Ólíklegt að Jón Halldór taki við karlaliði Keflavíkur Körfuknattleiksdeild Keflavíkur leitar nú að nýjum þjálfara til að taka við karlaliði félagsins af Guðjóni Skúlasyni sem hætti með liðið í gær. Körfubolti 12. apríl 2011 12:30
Brynjar: Frábær liðsheild skóp þennan sigur "Þetta var bara frábær sigur hjá okkur og sigur liðsheildarinnar,“ sagði Brynjar Þór Björnsson, leikmaður KR, eftir sigurinn í kvöld gegn Stjörnunni. KR valtaði yfir Stjörnuna, 108-78, í fyrsta leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland-Express deild karla í körfubolta. Körfubolti 11. apríl 2011 22:38
Teitur: Mætum klárir í næsta leik "Við erum að fara á okkar heimavöll og fáum tækifæri til að gera betur. Í byrjun þriðja leikhluta þá missum við aðeins jafnvægið í okkar leik og þá koma þeir í bakið á okkur, en það var akkúrat það sem við vildum alls ekki,“ sagði Teitur. Körfubolti 11. apríl 2011 22:29
Pavel: Þetta verður ekki svona auðvelt í næsta leik "Þeir eiga eftir að mæta dýrvitlausir í næsta leik,“ sagði Pavel Ermolinskij, leikstjórnandi KR-inga, eftir sigurinn í kvöld, en Bikarmeistararnir unnu fyrstu orrustuna um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland-Express deild karla í körfubolta. Körfubolti 11. apríl 2011 22:20
Kjartan: Við vorum bara ekki tilbúnir „Við hreinlega mættum ekki til leiks,“ sagði Kjartan Atli Kjartansson, leikmaður Stjörnunnar, eftir að hafa tapað fyrir KR í fyrsta leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland-Express deild karla. Körfubolti 11. apríl 2011 22:09
Hrafn: Keyrðum yfir þá í síðari hálfleik „Ég bjóst ekki við svona stórum sigri en ég var alveg viss um það að við myndum vinna þennan leik,“ sagði Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, eftir sigurinn í kvöld. KR vann Stjörnuna, 108-78, í DHL-höllinni, en þetta var fyrsti leikur liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Körfubolti 11. apríl 2011 22:01
Umfjöllun: KR-ingar tóku Stjörnuna í kennslustund, 108-78 KR-ingar sýndu styrk sinn gegn Stjörnunni í fyrsta leiknum í úrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik í kvöld. Stjarnan náði að hanga með KR-ingum í fyrri hálfleik en síðari hálfleik settu KR-ingar allt í gang og keyrðu hreinlega yfir lið Stjörnunnar. Lokatölur 108-78 og staðan er 1-0 fyrir KR en þrjá sigra þarf til þess að vinna þetta einvígi. Næsti leikur fer fram á fimmtudaginn á heimavelli Stjörnunnar. Körfubolti 11. apríl 2011 20:52
Keflavík í viðræðum við Sigurð Ingimundarson Körfuknattleiksdeild Keflavíkur stendur uppi þjálfaralaus í kjölfar þess að Guðjón Skúlason hætti með karlalið félagsins í dag. Áður hafði Jón Halldór Eðvaldsson hætt með kvennaliðið. Körfubolti 11. apríl 2011 19:30
Fannar spilar líklega ekki með KR í kvöld Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, verður væntanlega ekki með KR í kvöld gegn Stjörnunni er úrslitarimman um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik hefst. Körfubolti 11. apríl 2011 18:12
Teitur kominn í lokaúrslitin í þrettánda sinn á ferlinum Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, hefur langmestu reynsluna af því að spila um Íslandsmeistaratitilinn af öllum þeim sem taka þátt í úrslitaeinvígi KR og Stjörnunnar. Fyrsti leikur liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla er klukkan 19.15 í DHL-höllinni í kvöld og verður hann í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Körfubolti 11. apríl 2011 15:45
Fannar þekkir ekkert annað en að vinna úrslitaeinvígi Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, er nú kominn í úrslitaeinvígi í fimmta sinn á ferlinum og í hin fjögur skiptin hefur hann unnið Íslandsmeistaratitilinn þar af tvisvar sem fyrirliði KR-liðsins á undanförnum fjórum árum. Fyrsti leikur KR og Stjörnunnar í úrslitaeinvígi Iceland Express deildar karla er klukkan 19.15 í DHL-höllinni í kvöld og verður hann í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Körfubolti 11. apríl 2011 15:15
