Þriðji leikur Njarðvíkur og KR í kvöld Njarðvík og KR eigast við í Njarðvík í kvöld í undanúrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik. Liðin hafa unnið hvort sinn leikinn og munu KRingar eflaust vilja velgja heimamönnum undir uggum í Njarðvík í kvöld eftir góðan sigur á heimavelli sínum í síðasta leik. Leikurinn hefst klukkan 19:15. Sport 31. mars 2006 17:45
Íslandsmeistarabragur á Keflavík Keflvíkingar settu upp sannkallaða sýningu á heimavelli sínum í Sláturhúsinu í gær þegar Skallagrímur var í heimsókn. Heimamenn fóru á kostum og unnu mjög sannfærandi 129-79 sigur og leiða einvígið 2-1. Sport 31. mars 2006 10:05
Keflavík valtaði yfir Skallagrím Keflvíkingar hafa náð forystu í undanúrslitaeinvígi sínu við Skallagrím 2-1 eftir 129-79 sigur á heimavelli sínum í þriðja leiknum í kvöld. AJ Moye skoraði 37 stig fyrir Keflavík en Jovan Zdravevski skoraði 19 stig fyrir Skallagrím. Keflvíkingar skoruðu 19 þriggja stiga körfur í leiknum. Næsti leikur fer fram í Borgarnesi og þar geta Keflvíkingar tryggt sér sæti í úrslitunum. Sport 30. mars 2006 21:35
Keflavík yfir í hálfleik Keflvíkingar hafa yfir 63-43 í hálfleik í þriðja leik sínum gegn Skallagrími í undanúrslitum Íslandsmótsins í körfuknattleik, en leikurinn fer fram í Keflavík. Jafnræði var á með liðunum eftir fyrsta leikhlutann, en pressuvörn Keflvíkinganna virtist slá gestina út af laginu í öðrum leikhlutanum. AJ Moye hjá Keflavík hefur verið besti leikmaður vallarins og er kominn með yfir 20 stig í fyrri hálfleiknum. Sport 30. mars 2006 20:13
KR-ingar teknir í karphúsið Njarðvík vann öruggan sigur á KR í fyrsta leik þeirra í undanúrslitaeinvíginu í Iceland-Express deild karla en leikurinn var í beinni útsendingu á Sýn. Herbert Guðmundsson þjálfari KR baðst afsökunar á slakri frammistöðu sinna manna sem töpuðu stórt, 101-65. Sport 26. mars 2006 16:43
Njarðvík langt yfir í hálfleik Njarðvíkingar eru á góðri leið með að tryggja sér sigur í fyrsta leik undanúrslitaeinvígisins gegn KR í Iceland Express deild karla. Þeir hafa átján stigum fyrir í hálfleik, 47-29, og hafa borið höfuð og herðar yfir KR-inga sem þurfa að spýta verulega í lófana ef þeir ætla sér að stela sigrinum í Ljónagryfjunni í Njarðvík. Sport 26. mars 2006 15:44
Njarðvík-KR í beinni á Sýn klukkan 15 Vísir.is minnir alla á beina útsendingu Sýnar frá stórleik Njarðvík og KR í undanúrslitum Iceland-Express deildar karla í körfubolta. Leikurinn hefst klukkan 15.00 en útsending Sýnar skömmu áður. Keflavík vann í gær góðan sigur á Skallagrímsmönnum í hinni undanúrslitaviðureigninni. Sport 26. mars 2006 14:06
Keflvíkingar lögðu Skallagrím Keflvíkingar lögðu Borgnesinga í dag í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express deildar karla í körfuknattleik 97-82. Keflavík hefur því náð 1-0 forystu í einvíginu og næsti leikur fer fram í Borgarnesi. Sport 25. mars 2006 18:14
KR í undanúrslitin KRingar eru komnir í undanúrslit Íslandsmótsins í körfuknattleik eftir frækinn sigur á Snæfelli í rafmögnuðum leik í Vesturbænum 67-64 í kvöld. Skarphéðinn Ingason skoraði 16 stig fyrir KRinga og Fannar Ólafsson 15, en Igor Beljanski skoraði 17 stig fyrir Snæfell. Sport 21. mars 2006 21:48
KR einu stigi yfir fyrir lokaleikhlutann Leikur KR og Snæfells í DHL-höllinni er enn í járnum og nú hafa heimamenn eins stigs forystu 50-49 þegar aðeins fjórði leikhlutinn er eftir, en það lið sem tapar í kvöld er komið í sumarfrí. Sport 21. mars 2006 21:19
Allt í járnum í Vesturbænum Nú er kominn hálfleikur í viðureign KR og Snæfells í oddaleik í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í körfubolta og staðan er jöfn 35-35. Snæfell hafði betur framan af en heimamenn hafa náð að jafna leikinn með mikilli baráttu. Jón Ólafur Jónsson hefur skorað 10 stig fyrir Snæfell, en Skarphéðinn Ingason og Fannar Ólafsson hafa skorað 8 stig hvor fyrir KR. Sport 21. mars 2006 20:45
