammistöðu hans.
Einar Sverrisson, leikmaður Selfoss, var virkilega sáttur með 27-23 sigur liðsins gegn FH í Olís-deild karla í kvöld. Einar skoraði átta mörk fyrir Selfyssinga, en viðurkennir að leikur liðsins hafi ekki verið upp á marga fiska á upphafsmínútum leiksins.
Selfoss vann góðan fjögurra marka sigur á FH í kvöld, lokatölur 27-23. Segja má að markvarsla heimamanna hafi lagt grunn að sigri kvöldsins.
Ekki er algengt að menn meiðist við að taka vítakast en það gerðist samt í leik Fram og Selfoss í Olís-deild karla í síðustu viku.
HK tapaði í annað skiptið fyrir Val í september. Leikurinn einkenndist af miklum varnarleik beggja liða. Valur vann leikinn með sex mörkum 17-23. Halldór Harri Kristjánsson, þjálfari HK, var svekktur með úrslitin eftir leik.
Gunnar Magnússon, þjálfari Aftureldingar, var svekktur með jöfnunarmark Hauka undir lok leiks liðanna í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Afturelding átti síðustu sókn leiksins en klukkan rann út og leiknum lauk því með 26-26 jafntefli.
Afturelding og Haukar gerðu jafntefli í 2. umferð Olís-deildar karla í kvöld er liðin mættust í Mosfellsbæ. Lokatölur 26-26.
Fram unnu öruggan sex marka sigur á Selfoss á heimavelli í 2. umferð Olís deildar karla. Lokatölur 29-23, en leikurinn var fyrsti deildarleikur Selfoss þetta tímabilið og þrátt fyrir gott gengi í evrópukeppni EHF í síðustu viku áttu þeir erfitt uppdráttar strax frá fyrstu mínútu.
FH-ingar tóku á móti Gróttu í 2. umferð Olís-deildar karla í Kaplakrika í kvöld. FH-ingar voru með yfirhöndina bróðurpart leiksins þrátt fyrir ágætis áhlaup Gróttumanna. Lokatölur 25-22.
KA menn unnu góðan sigur á nýliðum Víkings í KA heimilinu í kvöld og eru með fullt hús stiga í Olís deild karla. Lokatölur 23-18 og var sigurinn nokkuð sannfærandi hjá heimamönnum.
Einar Jónsson, þjálfari Fram, var að vonum sáttur með sex marka sigur sinna manna gegn Selfyssingum í kvöld. Lokatölur urðu 29-23 í Safamýrinni, en Einar segir það mikilvægt að gera vel á heimavelli.
Arnar Daði Arnarsson, þjálfari Gróttu, var að vonum svekktur eftir þriggja marka tap á móti FH í Kaplakrika í dag. Lokatölur 25-22.
Sigurjón Guðmundsson, markvörður HK, stimplaði sig inn í Olís-deildina með látum í leiknum gegn KA í síðustu umferð. Hann varði sérstaklega vel úr hornunum.
Nýr liður hér á Vísi er þegar Seinni bylgjan hitar upp fyrir hverja einustu umferð í Olís deild karla í handbolta í allan vetur.
Í viðtali við Vísi eftir eins marks tap Gróttu fyrir Íslandsmeisturum Vals, 21-22, í 1. umferð Olís-deildar karla óskaði Arnar Daði Arnarsson, þjálfari Seltirninga, eftir að dómarar myndu sýna honum meiri virðingu.
Haukar unnu tveggja marka sigur á Fram, 29-27, þegar liðin áttust við á Ásvöllum í 1. umferð Olís-deildar karla í kvöld.
Einar Jónsson stýrði Fram í fyrsta sinn í deildarleik í átta ár þegar liðið tapaði fyrir Haukum í kvöld, 29-27. Hann kvaðst nokkuð sáttur með spilamennsku sinna manna en var svekktur með tapið.
Sigurjón Guðmundsson stóð vaktina í marki HK þegar að liðið tók á móti KA í fyrstu umferð Olís-deildar karla síðasta fimmtudag. Sigurjón varði 18 bolta og sérfræðingar Seinni bylgjunnar veittu honum verðskuldaða athygli. Sigurjón er sonur Guðmundar Hrafnkelssonar, fyrrum landsliðsmarkmanns Íslands.
Stjarnan hafði betur gegn Aftureldingu í hreint ótrúlegum leik í 1.umferð Olís deildar karla í kvöld en lokatölur voru 35-36 en sigurmarkið kom úr vítakasti á loka sekúndunni.
Rúnar Kárason lék sinn fyrsta deildarleik fyrir íslenskt lið í rúm tólf ár þegar ÍBV vann Víking, 27-30, í 1. umferð Olís-deildarinnar í gær.
Íslandmeistarar Vals verða að spjara sig án eins af allra bestu mönnum Olís-deildar karla í handbolta næstu mánuðina. Róbert Aron Hostert er á leið í aðgerð á hægri öxl á mánudaginn.