Hrafn: Það er enginn þreyttur eða meiddur "Við erum bara vel stemmdir og allir heilir í okkar liði. Við erum komnir áleiðis á þann stað sem við ætluðum okkur fyrir tímabilið og það er tilhlökkun í okkar liði,“ sagði Hrafn Kristjánsson þjálfari KR við visir.is í dag en í kvöld hefst úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik karla þegar Stjarnan úr Garðabæ kemur í heimsókn í DHL-höll KR-inga. Körfubolti 11. apríl 2011 14:15
Guðjón Skúlason er hættur hjá Keflavík Guðjón Skúlason er hættur sem þjálfari úrvalsdeildarlið s Keflavíku en liðið féll úr keppni í undanúrslitum Iceland Express deildar karla gegn KR s.l. fimmtudag. Á heimasíðu Keflavíkur er greint frá því að Guðjón hafi tekið þessa ákvörðun á eigin forsendum og árangur liðsins á tímabilinu hafi verið ástæðan fyrir því að hann vildi ekki halda áfram með liðið. Körfubolti 11. apríl 2011 12:24
Teitur: Skrítið að fara í svona langt frí Stjarnan gerði sér lítið fyrir og sópaði Íslandsmeisturum Snæfells í frí á lokadegi síðasta mánaðar. Síðan þá hafa Teitur Örlygsson og lærisveinar hans fylgst með rimmu KR og Keflavíkur af hliðarlínunni og beðið eftir því að fá að spila á nýjan leik. Biðinni löngu er lokið því KR tekur á móti Stjörnunni klukkan 19.15 í kvöld í fyrsta leik liðanna um sjálfan Íslandsmeistaratitilinn. Körfubolti 11. apríl 2011 07:00
Hörður Axel: Nýtt undirbúningstímabil hefst í dag Hörður Axel Vilhjálmsson leikmaður Keflavíkur ætlar á æfingu í dag og hefja undirbúning fyrir næsta tímabil en hann leyndi ekki vonbrigðum sínum eftir 105-89 tap liðsins gegn KR í gær. Hörður Axel var í liði Keflavíkur í fyrra sem tapaði í úrslitum gegn Snæfelli um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla og hann segir að mótlætið muni efla Keflavíkurliðið fyrir næsta tímabil. Körfubolti 8. apríl 2011 12:30
Fannar: Brynjar hefur sett niður risaskot frá því hann var 17 ára "Það var bara eitthvað "hype“ í blaðamönnum fyrir leikinn að setja alla pressuna á okkur en við vissum að það var bara klaufaskapur að hafa ekki klárað þetta fyrr,“ sagði Fannar Ólafsson fyrirliði KR eftir 105-89 sigur liðsins gegn Keflavík í oddaleik í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar í körfubolta í gærkvöldi. Fannar var ánægður með Brynjar Þór Björnsson félaga sinn hjá KR sem skoraði 34 stig. Körfubolti 8. apríl 2011 10:45
KR-ingar í lokaúrslitin í þriðja sinn á fimm árum - myndir KR-ingar tryggðu sér sæti í úrslitaeinvígi Iceland Express deildar karla með öruggum 105-89 sigri á Keflavík í oddaleik í undanúrslitaeinvígi liðanna sem fram fór í troðfullri DHL-höll í gærkvöldi. Körfubolti 8. apríl 2011 08:30
Hrafn: Við reyndum að vera glaðir „Við reyndum að vera glaðir og litum á þessa seríu í samhengi. Við vorum búnir að vera með í þessu hverja einustu sekúndu. Það hélt okkur frá því að vera ekki búnir að klára þetta í síðustu tveimur leikjum var slæm ákvarðanataka,“ sagði Hrafn Kristjánsson þjálfari KR eftir 105-89 sigur liðsins gegn Keflavík í undanúrslitum Iceland Express deildar karla í körfuknattleik í kvöld. Körfubolti 7. apríl 2011 23:14
Guðjón Skúla: Þeir voru einfaldlega betri en við "Við höfðum ekki næga trú á því sem vorum búnir að gera í síðustu leikjum og fórum út úr okkar leik. KR-ingar voru bara sterkari en við, einfaldlega betri. Ég er auðvitað hundfúll og ég vil vinna, og það er svekkjandi að hafa ekki náð því,“ sagði Guðjón Skúlason þjálfari Keflavíkinga eftir 105-89 tap liðsins gegn KR í oddaleik í undanúrslitum Iceland Express deildar karla í körfuknattleik í kvöld. Körfubolti 7. apríl 2011 22:44
