

Subway-deild karla
Leikirnir

Jóhann Þór: Frammistaðan ekkert til að hrópa húrra yfir
Jóhann Þór Ólafsson sagði sigurinn það sem skipti máli eftir leikinn gegn Þór frá Akureyri í kvöld en var ekkert alltof sáttur með frammistöðu síns liðs.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Haukar - Valur 83-70 | Fyrsti deildarmeistaratitillinn í Hafnarfjörðinn
Haukar tóku á móti Valsmönnum í lokaumferð Domino´s deildar karla í körfubolta og unnu öruggan sigur sem tryggði þeim deildarmeistaratitilinn

ÍR getur náð fram hefndum á Stjörnuna │ Svona líta 8-liða úrslit Domino's deildarinnar út
Loka umferð Domino's deildar karla í körfubolta var leikin í kvöld og liggur nú fyrir hvaða lið mætast í 8-liða úrslitunum.

Leik lokið: Þór Þ.-KR 89-98 | KR á sigurbraut inn í úrslitakeppnina
KR-ingar eru búnir að missa frá sér deildarmeistarartitilinn í fyrsta sinn í fimm ár og fara inn í úrslitakeppnina í fjórða sæti deildarinnar eftir loka umferð Domino's deildar karla

Þrjú lið geta endað jöfn á toppnum en aðeins tvö þeirra geta orðið meistarar
Fulltrúar KKÍ verða til taks með verðlaunagripi í bæði Keflavík og á Ásvöllum annað kvöld en það skýrist í leikslok í lokaumferðinni hvaða lið hampar deildarmeistaratitilinum í ár.

Körfuboltakvöld: Eru KR-ingar orðnir saddir?
Það var stuð í framlengingunni í Dominos körfuboltakvöldi í gær þar sem tekist var á um skemmtileg málefni.

Jón Halldór um Keflavíkurliðið: „Þetta eru aumingjar“
Sérfræðingur Körfuboltakvölds var ekkert að skafa utan af hlutunum í gærkvöldi.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Tindastóll 103-102 | Tvíframlengt í Ljónagryfjunni
Tvisvar þurfti að grípa til framlengingar í Ljónagryfjunni í Njarðvík þegar Tindastóll mætti í heimsókn. Tindastóll þurfti að sigra til að eiga möguleika á deildarmeistaratitlinum.

ÍR getur enn tryggt sér deildarmeistaratitlinn
Haukar standa vel að vígi fyrir lokaumferðina í Domino's-deildinni en eru þó ekki öruggir með efsta sætið.

Ljóst hvaða lið komast í úrslitakeppnina eftir stórsigur Stjörnunnar
Eftir leiki kvöldsins er ljóst hvaða lið fara í úrslitakeppnina í Domino's deild karla í körfubolta þrátt fyrir að enn eigi eftir að spila loka umferð deildarinnar. Allt er hins vegar galopið með uppröðun liðanna í 8-liða úrslitunum.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Keflavík 99-67 | Neyðarlegt tap Keflvíkinga í Garðabæ
Stjarnan er öruggt í úrslitakeppni Domino's-deildar karla eftir að hafa pakkað andlausu liði Keflavíkur saman á heimavelli í kvöld.

Friðrik Ingi: Urðum ekki svona lélegir á einum degi
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Keflavíkur, hafði ekki áhyggjur af frammistöðu sinna manna þrátt fyrir afar slaka frammistöðu gegn Stjörnunni í Garðabæ í kvöld.

Sjö ára barn í Njarðvík gaf Ragga Nat góð ráð fyrir kvöldið
Njarðvíkingar hafa tapað tveimur leikjum í röð í Domino´s deild karla í körfubolta og fengu á sig talsverða gagnrýni í síðasta Körfuboltakvöldi.

Skólastjórinn missti sig eftir flautublokk Taylor í Seljaskóla | Myndband
Haukar voru einu skoti frá því að tryggja sér deildarmeistaratitilinn.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: ÍR - Haukar 64-62 | ÍR vann toppslaginn í háspennu í Seljaskóla
Haukar gátu tryggt sér deidlarmeistaratitilinn með sigri í Seljaskóla í kvöld en ÍR eyðilagði þær áætlanir með sterkum sigri í háspennu leik í Breiðholtinu

Umfjöllun og viðtöl: Þór Ak. 70-76 Þór Þ. | Þór Þorlákshöfn eygir enn von
Þór Þorlákshöfn er enn á lífi í baráttunni um sæti í úrslitakeppni eftir sigur á föllnum nöfnum sínum í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: KR - Höttur 86-70 | Loksins sigur hjá KR
KR-ingar unnu skyldusigur gegn föllnu liði Hattar í kvöld eftir þrjá tapleiki í röð. Höttur lét þó meistarana hafa fyrir hlutunum.

