
Auður segist hafa trú á sér þrátt fyrir allt
Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, betur þekktur sem Auður, segist vera kominn með nóg af samfélagsmiðlum og pressunni sem þeim fylgja. Þetta kemur fram í færslu hjá Auðunni á samfélagsmiðlum.
Fréttir af innlendum og erlendum tónlistarmönnum, uppákomum og myndböndum.
Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, betur þekktur sem Auður, segist vera kominn með nóg af samfélagsmiðlum og pressunni sem þeim fylgja. Þetta kemur fram í færslu hjá Auðunni á samfélagsmiðlum.
Tónlistarhátíðin Extreme Chill Festival fer fram í fimmtánda skiptið í Reykjavík í næstu viku. Pan Thorarensen hefur staðið að hátíðinni frá upphafi sem fyrst var haldin á Hellissandi við rætur Snæfellsjökuls, síðan í Berlín og svo loksins í Reykjavík.
Eurovision-keppnin mun fara fram í svissnesku borginni Basel í maí á næsta ári.
Morrisey, söngvari bresku rokksveitarinnar The Smiths, fullyrðir að Johnny Marr, fyrrverandi hljómsveitarfélagi sinn, hafi hunsað tilboð um að bandið kæmi aftur saman á tónleikaferðalagi um heiminn. Grunnt hefur verið á því góða hjá Morrisey og Marr í gegnum tíðina.
Tónlistarmaðurinn og rapparinn Friðrik Róbertsson sem betur er þekktur sem Flóni er einhleypur. Hann og barnsmóðir hans Hrafnkatla Unnarsdóttir hafa haldið hvort í sína áttina eftir þriggja ára samband.
Mennirnir sem voru handteknir í tengslum við fyrirhugaða árás á tónleika Taylor Swift í Vínarborg ætluðu sér að myrða tugþúsundir, að sögn aðstoðarforstjóra CIA.
Emmsjé Gauti hyggst snúa aftur heim í Breiðholt með árlega jólatónleika sína Julevenner. Tónleikarnir munu fara fram í glænýju ÍR heimili í ár og flytjast því frá Háskólabíó þar sem þeir hafa farið fram undanfarin ár. Tónlistarmaðurinn hélt blaðamannafund af þessu tilefni þar sem mæting var dræmari en hann átti von á.
Líklega eru frægustu erjur veraldar nú að baki, erjurnar á milli Oasis bræðranna Liam og Noel Gallagher sem hafa nú ákveðið að snúa aftur á sviðið fimmtán árum eftir að bræðurnir héldu hvor í sína áttina. Fáar erjur eru eins skrautlegar þar sem bjöllutrommur, krikketkylfur og óhófleg áfengisdrykkja koma við sögu.
Tónlistarmaðurinn Atli Sigþórsson, betur þekktur sem Kött Grá Pje, var orðinn þreyttur á hversdagsleika skrifstofustarfsins var í tilefni af því nýverið að senda frá sér sína fyrstu plötu sem nefnist Dulræn atferlismeðferð.
Mikil stemning var á Menningarnæturtónleikum Bylgjunnar sem fóru fram í Hljómskálagarðinum liðna helgi. Úrval tónlistarfólks steig á stokk og virtust gestir skemmta sér vel þrátt fyrir að kalt væri í veðri.
Tónlistarkonan og nýkrýnda popp prinsessan Charlie XCX hefur sjaldan verið vinsælli og platan hennar Brat var að mati margra stærsta popp plata sumarsins. Hún er því á margra vörum og hafa meðal annars komið upp slúðursagnir að eitt lag af plötunni sé um Taylor Swift.
Liam og Noel Gallagher hafa boðað endurkomu sveitarinnar Oasis. Bræðurnir, sem hafa lengi eldað grátt silfur, virðast hafa slíðrað sverðin og tilkynntu opinberlega að þeir muni koma saman og halda fjórtán tónleika í Bretlandi og Írlandi næsta sumar.
Plötusnúðurinn og tónleikahaldarinn Snorri Ástráðsson hefur verið að gera góða hluti í tónleikaheiminum að undanförnu. Tónlistartímaritið IQ Magazine valdi hann á 20 undir 30 lista yfir þá sem þykja skara fram úr. Blaðamaður ræddi við Snorra um spennandi vegferð hans.
Það var gríðarlegt fjör í bílakjallara Grósku á Menningarnótt á viðburðinum Rvk X. Samanlagt mættu um 1100 gestir.
Í síðastliðinni viku birtu útflutningsskrifstofur Norðurlandanna lista yfir þau 20 undir þrítugu sem skara fram úr í tónlistariðnaðinum. Gabríel Ólafsson og Klaudia Gawryluk hljóta þessa viðurkenningu frá Íslandi í ár.
