
Háskóladeginum á Akureyri slegið á frest
Háskóladeginum á Akureyri, sem átti að fara fram á morgun, laugardaginn 7. mars hefur verið frestað.
Fréttir af skóla- og menntamálum á Íslandi.
Háskóladeginum á Akureyri, sem átti að fara fram á morgun, laugardaginn 7. mars hefur verið frestað.
Betri veg yfir Öxi var svarið þegar Djúpavogsbúar voru spurðir í þættinum Um land allt á Stöð 2 um hvað helst þyrfti að bæta til að styrkja samfélagið á Djúpavogi.
Félagsdómur hefur dæmt samúðarverkfall félagsmanna Eflingar sem starfa hjá einkareknum skólum ólögmætt. Verkfallið átti að hefjast á hádegi næstkomandi mánudag, 9. mars.
Nýir boltavellir og leiksvæði með trampólínum og pókóvöllum koma við Vesturbæjarskóla í sumar. Kostnaðaráætlun hljómar upp á 90 milljónir króna.
Prófnefnd viðurkenndra bókara sendi í dag póst á útskriftarnema og greindi frá því að útskriftarathöfn myndi ekki fara fram á morgun vegna kórónuveirufaraldursins.
Þóranna K. Jónsdóttir markaðsstjóri SVÞ og Sara Dögg Svanhildardóttir fræðslustjóri SVÞ segja atvinnulífið þurfa stuðning til að hraða stafræna þróun hjá íslenskum fyrirtækjum og menntakerfinu þurfi að breyta og það hratt. Í dag fjallar Atvinnulífið á Vísir um stafræna þróun á Íslandi miðað við stöðuna í dag.
Kennari við Fjölbrautarskóla Suðurlands, sem sætir nú sóttkví vegna kórónuveirunnar, vinnur að heiman á meðan á sóttkvínni stendur. Skólameistari segir alla almennt sátta við fyrirkomulagið.
Foreldrar kalla eftir að deiluaðilar rísi undir ábyrgð og semji.
Hafin er þriðja vikan í ótímabundnu verkfalli Eflingarstarfsfólk hjá Reykjavíkurborg.
Háskóladagurinn fer fram í dag en á honum kynna sjö háskólar landsins yfir 500 námsbrautir í húsakynnum Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík og Listaháskóla Íslands.
Stefnuleysi og ábyrgðarleysi þegar kemur að menntun einstaklinga utan höfuðborgarsvæðisins
Öll þau sem keppt hafa í Gettu Betur eiga sér eina spurningu sem liggur á þeim eins og hlass af múrsteinum. Eina spurningin sem þau klúðruðu.
Francis Bacon sagði: "Mennt er máttur“. Annað frægt skáld orti: "Sterkasta sverðið er kennsla og þekking“. Heldur minna ljóðrænna væri ef einhver segði að með aukinni þekkingu fást betri atvinnutækifæri eða að með hverri blaðsíðu sem þú lest í bók, hækka mánaðarlaun þín í framtíðinni.
Ungmenni sem sækja nám í fjölbrautakerfi sofa lengur á nóttunni en jafnaldrar þeirra í bekkjakerfi samkvæmt nýrri rannsókn.
Foreldrar eru uggandi yfir stöðunni í kjaradeilu félagsmanna Eflingar sem starfa hjá Reykjavíkurborg. Enginn fundur hefur verið boðaður í deilunni eftir að upp úr slitnaði í viðræðum í gær. Ekki sér fyrir endann á ótímabundnu verkfalli Eflingar.
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, beinir því til nemenda og starfsfólks skólans að fylgja ráðleggingum sóttvarnalæknis um sóttkví vegna kórónuveirunnar sem veldur sjúkdómnum COVID-19.
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Ingibjörg Guðmundsdóttir skólastjóri undirrituðu samninginn á Flateyri í gær.
Starfsmenn í flugvallarþjónustu Isavia hljóta ekki viðurkennda menntun á sviði slökkviliðs- og björgunarþjónustu hér á landi. Isavia telur ekki ástæðu til þess að gera breytingar á þessum kröfum en löggildum slökkviliðsmönnum hefur fækkað hjá félaginu.
Fjölnir Daði Georgsson lögfræðinemi við Háskóla Íslands ætlaði í skiptinám til Mílanó á Ítalíu. Þau plön eru úr sögunni vegna kórónuveirunnar en Fjölnir hugðist fljúga utan í dag.
Búið er að skipa kennara í Egilsstaðaskóla í heimasóttkví eftir að hann kom til landsins úr skíðaferð á Ítalíu.
Verulegar afbókanir hafa verið á hótelum hér á landi vegna kórónuveirunnar og fólk er uggandi vegna þróunarinnar að sögn talsmanns hóteleiganda. Öll félög í Kauphöllinni hafa lækkað tvo daga í röð. Forstjórinn segir það mjög óvenjulegt.
Til skoðunar er að hækka árlegt skrásetningargjald Háskóla Íslands sem nú er 75.000 kr. Á fundi Háskólaráðs kom fram að skrásetningargjaldið hefði ekki fylgt verðlagi. Væri það tengt verðlagi myndi gjaldið vera í kringum 104.000 kr. árið 2020. Gjöldin hafa ekki verið hækkuð síðan árið 2014.
Sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar hefur mestar áhyggjur af einstæðum foreldrum og foreldrum með lítið bakland vegna yfirstandandi verkfalls Eflingarstarfsfólks. Staðan sé einna verst í Breiðholti.
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra segir breytingar á námslánakerfinu löngu tímabærar og hún sé spennt að sjá það mál klárast í þinginu.
Þórunn Pétursdóttir, bæjarfulltrúi í Hveragerði, getur ekki samþykkt nýja næringastefnu bæjarfélagsins því þar er börnum í Hveragerði ráðlagt að drekka tvö glös af mjólk á dag til að tryggja kalkinntöku. Hún segir að mjólk sé fyrir kálfa.
Draumurinn er að starfa sem bókaútgefandi eða rithöfundur en áður en haldið er út á vinnumarkaðinn ætlar hún í frekara háskólanám.
Á sjötta hundrað félagsmanna Eflingar greiða atkvæði um vinnustöðvun í næstu viku.
Foreldrar leikskólabarna um alla Reykjavík hafa misst úr vinnu, tekið börnin með sér í vinnunna eða leitað til foreldra eða annarra vandamanna til að bregðast við verkfalli Eflingar. Móðir leikskólabarns segir vikuna hafa verið mikið púsluspil til að láta allt ganga upp.
Verkfall Eflingar er farið að hafa veruleg áhrif á skólastarf í nokkrum skólum borgarinnar. Hópur nemenda í Grandaskóla sat heima í dag þar sem hluta skólans hefur verið lokað þar sem ekki hefur verið hægt að þrífa hann vegna verkfallsins.
Verkfallsaðgerðir munu hefjast mánudaginn 9. mars, takist samningar ekki fyrir þann tíma.