
Jóladrottningin stal senunni
Húsfyllir og rífandi stemning var í frumsýningarteiti hljómsveitarinnar Húbba Búbba sem fór fram í Kolaportinu á dögunum. Þar frumsýndu þeir tónlistarmyndband við lagið JólaHúbbaBúbba, þar sem hin margrómaða jóladrottning, Svala Björgvins, stal senunni frá strákunum, eins og henni einni er lagið.