Fengu símtal frá brjáluðum Gumma Gumm um niðdimma nótt Aron Guðmundsson skrifar 13. janúar 2026 07:02 Guðmundur Guðmundsson þjálfaði bæði Aron Pálmarsson og Loga Geirsson í íslenska landsliðinu Vísir/Samsett Aron Pálmarsson og Logi Geirsson, fyrrverandi liðsfélagar í íslenska landsliðinu í handbolta, urðu fyrir því óláni á sínum tíma að vekja óvart þáverandi landsliðsþjálfarann Guðmund Guðmundsson um niðdimma nótt.
Aron Pálmarsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði íslenska landsliðsins, sem lagði á síðasta ári skóna á hilluna, var leynigestur í nýjasta þætti Biðstofunnar þar sem að hann sagði skemmtilega sögu af sér og Loga Geirs á einum tímapunkti í landsliðinu. „Þetta var árið 2010. Við vorum hvorugir búnir að spila mínútu á mótinu, náttúrulega alveg brjálaðir upp á herbergi og vorum vakandi til að verða þrjú eða fjögur að nóttu til upp á herbergi. Logi ákveður að teikna upp Frönsku Rivíeruna á vegg á hótelherberginu. Ég er þarna tvítugur, nýkominn í Kiel, með svona tuttugu evrur inn á kortinu.“ Logi hafi þessa nótt sagt Aroni allt um frönsku rivíeruna með tilheyrandi bendingum og banki í vegginn á hótelherberginu til þess að styðja við sitt mál. Svo hringir sími á herberginu. Logi Geirsson í leik með íslenska landsliðinu á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008.Vísir/Getty „Þá er Gummi Gumm í herberginu við hliðina á okkur, hinu megin við vegginn sem Logi hafði verið að banka í.“ Aron svaraði umræddu símtali þar sem Guðmundur á að hafa spurt hvað væri eiginlega í gangi. Aron var fljótur að rétta þá reynsluboltanum í herberginu, Loga, símann og það stóð ekki á svörum á þeim bænum: „Já Gummi við erum að fara sofa,“ segir Aron að Logi hafi sagt og svo haldið áfram. „Þetta er ekkert mál við erum að fara sofa.“ Að sögn Arons var Gummi brjálaður í símanum í herberginu hliðina á og spurði hvort þeir væru ekki farnir að sofa. „Gummi var geggjaður,“ bætti Logi við eftir sögu Arons. „Ég sakna hans alltaf meira og meira.“ Biðstofuna, í umsjón Helgu Margrétar Höskuldsdóttur og sérfræðingum RÚV í kringum EM í handbolta, má sjá hér.
Landslið karla í handbolta Handbolti EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Sjá meira