

Stjórnmál
Fréttir frá störfum ríkisstjórnarinnar, Alþingis og stjórnmálum almennt.

Jóhann Páll stóðst skriflega hluta ökuprófsins með bravúr
Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar stendur í ströngu á þinginu jafnt sem í einkalífinu.

Gjaldahækkanir dynja á bíleigendum um áramót
Álögur á bíleigendur um áramótin hækka mun meira en sem nemur verðlagshækkunum, samkvæmt bandormi ríkisstjórnarinnar, sem Alþingi samþykkti fyrir helgi. Talsmaður FÍB segir skattahækkanirnar bitna verst á íbúum dreifbýlisins, sem þurfa að sækja þjónustu um langan veg.

Borgin ryður land fyrir 7-9 þúsund nýjar íbúðir og atvinnuhúsnæði
Nýtt hverfi með sjö til níu þúsund íbúðum fyrir um tuttugu þúsund íbúa mun rísa á næstu árum á Keldnalandi. Formaður borgarráðs er bjartsýnn á að byggingaframkvæmdir geti hafist eftir um tvö ár en uppbyggingin er mjög tengd borgarlínu.

„Ég mun tryggja að svona gerist ekki aftur“
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra ætlar að tryggja að álíka ástand og verið hefur á Reykjanesbraut síðustu sólarhringa, með tilheyrandi raski á flugumferð, myndist ekki aftur. Hann segir flókið að taka ákvörðun um lokun brautarinnar og segir að ástandið ætti að opna augu fólks fyrir öryggishlutverki Reykjavíkurflugvallar.

Tekist á um hvort ræða ætti málefni Ljósleiðarans eða ekki
Tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að fram færi sérstök utandagskrárumræða um málefni Ljósleiðarans á borgarstjórnarfundi í dag var hafnað. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir að um umræðubann sé að ræða. Starfandi borgarstjóri sakaði fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að reyna að sjá spillingu í hverju horni.

Blöskrar brjálað bruðl Bjarna í báknið
Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar í Eyjum og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sendir Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra og fyrrverandi félögum sínum tóninn og sakar þá um gegndarlausan austur úr sameiginlegum sjóðum í opinberan rekstur. Eða báknið eins og það er stundum kallað með vísun í gamalt slagorð Sjálfstæðisflokksins: Báknið burt!

Nýtt hverfi í Reykjavík rís á Keldnalandinu
Á næstu árum mun rísa nýtt hverfi á Keldum og Keldnaholti en ríkið afsalaði sér landinu með formlegum hætti til Betri samgangna ohf. í gær. Skipulagsvinna hefst strax á næsta ári en svæðið er sagt vera álíka stórt og miðborg Reykjavíkur.

Fimmtán milljarða samningur tryggir Betri samgöngum Keldnaland
Ríkissjóður og Betri samgöngur ohf. hafa gengið frá samningi sín á milli um að félagið taki við landsvæðinu við Keldur og Keldnaholt ásamt þeim réttindum og skyldum sem því tengjast. Landið er alls um 116 hektarar eða að svipaðri stærð og miðborg Reykjavíkur að flatarmáli.

Geir segir galið að hafa verið gerður að glæpamanni
Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, segir að sér þyki vænt um það að menn hafi viljað biðja sig afsökunar á því að hafa átt þátt í að draga sig fyrir Landsdóm. Það hafi hins vegar lítið gildi nema það sé gert opinberlega.

Erfiðir skandalar áttu pólitíska sviðið í ár
Eftir tvö ár af algerri pólitískri lægð þar sem helsta þrætueplið snerist um hvort tíu, tuttugu eða fimmtíu manns mættu hittast í einu tók Alþingi aftur til eðlilegra starfa og gat einbeitt sér af stóru málunum í samfélaginu.

„Jafnvel við stjórnmálamenn getum verið skapandi“
Í seinasta mánuði kom út glæpasagan Reykjavík en Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra skrifaði bókina Ragnari Jónassyni rithöfundi. Bókin hefur hlotið verðskuldaða athygli enda ekki á hverjum degi sem stjórnmálamaður sendir frá skáldsögu á meðan setið er í embætti.

