Dagur og Aron berjast um sæti á Ólympíuleikunum eftir stórsigur Japans Japanska karlalandsliðið í handbolta vann í kvöld öruggan ellefu marka sigur er liðið mætti Suður-Kóreu í undanúrslitum undankeppninnar um sæti á Ólympíuleikunum í París á næsta ári, 34-23. Handbolti 26. október 2023 18:26
Lærisveinar Arons tóku risaskref í átt að Ólympíuleikunum Aron Kristjánsson og lærisveinar hans í bareinska karlalandsliðinu í handbolta eru komnir í úrslit undankeppninnar um sæti á Ólympíuleikunum í París á næsta ári eftir nauman eins marks sigur gegn Katar í dag, 30-29. Handbolti 26. október 2023 17:31
Forseti IOC vill ekki útiloka það að sitja áfram þótt reglurnar banni það Forseti Alþjóða Ólympíunefndarinnar er ekki búinn að loka á þann möguleika að hann sækist eftir endurkjöri. Vandamálið er að reglurnar banna slíkt en verður þeim breytt? Sport 17. október 2023 16:01
Lýsti yfir áhyggjum um framtíð Vetrarólympíuleikanna vegna jarðhlýnunar Aðeins 10 lönd í heiminum munu vera fær um að halda snjó-íþróttakeppnir Vetrarólympíuleikana árið 2040 vegna yfirvofandi áhrifa af hlýnun jarðar. Sport 13. október 2023 23:31
Rússar útilokaðir úr Ólympíuhreyfingunni Alþjóðaólympíunefndin, IOC, hefur leyst upp starfsemi Ólympíunefndar Rússa og útilokað úr hreyfingunni. Tilkynnt var um þessa ákvörðun eftir fund framkvæmdaráðs nefndarinnar í dag. Sport 12. október 2023 15:02
Íhuga að bæta fimm íþróttagreinum við Ólympíuleikana 2028 Ólympíuleikarnir 2028 fara fram í Los Angeles í Bandaríkjunum. Það gæti farið svo að keppt verði í fimm greinum á leikunum sem verða ekki á ÓL 2024 í París. Sport 9. október 2023 22:31
Svíar syrgja Ólympíugoðsögn Sænska íþróttasamfélagið fékk sorgarfréttir í gær þegar í ljós að sænska Ólympíugoðsögnin Agneta Andersson væri öll. Sport 9. október 2023 12:00
Eyþóra nældi í ÓL-sæti og komst sjálf í úrslit: „Mjög, mjög ánægð“ Hollensk-íslenska fimleikakonan Eyþóra Elísabet Þórsdóttir stendur sig vel á heimsmeistaramótinu í fimleikum en hún keppir fyrir Holland. Sport 3. október 2023 13:55
Segir gert lítið úr landsliðinu og afreksmönnum Margfaldur Íslandsmeistari í Júdó sem er jafnframt sá besti á landinu í dag samkvæmt punktalista var ekki valinn í a-landsliðið og fær því ekki möguleika á að fara á næstu Ólympíuleika. Hann segist vonsvikinn og Júdósambandið gera lítið úr landsliðinu og afreksmönnum með því að velja ekki þá bestu. Sport 27. september 2023 09:13
Mál Valievu tekið fyrir í dag Mál rússnesku skautakonunnar Kamilu Valievu verður tekið fyrir hjá Alþjóða íþróttadómstólnum (Cas) í dag. Sport 26. september 2023 10:31
„Óheppilegir hagsmunaárekstrar“ við val styrkþega og afreksfólk sniðgengið Mikil ólga er innan júdósamfélagsins vegna nýlegs vals í verkefni, sem greiðir fyrir tvo keppendur að komast á alþjóðleg mót. Sonur gjaldkera Júdósambands Íslands er einn tveggja sem var valinn, þrátt fyrir að vera ekki meðal þeirra glímukappa sem eru efstir á stigalista. Sport 26. september 2023 09:00
Níu ára undrabarn slær í gegn á Asíuleikunum Hin níu ára Mazel Alegado er einstaklega fær á hjólabretti. Svo fær að hún fékk að keppa á Asíuleikunum þar sem hún hefur slegið í gegn. Sport 25. september 2023 23:01
LeBron og stjörnurnar ætla á Ólympíuleikana í París LeBron James og flestar af stærstu stjörnum NBA-deildarinnar í körfubolta hafa gefið til kynna að þær vilji taka þátt á Ólympíuleikunum sem fram fara í París á næsta ári. Kemur tilkynningin skömmu eftir að Bandaríkin fóru heim af HM í körfubolta með skottið á milli fótanna. Körfubolti 11. september 2023 16:00
Anton: Snertir sálina að sjá menn sem ég horfði upp til vilja sjá mann ná langt Nýstofnuð bakvarðarsveit sundmannsins Antons Sveins McKee skorar á fyrrverandi íþróttafólk að stofna sveit fyrir sitt fólk. Sport 22. ágúst 2023 12:01
Telur afar ólíklegt að Rússar fái að keppa á Ólympíuleikunum Lord Coe, forseti alþjóðafrjálsíþróttasambandsins, segir að sér þyki ólíklegt að íþróttafólk frá Rússlandi og Hvíta-Rússlandi fái að taka þátt á Ólympíuleikunum í París á næsta ári. Sport 18. ágúst 2023 15:00
