

Subway-deild kvenna
Leikirnir

Skallagrímur bikarmeistari í fyrsta skipti í sögunni
Skallagrímur vann öruggan sigur á KR í úrslitum Geysisbikar kvenna. Fyrsti bikarmeistaratitill Skallagríms í sögunni staðreynd eftir öruggan 17 stiga sigur, 66-49. Frekari umfjöllun og viðtöl væntanleg.

Hildur Björg sló bæði stiga- og framlagsmet Helenu í Höllinni í gær
KR-ingurinn Hildur Björg Kjartansdóttir átti stórleik þegar KR-konur slógu Íslands- og bikarmeistarar Vals út úr undanúrslitum Geysisbikarsins í gær.

Guðrún: Stolt af liðinu - Var ekki svona róleg sem leikmaður
Guðrún Ósk Ámundadóttir, þjálfari Skallagríms, var gífurlega ánægð eftir sigurinn á Haukum í Geysisbikarnum í körfubolta og sagði tilfinninguna sem hún upplifði gífurlega sæta. Hún nefndi strax að hún væri fyrst og fremst stolt af liði sínu. Önnur spurningin sem Guðrún svaraði var út í hennar hegðun á hliðarlínunni en hún var pollróleg þegar hún fylgdist með leiknum.

Umfjöllun og viðtöl: Skallagrímur - Haukar 86-79 | Skallagrímur í úrslit gegn KR
Skallagrímur mætir KR í úrslitaleik Geysisbikars kvenna í körfubolta eftir að hafa slegið Hauka út í Laugardalshöll í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - KR 99-104 | KR í úrslit eftir framlengdan spennutrylli
Valur og KR mættust í kvöld í einum skemmtilegasta leik sem hefur sést í Laugardalshöllinni í bikarkeppni kvenna. Leikurinn var þó ekki nema undanúrslitaleikur! KR leidd lengst af í leiknum en hleypti Val aftur inn í leikinn á lokamínútum venjulegs leiktíma. Vesturbæingar tóku síðan forystuna undir lok framlengingarinnar og unnu að lokum 104-99.

Benni Gumm: Einn flottasti kvennaleikur síðari tíma
„Einn flottasti kvennaleikur síðari tíma, held ég bara,“ sagði Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR, eftir að liðið sló Val út í undanúrslitum Geysisbikarsins í körfubolta.

Íslandsmeistararnir frá 1964 eru heiðursgestir í kvöld
Skallagrímskonur geta tryggt sér sæti í bikarúrslitum í kvöld og um leið stigið einu skrefi nær að vinna fyrsta stóra titil félagsins í 56 ár.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Valur 69-75 | Sjöundi sigur Valskvenna í röð
Sigurganga Vals hélt áfram þegar liðið lagði Hauka að velli í Ólafssal.

Grindavík komst af botninum | Öruggt hjá KR
Grindavík vann óvæntan sigur á Keflavík í grannaslag í Domino's deild kvenna.

Darri: Óvenjulegt fyrir okkur
Þjálfari Vals var ánægður með sigurinn á Haukum.

Skallagrímur setur pressu á úrslitakeppnissæti eftir spennusigur
Skallagrímur þurfti heldur betur að hafa fyrir hlutunum í sigri á Breiðabliki er liðin mættust í 20. umferð Dominos-deildar kvenna í dag. Lokatölur 75-73.

Í beinni í dag: Leeds, Ronaldo og tvíhöfði í Olís-deildinni
Það er rosaleg dagskrá á Stöð 2 Sport í dag og allt fram á kvöld. Alls eru ellefu beinar útsendingar á dagskránni í dag.

Körfuboltakvöld: Biðu eftir Inga sem mætti of seint á ritaraborðið með pizzu í hendinni
Kjartan Atli Kjartansson og spekingar hans í Dominos Körfuboltakvöldi gerðu í kvöld upp 19. umferðina í Dominos-deild kvenna.

Umfjöllun og viðtöl: Skallagrímur - Keflavík 83-73 | Skallarnir nálgast úrslitakeppnina
Skallagrímur vann sterkan sigur á Keflavík í baráttunni um sæti í úrslitakeppni Domino's deildar kvenna í kvöld. Leikurinn fór fram í Fjósinu í Borgarnesi og vann Skallagrímur 83-73.