Pavel: Teitur og Stjarnan eru að fara upp á píluspjaldið heima "Við vorum búnir að tapa tvívegis fyrir þeim í framlengingu og það hefði verið skárra að tapa þeim leikjum með 20 stigum. Auðvitað vorum við mjög langt niðri eftir síðasta leik þar sem við vorum búnir að tapa niður 2-0 forystu. Það var góður karakter í liðinu að koma hér í kvöld og spila aftur okkar bolta,“ sagði Pavel Ermolinskij leikmaður KR eftir 105-89 sigur liðsins gegn Keflavík í kvöld. KR leikur til úrslita gegn Stjörnunni um Íslandsmeistaratitilinn eftir að hafa lagt Keflavík 3-2 samanlagt. Körfubolti 7. apríl 2011 22:31
Brynjar Þór: Hrikalega stoltur af liðinu og áhorfendum Brynjar Þór Björnsson fór á kostum í liði KR í kvöld þegar liðið tryggði sér sæti í úrslitum Íslandsmótsins í körfubolta karla með 105-89 sigri gegn Keflavík í kvöld. Brynjar skoraði alls 34 stig og tók 7 fráköst og hann var gríðarlega ánægður í leikslok. Körfubolti 7. apríl 2011 22:07
Umfjöllun: KR í úrslitin eftir sextán stiga sigur á Keflavík Það verða KR og Stjarnan sem keppa til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta í ár. KR vann öruggan sigur á Keflavík, 105-89, í oddaleik liðanna í Vesturbænum í kvöld. Brynjar Þór Björnsson átti frábæran leik fyrir KR og skoraði alls 34 stig í kvöld. Körfubolti 7. apríl 2011 20:07
Böddi og Palli í stuði - mikil öryggisgæsla í DHL-höllinni Böðvar Guðjónsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR, og Páll Sævar Guðjónsson vallarkynnir, oftast kallaður Röddin, voru í gríðarlegri stemningu klukkutíma fyrir stórleik KR og Keflavíkur. Körfubolti 7. apríl 2011 18:23
Slegist um sæti í DHL-höllinni Það er rétt rúmur klukkutími í stórleik KR og Keflavíkur í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla og stemningin þegar orðin mögnuð. Körfubolti 7. apríl 2011 18:12
Fannar: Best að skilja dúkkulísurnar eftir heima "Ég hef það svakalega gott. Sit með kaffi á Tilverunni í Hafnarfirði og nýbúinn að borða dýrindis rauðsprettu," sagði fyrirliði KR, Fannar Ólafsson, sem bíður spenntur eftir oddaleik KR og Keflavíkur í kvöld. Körfubolti 7. apríl 2011 15:45
Magnús: Erum til í að slasa okkur fyrir málsstaðinn Stórskyttan Magnús Gunnarsson, leikmaður Keflavíkur, var silkislakur að spila FIFA-tölvuleikinn þegar Vísir heyrði í honum í hádeginu og spurði hann út í stemninguna fyrir kvöldið. Þá mun Keflavík sækja KR heim í oddaleik í Iceland Express-deild karla. Körfubolti 7. apríl 2011 14:00
Ökumenn varaðir við að leggja ólöglega við DHL-höllina í kvöld Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim góðfúslegu tilmælum til ökumanna sem eiga leið um vesturbæ Reykjavíkur að virða rétt gangandi vegfarenda og leggja ekki á gangstéttir eða á göngustígum. Þeir ökumenn sem leggja ólöglega mega búast við sektum. Körfubolti 7. apríl 2011 06:00
Keflvíkingar fyrstir til að vinna þrjá framlengda leiki í úrslitakeppni Keflvíkingar urðu á mánudagkvöldið ekki bara annað liðið frá upphafi sem kemst í oddaleik eftir að hafa lent 0-2 undir í einvígi í úrslitakeppni því liðið setti einnig met með því að verða fyrsta liðið sem nær að vinna þrjá framlengda leiki í einni og sömu úrslitakeppninni. Körfubolti 6. apríl 2011 06:00
Jón Halldór: Þetta er ekki búið og við þurfum að halda haus "Að koma í þetta feikisterka hús og vinna þetta frábæra lið er góð tilfinning,“ sagði Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkur, eftir sigurinn í kvöld. Keflavík vann frábæran sigur á grönnum sínum í Njarðvík, 67-64, í öðrum leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn og leiða því einvígið 2-0. Körfubolti 5. apríl 2011 21:38
Keflavík nældi í oddaleik - myndir Leikur Keflavíkur og KR í Sláturhúsinu í Keflavík í gær var stórkostleg skemmtun. Annan leikinn í röð var framlengt hjá liðunum og aftur hafði Keflavík betur. Liðin þurfa því að mætast í hreinum úrslitaleik um sæti í úrslitunum gegn Stjörnunni. Körfubolti 5. apríl 2011 09:30