„Ekki á hverjum degi sem leigubílstjórar gera svona lagað“
Hundruð félagsmanna í Bandalagi íslenskra leigubifreiðastjóra lögðu niður störf í dag í mótmælaskyni við nýsamþykkt leigubílafrumvarp innviðaráðherra. Þeir lýsa þungum áhyggjum af breytingunum og krefjast áheyrnar stjórnvalda.

Mannúð í anda jólanna
Til hamingju elsku öryrkjar sem fáið nú viðbótar desemberuppbót skatta og skerðingalausa fyrir jólin. Ég þekki af eigin raun hversu það er sárt að vera algjörlega vanmáttugur gagnvart fátæktinni sem þúsundir mega þola í boði ríkisstjórnarinnar án þess að fá rönd við reist.

Áskorun til matvælaráðherra
Staða þeirra landsmanna sem stunda sauðfjárrækt að atvinnu hefur verið til umræðu um langa hríð án þess að nokkurt bitastætt hafi gerst í þá veru að gera því fólki rekstur sinna sauðfjárbúa bærilegan með tilliti til afkomu. Það er helst á hátíðis- og tyllidögum sem ráðamenn hafa uppi stór orð um að aðgerða sé þörf en þegar til kastanna kemur þá gerist því miður fátt.

Klisjukennd fjárhagsáætlun Sjálfstæðisflokksins í Árborg
Fjárhagsáætlun Svf. Árborgar 2023-2026 var lögð fram til fyrri umræðu 23. nóvember og seinni umræðu og staðfest þann 14. desember sl. í bæjarstjórn.

Skoði hvort borgin kaupi eigin snjóruðningstæki
Formaður borgarráðs Reykjavíkurborgar segist vilja láta skoða hvort skynsamlegt sé fyrir borgina að festa kaup á eigin snjóruðningstæki til að hægt verði að ryðja húsagötur fyrr. Til stendur að fara í húsagöturnar í dag áður en bætir í snjó eða hann verður að klaka.

Íslensk jól: fyrir alla eða bara suma?
Desember - mánuður fylltur af frosti, hálku, skammdegisþunglyndi og jú - jólum. Jólaseríur birta upp skammdegið og kakóið vermir frosna putta. Börnin telja niður dagana til jóla með ýmis konar dagatölum í formi sjónvarpsþátta, súkkulaðibita eða bóka, og fullorðna fólkið rífst um aðventuheimsóknir.

Birgir fundaði með talíbönum í Afganistan
Birgir Þórarinsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins er fyrsti erlendi stjórnmálamaðurinn til að heimsækja talíbana síðan þeir tóku völd í águst. Hann segir mikilvægt að alþjóðasamfélagið ræði við talíbana, annars muni það aðeins bitna á almenningi. Birgir hvatti ríkisstjórn talíbana til að virða mannréttindi.

Opið bréf til Dags B. Eggertssonar
Sæll Dagur. Ég sendi þér þetta bréf sem kjósandi þinn í Reykjavík. Málið varðar stöðu heimilislausra í Reykjavík en í dag bárust fregnir þess efnis að loka ætti Gistiskýlinu á Granda yfir daginn í miðjum snjóstormi. Ragnar Erling Hermannsson, notandi þjónustunnar í Gistiskýlinu, greindi frá því í dag. Þetta vekur óneitanlega upp þá tilfinningu að Reykjavík sé með þessu að bregðast lögbundinni þjónustu sinni, innan síns sveitarfélags. Ég vill leggja þetta upp fyrir þig í samhengi við baráttu fatlaðra fyrir mannréttindum á Íslandi.

Blindir sjá fyrir sér mun verri þjónustu
Leigubílafrumvarp sem rýmkar skilyrði til að reka leigubíl var samþykkt í gær. Leigubílstjórar hyggjast leggja niður störf á mánudag og þriðjudag vegna málsins og formaður Blindrafélagsins hefur áhyggjur af því að þjónusta við fatlaða muni versna til muna.