Snæfell leiðir eftir fyrsta leikhluta Snæfell er yfir 17-12 gegn KR eftir fyrsta leikhluta í oddaleik liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppni Iceland Express deildar karla í körfubolta. Leikurinn fer fram í DHL-höllinni og er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Extra. Gestirnir hafa verið mun meira sannfærandi í öllum sínum aðgerðum og leiða verðskuldað, en KR hefur aðeins skorað eina körfu utan af velli í leikhlutanum. Sport 21. mars 2006 20:14
KR - Snæfell í beinni á Sýn Extra Oddaleikur KR og Snæfells í fyrstu umferð úrslitakeppni Iceland Express deildar karla verður í beinni útsendingu á Sýn Extra klukkan 19:50 í kvöld. Liðin hafa til þessa unnið sitthvorn útileikinn og í kvöld verður leikið til þrautar í DHL-Höllinni. Sport 21. mars 2006 16:29
Skallagrímur í undanúrslit eftir framlengingu í Grindavík Skallagrímur varð í kvöld þriðja liðið til að tryggja sig í undanúrslit Iceland Express-deildar karla í körfubolta þegar liðið hafði betur í framlengingu gegn Grindavík, 73-77. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var jöfn, 65-65 og því þurfti að framlengja í Grindavík. Sport 19. mars 2006 22:00
Njarðvík í undanúrslit - framlengt í Grindavík Njarðvík varð í kvöld annað liðið til að tryggja sig í undanúrslit Iceland Express deildarinnar í körfubolta eftir 2 stiga sigur á ÍR í Seljaskóla, 76-78. Leikur Skallagríms og Grindavíkur fer í framlengingu en lokatölur eftir venjulegan leiktíma í Grindavík urðu 65-65. Borgnesingar voru einu stigi yfir í hálfleik, 35-36. Sport 19. mars 2006 21:17
Keflavík í undanúrslit og KR tryggði sér oddaleik Keflavík varð í dag fyrst liða til að tryggja sig í undanúrslitin í úrslitakeppni karla í körfubolta þegar deildarmeistararnir unnu Fjölni 87-84. Í Stykkishólmi náði KR að tryggja sér oddaleik með því að leggja Snæfell 62-61 þar sem sigurkarfa KR kom þegar 2 sekúndur voru til leiksloka og var það 3 stiga karfa fráMelvin Scott sem réði úrslitum. Sport 18. mars 2006 17:54
Keflavík og KR leiða í hálfleik Nú er hálfleikur í leikjunum tveimur sem fram fara í úrslitakeppninni í körfubolta karla í dag og eru það gestaliðin sem leiða í báðum tilfellum. KR er sex stigum yfir gegn Snæfelli í Stykkishólmi, 33-39. Í Grafarvogi eru það Keflvíkingar sem leiða gegn Fjölni með tveimur stigum, 43-45. Sport 18. mars 2006 16:52
Kemur ekkert annað til greina en að vinna Snæfell í dag Herbert Arnarson þjálfari KR segir það alls ekki hafa verið áfall að tapa heimaleiknum gegn Snæfelli í vikunni í 8 liða úrslitum í úrslitakeppni körfubolta karla, Iceland Express deildinni. Vísir náði tali af Herberti nú rétt í þessu þar sem lið KR var statt í Hyrnunni í Borgarnesi á leið sinni upp í Stykkishólm þar sem annar leikur liðanna fer fram í dag. Sport 18. mars 2006 13:44
Öruggur sigur Skallagríms Skallagrímur vann öruggan sigur á Grindavík 95-81 í Borgarnesi í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni karla í körfubolta í kvöld. Eftir að jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik, brunuðu heimamenn framúr í þeim síðari og unnu sannfærandi sigur. George Byrd var atkvæðamestur í liði Skallagríms með 29 stig, en þeir Páll Axel Vilbergsson og Jeremiah Johnson skoruðu 30 stig hvor í liði Grindavíkur. Sport 17. mars 2006 21:02
Grindavík leiðir í hálfleik Grindvíkingar hafa eins stigs forystu í hálfleik gegn Skallagrími í fyrsta leik liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppninni í körfubolta 42-41. George Byrd er kominn með 19 stig í liði heimamanna, en Páll Axel Vilbergsson hefur skorað 15 stig fyrir Grindavík. Í Njarðvík hafa heimamenn nauma forystu gegn ÍR 40-38. Sport 17. mars 2006 20:05
