

Skóla- og menntamál
Fréttir af skóla- og menntamálum á Íslandi.

Brunaeftirlitsmenn neita að láta flytja sig hreppaflutningum norður á Sauðárkrók
Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra vill deildina heim í hérað.

Framhaldsskólanemar vonsviknir með frumvarp um Menntasjóð
Samband íslenskra framhaldsskólanema, SÍF, lýsir yfir vonbrigðum með að frumvarp menntamálaráðherra um Menntasjóð námsmanna hafi verið samþykkt á Alþingi í gær án þess að komið væri til móts við bóknámsnemendur í framhaldsskólum.

Svandís vonar að ekki komi til verkfalls hjúkrunarfræðinga
Heilbrigðisráðherra segir unnið að því á bæði óformlegum og formlegum fundum að ná samningum við hjúkrunarfræðinga svo ekki komi til aðgerða þeirra hinn 22. júní.

Allir flokkar studdu frumvarp um Menntasjóð námsmanna fyrir utan Miðflokkinn
Menntasjóður mun leysa af hólmi Lánasjóð íslenskra námsmanna en frumvarpið var samþykkt með atkvæðum 52 þingmanna en sjö þingmenn Miðflokksins greiddu ekki atkvæði.

Fleiri verða teknir í nám í hjúkrun og boðið upp á sjúkraliðanám á diplómastigi
Gripið verður til ráðstafana til að fjölga nemum í hjúkrunarfræði um árlega um tuttugu í Haskóla Íslands og annað eins við Háskólann á Akureyri. Auk þess verður boðið upp á sjúkraliðanám á diplómastigi haustið 2021 fyrir norðan.

Hugleiðing á útskriftardegi
Þessa dagana eru skólar landsins í óðaönn að útskrifa nemendur og við foreldrar fyllumst stolti á þessum merku tímamótum í lífi barnanna okkar.

Vill sjá aukið eftirlit með kaupum ungmenna á orkudrykkjum
Dósent við Vestur Virginíuháskóla vill sjá aukið eftirlit með kaupum ungmenna á orkudrykkjum. Mikil röskun er á svefni ungmenna og gríðarleg aukning á notkun svefnlyfja meðal barna.

Dúxaði með 9,7 í einkunn og stefnir á tölvunarfræði í haust
Reyn Alpha Magnúsar er annar tveggja dúxa sem útskrifaðist úr Tækniskólanum í Eldborgarsal Hörpu föstudaginn 29. maí. Reyn útskrifaðist af tölvubraut með 9,7 í einkunn og dúxaði hán ásamt Njáli Halldórssyni sem útskrifaðist af náttúrufræðibraut flugtækni.

Tripical-deilan komin á borð lögmanna
Eigandi ferðaskrifstofunnar Tripical er ósammála um að henni beri skylda að endurgreiða nemendum Menntaskólans á Akureyri útskriftarferð þeirra. Málið er komið í hendur lögmanna og foreldri skoðar að höfða dómsmál.

Tripical mun ekki endurgreiða nemendum MA vegna útskriftarferðar
Ferðaskrifstofan Tripical mun ekki endurgreiða nemendum Menntaskólans á Akureyri vegna útskriftarferðar sem raskaðist vegna heimsfaraldurs. Formaður neytendasamtakanna segir að ferðaskrifstofunni beri að endurgreiða nemendum ferðina. Ferðafélag Menntaskólans á Akureyri hefur sett sig í samband við lögfræðing.

Hélt hún fengi smá frí og fengi svo að klára skólann almennilega
Arney Íris E. Birgisdóttir dúxaði í MH og stefnir á að fara í nám í Alþjóðasamskiptum í samblandi við lögfræði. Hún ætlar þó að taka sér árspásu, vinna og ferðast ef kórónan leyfir.

Rannsóknarsetri á Laugarvatni lokað eftir að HÍ sagði sig frá samningi
Háskóli Íslands er búinn að segja sig frá samningi við samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytið um rekstur þéttbýlisseturs og rannsóknarseturs um sveitarstjórnarmál Laugarvatni.

Nýstofnuð sjávarakademía einblínir á sjálfbærni, umhverfismál og nýsköpun
Sjávarakademía Sjávarklasans var sett á laggirnar í dag í nánu samstarfi við Fisktækniskóla Íslands. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra, opnaði Sjávarakademíuna formlega í Húsi sjávarklasans í dag.

Vellíðan skólanemenda
Í Garðabæ er framsækið og öflugt skólastarf á öllum skólastigum þar sem hagsmunir nemenda eru ávallt í fyrirrúmi.

Dúxaði í Verzló og stefnir á rafmagnsverkfræði í King's College
„Þetta var mjög frábrugðið öllu sem við þekktum og það var svolítið sjokk að fara beint úr dagskóla í 100 prósent fjarnám,“ segir Snædís Edwald Einarsdóttir, sem útskrifaðist af eðlisfræðibraut úr Verzlunarskóla Íslands og lauk hún náminu með 9,73 í einkunn og varð jafnframt dúx.

