Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Aleksandar Vucic forseti Serbíu hefur sagt af sér en mótmæli hafa dunið á honum og ríkisstjórninni síðustu árin. Hann hafði setið sem forseti frá árinu 2014 og voru sjö mánuðir eftir af fimm ára kjörtímabilinu sem hófst árið 2017 þegar hann tilkynnti afsögn sína. Erlent 27.9.2026 21:39
Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Forseti Serbíu rauf þing í gær og boðaði til skyndikosninga 25. október. Hann kennir erlendum öflum um mótmæli ungs fólks gegn spillingu sem hafa verið tíð undanfarin tvö ár. Erlent 10.9.2026 07:50
Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Æðstu embættismenn Evrópusambandsins fordæmdu í dag útför Ratko Mladic, stríðsglæpamanns úr Bosníustríðinu sem hlaut viðurnefnið „Slátrarinn“. Nokkrir ráðherrar í ríkisstjórn Serbíu tóku þátt í athöfninni og hermenn fylgdu kistu stríðsglæpamannsins. Erlent 8.9.2026 14:25
Orbán sakaður um sprengjutilræði Serbar segjast hafa fundið gríðarlega öflugar sprengjur við leiðslu sem flytur rússneskt jarðgas til Ungverjalands og víðar. Helsti andstæðingur Orbán Ungverjalandsforseta sakar hann um að hafa ætlað að sprengja leiðsluna í loft upp. Erlent 6. apríl 2026 10:05
Efnaðir Ítalir sagðir hafa myrt fólk í Sarajevo sér til ánægju Ákæruvaldið í Mílanó hefur hafið rannsókn á ásökunum um að einstaklingar frá Ítalíu hafi greitt hermönnum Radovan Karadžić, fyrrverandi leiðtoga Bosníu-Serba, fyrir að fá að koma og skjóta og drepa almenna borgara í Sarajevo. Erlent 12. nóvember 2025 06:53
Ráðist að fjölmiðlafólki með ofbeldi og fúkyrðum Ítrekað er ráðist að fjölmiðlafólki í Serbíu með ofbeldi. Ritstjóri á nær einu frjálsu sjónvarpsfréttastöð landsins biðlar til Evrópuríkja um að fordæma aðför ráðamanna að fjölmiðlafrelsi. Forseti Serbíu freisti þess að ná stjórn á miðlinum. Erlent 26. október 2025 20:02
Serbneskur stríðsglæpamaður farinn yfir móðuna miklu Foringi serbneska hersins sem var dæmdur sekur um stríðsglæpi í Kósovóstríðinu lést í gær, innan við mánuði eftir að honum var sleppt úr fangelsi. Undir stjórn hans myrti og pyntaði herinn Kósovóalbani sem börðust fyrir sjálfstæði. Erlent 21. október 2025 11:04
Serbar grátbiðja stuðningsmenn að haga sér Serbneska knattspyrnusambandið biðlar til stuðningsmanna landsliðsins að haga sér almennilega í leiknum gegn Englandi í kvöld, annað gæti haft með sér slæmar afleiðingar. Fótbolti 9. september 2025 11:30
„Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur ítrekað haldið því fram að hann eigi friðarverðlaun Nóbels skilið, enda hafi hann bundið enda á eða komið í veg fyrir sex stríð. Stundum sjö. Hvaða stríð það eru sem hann er að tala um er þó ekki öllum ljóst. Erlent 20. ágúst 2025 13:01
Ævinlega þakkláti flóttamaðurinn Á þessum degi 04 ágúst, fyrir nákvæmlega þrjátíu árum varð ég flóttamaður. Ég var ein af þeim 200.000 Serbum sem voru hraktir á brott (eða drepnir) frá svæðunum sem króatíski herinn tók yfir og Serbar voru minnihluti í, og ég lifði það af. Skoðun 5. ágúst 2025 08:30
Hitamet slegið á Spáni um helgina Hitamet var slegið á Spáni í gær þegar hiti mældist 46 gráður í bænum El Granado. Útlit er fyrir að mánuðurinn verði sá heitasti í sögu Spánar samkvæmt veðurstofu landsins. Fjallað er um málið á vef BBC en hitabylgja gengur nú yfir í Evrópu. Víða hafa stjórnvöld gefið út viðvaranir vegna hita. Erlent 29. júní 2025 21:34
Sjá ekki fyrir sér framtíð í heimalandi sínu Serbar á Íslandi halda samstöðumótmælafund á Austurvelli í dag. Stúdentar í Serbíu hafa mótmælt ríkisstjórn Aleksandar Vučić í fleiri mánuði. Serbneskur námsmaður á Íslandi segist vilja sýna þeim stuðning sem berjast fyrir betri Serbíu. Innlent 15. mars 2025 11:08