Sterk byrjun dugði skammt gegn Úkraínu Ísland beið lægri hlut fyrir Úkraínu í forkeppni Ólympíuleikanna í dag en leikið er í Istanbúl í Tyrklandi. Ísland byrjaði leikinn af krafti og leiddi 18-17 eftir fyrsta leikhluta en náðu ekki að fylgja góðri byrjun eftir. Körfubolti 13. ágúst 2023 16:52
San Siro leikvanginum í Mílanó verður bjargað Ítölsku félögin AC Milan og Internazionale vildu rífa hinn sögufræga San Siro leikvang í Mílanóborg og byggja annan glæsilegan leikvang á sama stað í staðinn. Nú er ljóst að af því verður ekki. Fótbolti 11. ágúst 2023 11:01
203 löndum boðið en þrjú útundan: „Viljum ekki að allt fari út böndunum“ Ólympíusambönd 203 ríkja hafa verið boðin velkomin á Ólympíuleikana í París á næsta ári. Aðeins þrjú sambönd eru útilokuð og segir Thomas Bach, forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar, leikana eiga að verka sem sameinandi afl á tímum átaka. Sport 27. júlí 2023 13:31
Fimleikarnir hleypa Rússunum inn á ný Alþjóða fimleikasambandið hefur fellt úr gildi bann rússneskra og hvít-rússneskra fimleikamanna. Þeir mega keppa á ný en þó ekki undir fána þjóða sinnar. Sport 20. júlí 2023 10:30
Hættur við að hætta og stefnir nú á Ólympíuleikana í París Már Gunnarsson snýr nú aftur af fullum krafti í sundlaugina og mun taka þátt í heimsmeistaramótinu í Manchester nú í byrjun ágúst. Sport 17. júlí 2023 12:00
ÓL-smuga opnast fyrir stelpurnar okkar Íslenska kvennalandsliðið í handbolta fékk ekki aðeins sæti á HM upp í hendurnar frá IHF á mánudaginn, heldur einnig möguleika á að komast á Ólympíuleikana í París á næsta ári. Handbolti 5. júlí 2023 14:03
Sala áfengis bönnuð á Ólympíuleikunum í París Ekki verður hægt að kaupa áfenga drykki á leikvöngum Ólympíuleikana í París á næsta ári eftir að skipuleggjendur ákváðu að sækja ekki um undanþágu á frönsku Evin-lögunum sem banna hverskyns auglýsingar á áfengi og tóbaki. Sport 27. júní 2023 16:32
Vill skipuleggja sérstakt íþróttamót fyrir „svindlarana“ Viðskiptamaðurinn Aron D'Souza sækist eftir því að fá að skipuleggja mjög sérstakt íþróttamót og vill halda það strax á næsta ári. Sport 27. júní 2023 09:00
Húsleit hjá skipuleggjendum Ólympíuleikanna í París Franska lögreglan gerði húsleit í höfuðstöðvum undirbúningsnefndar Ólympíuleikanna í París í dag. Húsleitin er sögð tengjast rannsóknum á meintum fjárdrætti og mismunun á verktökum. Erlent 20. júní 2023 13:44
Lögreglan gerði rassíu á skrifstofu skipulagsnefndar Ólympíuleikanna Lögregluyfirvöld í Frakklandi réðust í dag inn á skrifstofur skipulagsnefndar Ólympíuleikanna sem fram eiga að fara í París á næsta ári, 2024. Sport 20. júní 2023 13:30
Segir það að vinna gullið muni ekki laga vandamálið Breski Ólympíumeistarinn Adam Peaty hefur verið að glíma við andleg veikindi og dró sig meðal annars úr keppni á breska meistaramótinu í apríl. Sport 30. maí 2023 13:01
Engin ákvörðun um úrsögn úr hnefaleikasambandi en fylgst með Hnefaleikaheimurinn logar þessa stundina. Alþjóða hnefaleikasambandið, IBA, er undir járnhæl rússnesks formanns sem styður Pútín og Bandaríkjamenn hafa stofnað eigin samband. Íslendingar fylgjast með. Sport 28. maí 2023 09:00
Forseti frönsku Ólympíunefndarinnar segir af sér einu ári fyrir ÓL í París Það er risastórt ár fram undan hjá frönsku Ólympíunefndinni enda fara Sumarólympíuleikarnir fram í París á næsta ári. Þess vegna kemur ákvörðun forseta hennar sumum á óvart. Sport 25. maí 2023 16:00
Fyrrverandi heims- og Ólympíumeistari látin, aðeins 32 ára Bandaríski spretthlauparinn Tori Bowie, sem vann til gullverðlauna á Ólympíuleikunum og heimsmeistaramóti, er látin, 32 ára að aldri. Sport 3. maí 2023 15:00
Ísland mætir Tyrklandi, Búlgaríu og Úkraínu í forkeppni Ólympíuleikana Íslenska karlalandsliðið í körfubolta verður í C-riðli í forkeppni fyrir Ólympíuleikana í París sem fram fara á næsta ári. Körfubolti 1. maí 2023 12:31