Dúxaði MR með 9,84: „Ég held það sé alltaf einhver söknuður“
„Þetta var mjög frábrugðin önn, þetta kom mjög á óvart. Ég man svo vel eftir því þegar við vorum í skólanum og við vorum að horfa á blaðamannafundinn inni í stofu þegar þetta var tilkynnt um samkomubannið. Ég hélt að við myndum bara koma aftur í skólann, ég var alveg viss um það,“ segir Katla Rut Robertsdóttir Kluvers, dúx í MR.

Takmarkanir á skólastarfi mögulega með öðrum hætti komi önnur bylgja Covid
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, segir að endurmeta þurfi takmarkanir á skólastarfi ef komi til annarrar bylgju kórónuveirufaraldursins. Staðreyndir sem lúti að börnum varðandi Covid, það að veiran smitist lítið milli barna, að börn verði lítið veik og þau smiti nánast ekkert, gætu orðið til að takmarkanir verði með öðrum hætti.

Sjálfstætt starfandi leikskólar í borginni fá sömu afslætti og aðrir
Borgarráð samþykkti í gær tillögu um að tryggja foreldrum barna sem sækja sjálfstætt starfandi leikskóla samskonar afslátt og gefinn var öðrum leikskólum vegna þjónustuskerðingar sem faraldurinn hafði í för með sér.

Ingi Garðar og Björg taka við stjórn hjá skólahljómsveitum í borginni
Ingi Garðar Erlendsson hefur verið ráðinn stjórnandi Skólahljómsveitar Vesturbæjar og Miðborgar og Björg Brjánsdóttir hefur verið ráðin stjórnandi Skólahljómsveitar Austurbæjar.

Kerfi fyrir fólk en ekki fólk fyrir kerfi
Kerfið á að vera hannað fyrir fólk. Þessi setning er mikilvæg áminning fyrir okkur sem störfum í stjórnmálum.

Tuttugu nemendur útskrifaðir úr Jafnréttisskólanum
Fulltrúar frá tíu löndum útskrifuðust með diplóma á meistarastigi í alþjóðlegum jafnréttisfræðum frá Alþjóðlegum jafnréttisskóla GRÓ (GRÓ-GEST) við Hugvísindasvið Háskóla Íslands á föstudaginn.

Starfsmaður á frístundaheimili leystur frá störfum vegna gruns um kynferðisbrot gegn nemendum
Starfsmaður á frístundaheimili í Hafnarfirði er grunaður um að hafa brotið kynferðislega gegn tveimur nemendum í 1. bekk í síðustu viku. Hann hefur verið leystur frá störfum á meðan rannsókn stendur yfir.

Spenntust fyrir brenniboltaleik milli kennara og nemenda
Hreyfivika UMFÍ hefst á morgun, mánudaginn 25. maí og stendur hún til sunnudagsins 31. maí næstkomandi.

Biður umboðsmann barna um aðstoð vegna myglueinkenna
Ætlar að senda umboðsmanni barna bréf á morgun og óskar eftir aðstoð.

Engar reglur kveði á um að skólavist skuli synjað hafi ytra mat ekki farið farm
Formaður sjálfstætt starfandi skóla segir rök fyrir synjun Reykjavíkurborgar á skólavist fatlaðra barna í Arnarskóla í Kópavogi ekki standast skoðun.

Segir sérskólaúrræði borgarinnar í lamasessi
Borgarfulltrúi kallar eftir því að borgin reki sambærilegt úrræði og fer fram í Arnarskóla í Kópavogi.

Segir nauðsynlegt að úttekt sé gerð á Arnarskóla
„Skólakerfið á Íslandi er í sífelldri þróun og sveitarfélögin og skólafólkið sýnir sífellt þá viðleitni að gera betur. Það hafa á liðnum misserum komið fram sérskólaúrræði á vegum sjálfstætt starfandi aðila sem lög um grunnskóla hafa ekki náð nægilega vel utan um,“ sagði Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.

Segja dóttur sinni mismunað hjá Reykjavíkurborg: „Ekki á okkur leggjandi að berjast við kerfið líka“
Foreldrar fimm ára einhverfar stúlku með þroskahömlun segja dóttur sinni mismunað hjá Reykjavíkurborg, þar sem henni hefur verið synjað um skólavist í sérskóla í Kópavogi. Þau segja engan skóla í borginni henta þörfum dóttur þeirra og benda á að fjögur börn sem búsett eru í Reykjavík sæki umræddan skóla.

Tæknilæsið og skólakerfið
Um þessar mundir blása stjórnvöld til sóknar og leggja til aukna fjármuni í tækniframþróun. Leggja á fé í rannsóknir, auka stuðning við sprotafyrirtæki og efla tæknimenntun í verk- og listgreinum svo eitthvað sé nefnt.

Friðlýsir elsta hluta skólabygginga Bifrastar
Friðlýsingin tekur til ytra borðs samkomuhúss frá 1950, veggfastra innréttinga í samkomusal og setustofu samkomuhúss, ytra borðs tengigangs milli samkomuhúss og gistiálmu og veggmyndar á tengigangi eftir Hörð Ágústsson listmálara.