Toppliðin í vandræðum með botnliðin
Topplið Vals og KR unnu bæði sína leiki í Dominos-deild kvenna í kvöld en liðin voru að spila við neðstu tvö lið deildarinnar.

Í beinni: Handbolti og körfubolti hér heima og Mourinho út í heimi
Það eru þrjár beinar útsendingar á dagskrá Stöðvar 2 í dag. Handbolti, körfubolti og fótbolti eru á dagskránni í kvöld.

Tilkynning frá Snæfelli: Við höfum endalausa trú á Berglindi
Snæfell hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir að Berglind Gunnarsdóttir, leikmaður liðsins og landsliðskona, sendi frá sér tilkynningu í gær.

Í beinni í dag: Körfuboltaveisla, Rooney og golf
Það er nóg um að vera á sportrásum Stöðvar 2 í dag og kvöld en alls eru átta útsendingar á dagskránni í dag.

Sportpakkinn: Fimmti sigur Vals í röð
Heil umferð fór fram í Domino's deild kvenna í gær. Toppliðin tvö unnu bæði sína leiki.

Jonni: Er hreinn og beinn með það
Keflavík tapaði gegn Val í seinni leik tvíhöfða í Origo-höllinni að Hlíðarenda í kvöld. Leikurinn fór að lokum 80-67 fyrir Val en var á köflum miklu jafnari en svo.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Keflavík 80-67 | Auðvelt hjá meisturunum
Valur hefur unnið fimm leiki í röð og trónir á toppi Dominos-deildar kvenna.

Haukar burstuðu Breiðablik og spennusigrar hjá Snæfell og KR
Haukar, KR og Snæfell unnu sína leiki í Dominos-deild kvenna í kvöld er 18. umferðin fór fram. Leikur Vals og Keflavíkur er nú í gangi.

Í beinni í dag: Slagurinn um Manchester, Dominos tvíhöfði og Seinni bylgjan
Fjórar beinar útsendingar eru á sportásum Stöðvar 2 í kvöld. Tvíhöfði úr Origohöllinni, undanúrslitin í enska deildarbikarnum og Seinni bylgjan.

Domino's Körfuboltakvöld: Valskonur unnu toppslaginn
Sérfræðingar Domino's Körfuboltakvölds fóru yfir 17. umferð Domino's deildar kvenna.

Sportpakkinn: Valskonur unnu toppslaginn og eru með nokkra fingur á deildartitlinum
Þrír leikir fóru fram í Domino´s deild kvenna í körfubolta í gær þar sem Valur, Haukar og Keflavík fögnuðu sigri í sínum leikjum. Arnar Björnsson tók saman leiki gærkvöldsins í kvennakörfunni.

Umfjöllun og viðtöl: KR - Valur 62-77 | Valur vann sigur í toppslagnum
Valur tryggði stöðu sína á toppi Dominos-deildar kvenna með góðum sigri á KR í kvöld.

Keflavík og Haukar með góða sigra
Kvennalið Hauka er komið í 4.sæti Dominos-deildar kvenna í körfuknattleik eftir sigur á Grindavík í framlengdum leik í kvöld. Þá vann Keflavík 30 stiga sigur á Breiðabliki.

Í beinni í dag: Uppgjör toppliðanna
Það er heldur rólegur miðvikudagur á rásum Stöð 2 Sport en aðeins einn leikur er í beinni dagskrá í dag. Sá leikur er þó ekki af verri endanum en Reykjavíkur stórveldin KR og Valur mætast í Dominos deild kvenna.

Sportpakkinn: „Það eru tveir möguleikar, leggjast í fósturstellingu og grenja eða halda áfram“
Ljóst er hvaða lið mætast í undanúrslitum Geysisbikars karla og kvenna í næsta mánuði.

Topplið Vals bætir við sig bandarískum framherja með hollenskt vegabréf
Íslands- og bikarmeistarar Vals í kvennakörfunni hafa bætt við sig leikmanni fyrir lokaátökin í vetur.