Tónlistarmaðurinn sívinsæli Helgi Björnsson var að senda frá sér lagið Í faðmi fjallanna ásamt tónlistarmyndbandi sem má sjá hér í pistlinum. Lagið er úr nýju íslensku kvikmyndinni Ljósvíkingar en Helgi fer einmitt með hlutverk í henni.
Tónlistarkonan og rísandi stjarnan Chappell Roan hefur átt viðburðaríkt sumar og er í dag ein vinsælasta tónlistarkona í heimi með smelli á borð við Good luck babe og Hot to go. Velgengnin og frægðin sem henni fylgir er þó ekki alltaf tekin út með sældinni.
Rapparinn Aron Can kemur fram í Pumpehuset í Kaupmannahöfn í október. Tónleikarnir voru tilkynntir af alþjóðlega tónleikafyrirtækinu All Things Live sem hefur sett upp tónleika með heimsfrægu tónlistarfólki.
Menningarnæturtónleikar Bylgjunnar fóru fram í Hljómskálagarðinum í gær. Tónleikarnir voru í beinni útsendingu á Stöð 2 og Vísi en horfa má á klippur af tónleikunum hér fyrir neðan.
Vinsældir harmonikkunnar, sem hljóðfæris eru alltaf að aukast og aukast enda mikið um ungt fólk, sem lærir á harmonikku og þá hefur eldri kynslóðin ekki síður gaman af hljóðfærinu. Fréttamaður hitti nokkra flotta hljóðfæraleikara, sem stofnuðu nýlega hljómsveit þar sem harmonikkan er í aðalhlutverki.
Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir hefur tekið fram úr aflraunamanninum Hafþóri Júlíusi Björnssyni sem vinsælasti Íslendingurinn á samfélagsmiðlinum Instagram. Laufey er nú með rétt rúmlega 4,4 milljónir fylgjenda en Hafþór er með 4,3 milljónir.
Jökull Júlíusson söngvari hljómsveitarinnar Kaleo segir það hafi verið skemmtilegt ævintýri að leika sjálfan sig í sápuóperunni Glæstum vonum. Hann fékk boð um hlutverkið í þáttunum eftir að hafa komið fram í veislu hjá Andrea Bocelli.
Önnur tónleikaröð Kaffi Flóru í Laugardalnum í tilefni haustsins hefst í dag þegar Hipsumhaps stígur á svið. Eigandi kaffihússins segir Kaffi Flóru bjóða upp á einstaka stemningu þar sem blóm umlykja tónleikagesti á meðan tónleikum stendur.
Alexandra Friðfinnsdóttir átti ógleymanlega stund á tónlistarhátíðinni Sziget í Búdapest þegar kærastinn hennar Magnús Jóhann fór á skeljarnar. Hjúin eru miklir tónlistarunnendur og fékk Magnús eina af þeirra uppáhalds hljómsveitum í lið með honum. Blaðamaður ræddi við Alexöndru um þessa einstöku trúlofun.
Fimmtudaginn 15. ágúst hélt Tónlistarmiðstöð athöfn til að heiðra styrkhafa seinni úthlutunar Tónlistarsjóðs 2024 en þetta er í fyrsta sinn sem úthlutað er úr öllum deildum nýs Tónlistarsjóðs. Margt var um manninn og ýmis þekkt andlit létu sjá sig.
Á fimm mánuðum hefur samfélagsmiðlastjarnan Maggi Mix gefið út tæplega tvö hundruð lög með aðstoð gervigreindar. Hann semur textana sjálfur og segir lögin fyrst og fremst fyrir sjálfan sig.
Rekstraraðilar segja togstreitu milli hótelgeirans og tónlistarbransans verða til þess að æ fleiri tónleikastaðir þurfi að víkja úr miðborginni. Þróunin sé sorgleg.
Axel Ingi Árnason hefur verið ráðinn forstöðumaður Salarins í Kópavogi. Hann hefur starfað hjá Salnum frá árinu 2022. Tæpt ár er síðan forstöðumaður Salarins til tólf ára lét af störfum og gagnrýndi áhugaleysi meirihlutans í bæjarfélaginu á starfseminni.
„Ég hefði aldrei getað látið mig dreyma um að fá að upplifa allt það sem ég er búin að upplifa,“ segir tónlistarkonan Steinunn Jónsdóttir, jafnan tengd við hljómsveitirnar Reykjavíkurdætur og Amabadama. Hún er að vinna að sólóplötu og fagnar því að áratugur sé liðinn frá því að fyrsti smellur Amabadama fór út.
Pétur Jökull Jónasson sem ákærður er fyrir aðild að innflutningi á tæplega hundrað kílóum af kókaíni og réttað hefur verið yfir síðustu daga í Héraðsdómi Reykjavíkur er líka tónlistarmaður. Hann hefur gefið út raftónlist undir listamannsnafninu Pj Glaze. Þá spilaði hann líka á hljómborð í rafhljómsveitinni Dr. Mister & Mr. Handsome.