Forsætisráðherra Serbíu segir af sér í kjölfar mótmæla Miloš Vučević, forsætisráðherra Serbíu, hefur sagt af sér í kjölfar mótmæla stúdenta og bænda sem stöðvuðu umferð við Autokomanda-gatnamót í Belgrad í gær. Erlent 28. janúar 2025 11:00
Hætta að rukka í almenningssamgöngurnar Borgaryfirvöld í serbnesku höfuðborginni Belgrad hafa ákveðið að gera notkun almenningssamgangna í borginni gjaldfrjálsa frá og með áramótum. Er þetta liður í því að reyna að létta á umferð í borginni og draga úr töfum. Erlent 19. desember 2024 07:53
Þjóðarleiðtogar kasta kveðju á Trump Þjóðarleiðtogar heimsins og aðrir leiðtogar eru byrjaðir að kasta kveðjum á Donald Trump og hrósa honum fyrir væntanlegan sigur hans í forsetakosningunum í Bandaríkjunum. Þeirra á meðal eru Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, og Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands. Erlent 6. nóvember 2024 08:46
Létust þegar skyggni hrundi ofan á þau í Serbíu Átta manns eru látnir eftir að steypuskyggni á járnbrautarstöð í næststærstu borg Serbíu í dag. Tveir til viðbótar eru slasaðir, þar á meðal karlmaður sem þurfti að aflima, og fleiri voru fastir undir brakinu. Erlent 1. nóvember 2024 15:56
Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Lögreglan í Serbíu handtók í gær leigumorðingja sem myrti mann í Belgrad fyrir skipulögð glæpasamtök árið 2021. Leigumorðinginn er sagður hafa dulbúið sig sem gamlan mann til þess að nálgast fórnarlambið. Erlent 16. október 2024 09:05
Stuðningsmenn gengu berserksgang og þjálfarinn fann fyrir því Stuðningsmenn serbneska liðsins Partizan Belgrad voru allt annað en sáttir með sitt lið sem laut í lægra haldi, 4-0, gegn erkifjendum sínum í Rauðu stjörnunni í gærkvöldi. Þjálfari liðsins hlaut höfuðáverka eftir leik og þá létu þeir óánægju sína bitna á búningsklefa liðsins. Fótbolti 24. september 2024 11:01
Hóta því að hætta keppni á EM Serbar eru mjög ósáttir með söngva stuðningsmanna Króatíu og Albaníu á leik þjóðanna á Evrópumótinu í knattspyrnu í gær. Fótbolti 20. júní 2024 07:38
Mótmælendur reyndu að brjótast inn í ráðhús Belgrad Lögreglumenn í Belgrad, höfuðborg Serbíu, beittu í gær táragasi á mótmælendur sem mótmælt hafa ríkisstjórninni eftir að niðurstöður þingkosninga voru birtar í síðustu viku. Stjórnarandstöðufólk segir að um kosningasvik sé að ræða. Erlent 25. desember 2023 13:33
Flokkur forsetans með stórsigur í þingkosningum Flokkur Aleksandar Vucic Serbíuforseta virðist hafa unnið stórsigur í þingkosningum sem fram fóru í landinu í gær. Forsetinn segir stefna í að flokkurinn nái að tryggja sér hreinan meirihluta. Erlent 18. desember 2023 08:00
Slítur þingi og boðar til nýrra kosninga Aleksandar Vucic, forseti Serbíu, hefur slitið þingi og boðað til nýrra kosninga sem halda á þann 17. desember. Með þessu er Vucic sagður vilja tryggja yfirráð sín en mikill spenna ríkir í kringum Serbíu í tengslum við málefni Kósovó. Erlent 1. nóvember 2023 14:58
Krefjast þess að serbneski herinn hörfi frá landamærum Kósóvósk stjórnvöld hafa krafist þess serbneski herinn hörfi tafarlaust frá landamærum ríkjanna. Töluverð ólga hefur skapast milli ríkjanna á síðustu vikum. Innlent 1. október 2023 22:49
Fjórir látnir eftir umsátur í Kósovó Fjórir eru látnir eftir að hópur vopnaðra manna girti sig af í klaustri í Kósovó, nærri landamærunum að Serbíu, í dag. Umsátursástand myndaðist og kom til fjölda skotbardaga milli mannanna og kósovósks lögregluliðs. Erlent 24. september 2023 23:46