Snæfell lagði KR Snæfell vann í kvöld sigur á KR í úrslitakeppni Iceland Express deildar karla í kvöld í rafmögnuðum spennuleik sem sýndur var beint á Sýn. Snæfell var yfir allan leikinn, en KRingar náðu að jafna leikinn undir lokin. Það voru þó gestirnir sem héldu haus í restina og tryggðu sér dýrmætan sigur 71-68. Snæfell er því með pálmann í höndunum og geta slegið KR út í næsta leik á heimavelli sínum. Sport 16. mars 2006 21:39
Öruggur sigur Keflvíkinga Keflvíkingar eru komnir með 1-0 forystu í einvígi sínu gegn Fjölni í úrslitakeppni Iceland Express deildinni í körfubolta eftir auðveldan 94-78 sigur á heimavelli sínum Sláturhúsinu í kvöld. Sport 16. mars 2006 20:58
Snæfell yfir gegn KR Nú er kominn hálfleikur í leik KR og Snæfells í úrslitakeppninni í Iceland Express deild karla og hafa gestirnir góða forystu í hálfleik 43-35. Snæfell hefur byrjað mun betur í leiknum og er liðið mun ákveðnara í öllum sínum aðgerðum. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Sport 16. mars 2006 20:40
Keflavík með mikla yfirburði Lið Keflavíkur virðist ekki ætla að verða í vandræðum með lið Fjölnis í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppninni. Keflvíkingar hafa forystu 59-36 í hálfleik á heimavelli sínum og hafa þeir AJ Moye og Vlad Boeriu skorað 14 stig hvor fyrir lið heimamanna. Sport 16. mars 2006 20:14
KR - Snæfell í beinni á Sýn Úrslitakeppni úrvalsdeildar karla í körfubolta hefst í kvöld með tveimur leikjum. Keflvíkingar taka á móti Fjölni í Keflavík klukkan 19:15 og KR-ingar taka á móti Snæfelli í Vesturbænum, en sá leikur verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn og hefst útsending klukkan 19:45. Sport 16. mars 2006 16:40
Halldór í tveggja leikja bann Halldór Karlsson, fyrirliði Njarðvíkinga, var í dag úrskurðaður í tveggja leikja bann fyrir óhæfileg mótmæli af aganefnd KKÍ og því er ljóst að Halldór mun missa af fyrstu tveimur leikjum Njarðvíkinga í úrslitakeppninni gegn ÍR. Halldór var rekinn af velli í leik Njarðvíkur og Keflavíkur í lokaumferð Iceland Express deildarinnar á dögunum. Sport 15. mars 2006 18:45
Úrslitakeppnin í beinni á Sýn Úrslitakeppninn í Iceland Express deild karla í körfubolta hefst á fimmtudagskvöldið og mun sjónvarpsstöðin Sýn þá vera með beina útsendingu frá fyrstu viðureign KR og Snæfells sem hefst klukkan 20 um kvöldið, en útsending hefst 15 mínútum fyrr. Á laugardeginum verður svo bein útsending frá öðrum leik Fjölnis og Keflavíkur og hefst útsending frá honum klukkan 15:50. Sport 14. mars 2006 17:45
Keflvíkingar deildarmeistarar Keflvíkingar eru deildarmeistarar í körfubolta karla eftir frækinn sigur á grönnum sínum úr Njarðvík á heimavelli í lokaumferð Iceland Express deildarinnar í kvöld 89-71. AJ Moye skoraði 37 stig fyrir Keflavík og Magnús Gunnarsson 18. Friðrik Stefánsson skoraði 18 stig fyrir Njarðvíkinga, Jeb Ivey 15 og Brenton Birmingham skoraði 14 stig. Sport 9. mars 2006 21:00
Keflvíkingar leiða í hálfleik Keflvíkingar hafa yfir 41-29 gegn grönnum sínum í Njarðvík í úrslitaleiknum um deildarmeistaratitilinn í úrvalsdeild karla í körfubolta, en leikurinn fer fram í Keflavík. Njarðvíkingar byrjuðu betur í leiknum og komust í 8-0 og leiddu 19-15 eftir fyrsta leikhluta. Síðan hafa heimamenn tekið öll völd á vellinum og hafa snúið leiknum sér í vil með mikilli baráttu. Sport 9. mars 2006 19:59
Haukar völtuðu yfir Keflavík Haukastúlkur sendu hinum liðunum í Iceland Express deildinni skýr skilaboð í kvöld þegar þær tóku Keflvíkinga í kennslustund á útivelli 115-72., eftir að staðan hafði verið 55-42 fyrir gestina í hálfleik. Megan Mahoney fór á kostum í liði Hauka og skoraði 44 stig og Helena Sverrisdóttir skoraði 20 stig. Haukaliðið er langefst í deildinni og verður ekki auðsigrað í úrslitakeppninni ef svo fer sem horfir. Sport 8. mars 2006 21:28