Umfjöllun: Valur - Grindavík 78-100 | Grindavík á góðri siglingu
Grindavík vann í kvöld öruggan sigur á Val og þar með sinn þriðja leik í röð.

Körfuboltakvöld: Axel er Lisa Simpson
"Axel er Lisa Simpsons, hann gerir allt rétt,“ sagði Kristinn Friðriksson um Axel Kárason, leikmann Tindastóls, í Körfuboltakvöldi í gær.

Körfuboltakvöld: Línurit Martins er alltaf á uppleið
Martin Hermannsson getur spilað með toppliði í Evrópu segja sérfræðingar Körfuboltakvölds.

Körfuboltakvöld: Spilamennska Njarðvíkur lætur Teit líða illa í hjartanu
Suðurnesjaslagur Njarðvíkur og Keflavíkur var til umræðu í Körfuboltakvöldi Kjartans Atla Kjartansson á Stöð 2 Sport í gærkvöldi.

Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll - KR 105-80 │ Fjórfaldir Íslandsmeistarar rassskelltir í Síkinu
Tindastóll rúllaði yfir fjórfalda Íslandsmeistara KR í toppslag í Síkinu í kvöld. Stólarnir voru sterkari nær allan leikinn á meðan KR náði sér aldrei á strik.

Jón Arnór: Skagfirsk flenging
"Þetta var skagfirsk flening. Við gerðum ekkert að því sem við ætluðum að gera í þessum leik,” sagði Jón Arnór Stefánsson, leikmaður KR, eftir stórt tap gegn Tindastóli í Dominos-deild karla í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Ak. - Valur 71-77 │ Valsmenn felldu Þór
Þór Akureyri er fallið úr Dominos deildinni. Þetta varð ljóst eftir sex stiga tap liðsins gegn nýliðum Vals í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld. Úrslitin þýða jafnframt að Valsmenn hafa tryggt veru sína í efstu deild.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þorl. - Höttur 94-66 │ Stórsigur í Þorlákshöfn
Þór Þorlákshöfn og Höttur mættust í Þorlákshöfn í Domino's deild karla í kvöld og fóru Þórsarar með stórsigur.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Haukar - Stjarnan 80-73 | Haukar skrefi nær deildarmeistaratitlinum
Haukar verða áfram einir á toppi Domino's deildar karla sama hvernig leikir kvöldsins og morgundagsins fara eftir að liðið vann sjö stiga sigur á Stjörnunni á Ásvöllum í kvöld.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Keflavík - Njarðvík 87-83 | Keflvíkingar loks með heimasigur og það gegn Njarðvík
Keflavík vann montréttinn í Reykjanesbæ eftir sigur á Njarðvík í Domino's deild karla í körfubolta í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - ÍR 95-89 | Grindavíkursigur í mögnuðum leik
Grindavík vann magnaðan sigur á ÍR í Grindavík í kvöld í 20.umferð Dominos-deildar karla. ÍR leiddi nær allan leikinn en frábær lokaleikhluti hjá Grindavík færði þeim sex stiga sigur, 95-89.

Ólafur: Þakka stuðningsmönnum ÍR fyrir að kveikja í mér
"Þetta var bara gaman. Það skipti miklu að við misstum þá aldrei langt fram úr okkur. Við kláruðum þetta í síðari hálfleik og ég er bara mjög sáttur,“ sagði Ólafur Ólafsson leikmaður Grindavíkur eftir sætan sigur heimamanna gegn ÍR í 20.umferð Dominos-deildar karla í körfuknattleik í kvöld.

Lengsta sigurgangan í Reykjanesbæjarslagnum í níu ár í boði í kvöld
Keflvíkingar geta í kvöld náð fullu húsi á móti nágrönnum sínum í Njarðvík en það yrði þá annað árið í röð sem þeir afrekuðu það.