
Byggja við alla þá framhaldsskóla sem sinna verknámi
Viðbyggingar við alla þá framhaldsskóla sem bjóða upp á verknám munu rísa á næstu fimm til sex árum til að mæta þeirri fjölgun nemenda sem viðbúið er að muni leggja stund á verknám.
Fréttir af skóla- og menntamálum á Íslandi.
Viðbyggingar við alla þá framhaldsskóla sem bjóða upp á verknám munu rísa á næstu fimm til sex árum til að mæta þeirri fjölgun nemenda sem viðbúið er að muni leggja stund á verknám.
Mennta- og barnamálaráðherra stendur fyrir morgunverðarfundi um stórtæka uppbyggingu starfsnáms í framhaldsskólum landsins í Nauthóli milli klukkan 8:45 og 10 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilara að neðan.
Á Íslandi hefur hugmyndin um jafnrétti til náms verið til grundvallar í menntakerfinu. Enda er jafn réttur til náms ein besta leiðin til að jafna stöðu þegna í þjóðfélaginu. Margt hefur verið gert í íslensku þjóðfélagi til að tryggja þennan rétt til dæmis með því að hafa hófstillt skólagjöld í háskóla og með því að veita nemendum aðgang að námslánum. Þannig hafa allir hópar þjóðfélagsins aðgang að námi og má því segja að í raun sé Ísland land tækifæranna.
Að upplifa kvíða, þunglyndi eða félagsfælni í framhaldsskóla er erfitt. Í ofanálag fá nemendur samviskubit og líður þá enn verr.
Tölvupóstur með sprengjuhótun var sendur á nokkrar stofnanir og vinnustaði í Reykjanesbæ í morgun, þar á meðal nokkra leikskóla. Ráðhúsið í Reykjanesbæ var rýmt vegna hótunarinnar. Lögregla segir ekkert að óttast en en málið sé litið alvarlegum augum.
Mygla hefur greinst á nokkrum stöðum í eldra húsnæði Melaskóla. Skólastjórnendur hafa boðið til fundar með foreldrum og aðstandendum nemenda næstkomandi mánudag.
Kæra Áslaug Arna, ráðherra háskólamála. Við erum nemendur á Verkfræði- og náttúruvísindasviði við Háskóla Íslands og höfum fylgst með þér tala ítrekað um frelsi, nýsköpun og tækifæri.
Háskóli Íslands býður upp á meistaranám í afbrotafræði frá og með haustmisseri 2023. Námið er ætlað fólki í störfum við ólíkar stofnanir sem fást við glæpi og refsingar.
Tölum aðeins um svokallaðar heimgreiðslur. Í stuttu máli eru heimgreiðslur ákveðin upphæð sem foreldrum stendur til boða til þess að vera heima með börnum sínum, oftast áður en leikskólavist hefst. Áhrifafólk hefur talað fyrir málinu, nokkur sveitarfélög, stór og smá, hafa tekið upp úrræðið og tillögur lagðar fram í öðrum sveitarfélögum, t.d. í Reykjavík.
Ákvörðun hefur verið tekin um að loka Laugargerðisskóla, sveitaskóla í miðjum Hnappadal á sunnanverðu Snæfellsnesi. Á fundi sveitastjórnar Eyja-og Miklaholtshrepps síðastliðinn mánudag, var ákveðið að óska eftir formlegum viðræðum við sveitarfélagið Stykkishólm um að veita grunn- og leikskólaþjónustu fyrir hreppinn á næsta skólaári. Kostnaður við hvert barn í skólanum eru tæpar ellefu milljónir króna.
Nemandi á unglingastigi Lundarskóla á Akureyri mætti með heimatilbúið skotvopn í skólann fyrir helgi og sýndi ógnandi hegðun gagnvart kennara. Lögregla var kölluð til vegna málsins.
„Enn er margt óljóst um áhrif hlýnunar jarðar. Áhrifanna gætir hraðar en áður var talið á stöðum sem liggja hátt og við verðum að skilja betur hvernig þeir munu halda áfram að breytast og hvernig við þurfum að bregðast við og aðlagast breytingum. Það er því afar mikilvægt að fleiri leggi stund á umhverfisfræði,“ segir Alejandro Salazar Villegas brautarstjóri Umhverfisbreytingar á Norðurslóðum (EnCHiL), tveggja ára meistaranámsbrautar við Landbúnaðarháskóla Íslands.
Aðalmeðferð í máli fimm karlmanna sem ákærðir eru fyrir vopnuð slagsmál í Borgarholtsskóla þann 13. janúar 2021 hófst á mánudag og lýkur með málflutningi verjanda á morgun. Vitnaleiðslum lýkur í dag, en sakborningarnir eru allir ákærðir fyrir brot gegn vopnalögum.
Alls útskrifuðust 5.214 nemendur með 5.248 próf á háskóla- og doktorsstigi skólaárið 2020-2021. Um er að ræða 15,5 prósent aukningu frá árinu áður. Brautskráningum á háskólastigi fjölgaði mest á sviði menntunar og líkt undanfarin ár voru konur um tveir þriðju nemenda sem luku háskólaprófi, eða 68 prósent.