Órökstudd aðför að bláum Capri
Heilbrigðisráðherra hefur mælt fyrir innleiðingarfrumvarpi frá ESB sem mun banna Salem og Capri bláan ásamt öðrum mentol sígarettum. Tilgangurinn er að hlífa börnum, sem væri gott og blessað og sjálfsagt ef hægt væri að færa rök fyrir að mentol sígarettur hefðu einhvern tímann gert börnum eitthvað umfram aðrar sígarettutegundir. En svo er einfaldlega ekki.

Barði í borð og sagði Katrínu hafa samþykkt eiturpillu í loftslagsmálum
Heimild til þess að ríkið geti notað óseldar losunarheimildir vegna stóriðju upp í sínar eigin loftslagsskuldbindingar var samþykkt á Alþingi í dag. Þingmenn stjórnarflokkanna og Miðflokks greiddu atkvæði með frumvarpinu. Þingmaður Pírata segir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra hafa samþykkt eiturpillu inn í aðgerðaráætlun í loftslagsmálum.

Lækka endurgreiðslu á rafbílum en fjölga þeim sem geta fengið
Hámarksendurgreiðsla á virðisaukaskatti við kaup á rafmagns- og vetnisbílum lækkar á árinu 2023 úr 1,56 milljónum króna í 1,32 milljónir króna. Hámarksfjöldi bíla sem geta sótt slíka ívilnun hefur verið fjölgað úr fimmtán þúsund í tuttugu þúsund. Þetta kemur fram í nýsamþykktu frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld.

Fjárlög samþykkt og næsti þingfundur 23. janúar
Fjárlög fyrir árið 2023 voru samþykkt á Alþingi nú síðdegis. Þar með er Alþingi komið í jólafrí.

Sýndu mér fjárlögin
Í dag voru fjárlög fyrir árið 2023 samþykkt á Alþingi. Í kjölfar þeirrar afgreiðslu minnist ég þess sem formaður Samfylkingarinnar sagði fyrr í þessum mánuði: „Sýndu mér bara fjárlögin þín og ég skal segja þér hvað skiptir þig máli.“

Frumvarpið sem leigubílstjórar óttast orðið að lögum
Leigubílafrumvarp Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra var samþykkt nú síðdegis með 38 atkvæðum. Tíu þingmenn sögðu nei. Frumvarpið rýmkar skilyrði sem þarf til að reka leigubíl, meðal annars með því að afnema reglur um heildarfjölda starfsleyfa.

Markmiðið að til verði einn héraðsdómstóll í stað átta sjálfstæðra
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur hafið undirbúning að sameiningu átta héraðsdómstóla í einn héraðsdómstól. Forsenda sameiningarinnar að mati ráðherra er sú að héraðsdómstóllinn hafi áfram starfsstöðvar á landsbyggðinni þar sem núverandi dómstólar eru staðsettir. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Ingibjörg tekur við af Hörpu sem safnstjóri Listasafns Íslands
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, hefur skipað Ingibjörgu Jóhannsdóttur til að gegna embætti safnstjóra við Listasafn Íslands. Hún tekur við starfinu af Hörpu Þórsdóttir sem skipuð var þjóðminjavörður í ágúst síðastliðnum.

„Þetta er bara mjög óheppilegt“
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, segir afgreiðslu meirihluta fjárlaganefndar á viðbótarstyrkjum, sem ætlaðir voru sjónvarpsframleiðslu á landsbyggðinni, óheppilega.

Segir framkomu fjárlaganefndar í N4-málinu ekkert annað en skandal
Þingflokksformaður Viðreisnar segir vinnubrögð meirihluta fjárlaganefndar vegna 100 milljóna fjárstuðnings við N4 vera skandal. Stefnt er að því að ljúka þingstörfum fyrir jól í dag en það gæti þó dregist fram á morgundaginn.