Foreldrar í Garðabæ eru þakklátir fyrir að heimgreiðslur séu í boði í sínu sveitarfélagi því úrræðið auðveldi þeim að skipuleggja það átta mánaða púsluspil sem fram undan er. Foreldrar hátt í hundrað hafnfirskra barna nýta sér heimgreiðslur til að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla.
Þann 11. febrúar sl. birtist grein eftir mig á Vísi, „Um fúsk og óráðsíu háskólaráðherra“, þar sem ég gagnrýndi Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, ráðherra háskólamála, fyrir að fara illa með viðkvæma fjármuni háskólastigsins með stofnun sjóðs með það að markmiði að stuðla að auknu samstarfi íslenskra háskóla.
Aumt þykir mér að tréskipasmíði verði héðan í frá ekki löggild iðngrein. Kennslan í þessari grein á framvegis að falla undir kennslu í húsasmíði. Það er fátt skylt með húsasmíði og bátasmíði.
Þrátt fyrir að vera kominn með B.S. og Master í viðskiptafræði og vinnu í faginu ákvað Kristófer Kristófersson að setjast aftur á skólabekk. Í þetta skiptið var það hjúkrunarfræðin sem heillaði hann.
Jón Hjartarson, fyrrverandi skólastjóri á Kirkjubæjarklaustri, fræðslustjóri Suðurlands, forstöðumaður skólaskrifstofu Suðurlands og framkvæmdastjóri Fræðslunets Suðurlands er látinn. Hann lést síðastliðinn sunnudag, 78 ára að aldri.
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Jónu Katrínu Hilmarsdóttur í embætti skólameistara Menntaskólans að Laugarvatni til fimm ára frá 15. febrúar 2023.
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út í Fossvogsskóla rétt fyrir klukkan tvö í dag vegna reyks í skólabyggingunni.
Kæru vinkonur og vinir í sveitarstjórnum landsins. Nú bið ég ykkur í einlægni að standa þétt með börnum og barnafjölskyldum og láta ekki íhaldssama flokkapólitík rugla ykkur í ríminu. Heimagreiðslur eru hárétt skref núna - það er réttur barna að fjölskyldur eigi valkosti um uppeldisaðstæður þeirra eftir að fæðingarorlofi lýkur.
Umræða um leikskóla í samfélaginu er í stuttu máli þessi:Það vantar rými fyrir börn, helst eins ung og hægt erÞað vantar leikskólakennara og starfsfólkÞað er mygla í skólum
Háskóla Íslands vantar milljarð til að ná endum saman á þessu ári vegna niðurskurðar háskólastigsins. Ljóst er að niðurskurðurinn muni draga úr getu háskólanna til að sækja fram – sem jafnframt mun hafa afleiðingar fyrir sóknarfæri lands og þjóðar til framtíðar. En hvernig bregðast stjórnmálamenn við þessari stöðu, t.d. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem ætti að bera hag háskólanna fyrir brjósti og ekki síst reyna að skilja hvar skóinn kreppir að?
Borgarstjórn samþykkti síðastliðinn þriðjudag að vísa tillögum um svokallaðan foreldrastyrk til meðferðar borgarráðs. Sjálfstæðisflokkurinn leggur til að greiða 200 þúsund krónur mánaðarlega til þeirra foreldra sem þurfa eða kjósa að vera með börnin sín heima að fæðingarorlofi loknu.
Það má ætla að hljómsveitin Celebs, sem tekur þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins í ár, hafi eignast marga unga aðdáendur á síðustu dögum. Sveitin hefur verið á svokölluðum leikskólatúr á höfuðborgarsvæðinu en í dag eru þau stödd á Vestfjörðum þar sem þau hafa verið bókuð af átta leikskólum.
Borgarráð hefur samþykkt að bókasafn og félagsstöðvar- og menningarrými verði útbúið í stúku Laugardalslaugar fyrir Laugarnes- og Laugarlækjaskóla. Blásið verður til hugmyndakeppni um útfærslu hugmyndarinnar.
Sýndarveruleikagleraugu verða héðan í frá notuð í þjálfun flugmanna Icelandair. Búnaðurinn er mjög nákvæmur en með hjálp hans er hægt framkvæma nær allt sem hægt er að gera í flugstjórnarklefanum. Elísabet Inga, skutlaði nokkrum Íslendingum til Tenerife með hjálp gleraugnanna í dag.
Hluti húsnæðis Menntaskólans við Sund hefur orðið fyrir rakaskemmdum og þarf að loka tveimur svæðum í húsnæðinu. Skemmdirnar fundust við rakaskimun og sýnatöku verkfræðistofunnar EFLU vegna hugsanlegrar myglu.
Leikskólabarn á Akureyri greindist með nikótíneitrun í síðustu viku eftir að hafa sett nikótínpúða upp í sig. Púðinn kom úr nikótínpúðadós sem fannst á útisvæði leikskóla barnsins.