

Tónlist
Fréttir af innlendum og erlendum tónlistarmönnum, uppákomum og myndböndum.

Skyggnst bak við tjöldin á tónleikaferð Of Monsters and Men - Myndband
Tónleikar sveitarinnar hafa tekið talsverðum breytingum frá fyrstu plötu sveitarinnar.

Semur lög og rifjar upp gamla tíma
Högni Egilsson leggur nú land undir fót og leikur á tónleikum fyrir austan og norðan. Högni ferðast einn og er farinn að undirbúa ferðina.

Bubbi hlakkar til að spila á Airwaves
„Þetta leggst mjög vel í mig. Ég hef alltaf fylgst með hátíðinni í gegnum tíðina og spottað hverjir eru að koma,“ segir tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens. Hann kemur í fyrsta sinn fram á Airwaves-hátíðinni sem fram fer 4.-8. nóvember.

Herra Hnetusmjör sendir frá sér myndband við Selfie
,,Myndbandið er skotið yfir eina helgi,“ segir rapparinn.

Þetta er einfaldlega húsið sem allir eru að tala um
Á sunnudags- og mánudagskvöldið verða tónleikar í Hörpu með Philharmonia Orchestra en fyrir 30 árum átti stuðningur hljómsveitarinnar stóran þátt í að ráðist var í að byggja tónlistarhús á Íslandi.

Hlustaðu á frábæran flutning Víkings Heiðars á Tchaikovsky fyrsta í Belfast
Píanistinn Víkingur Heiðar Ólafsson fór á kostum ásamt Ulster sinfóníuhljómsveitinni í Ulster á Norður-Írlandi í gærkvöldi.

„Pabbi neitaði aldrei giggi“
Flestir Íslendingar þekkja lögin Vert' ekki að horfa, Einsi kaldi úr Eyjunum og Ég er kominn heim. Þau munu hljóma á tónleikum í Salnum, ásamt mörgum fleirum, til heiðurs höfundinum, Jóni Sigurðssyni sem hefði orðið níræður á árinu.

Reyndu aftur á táknmáli
Nú gleður lagið ekki einungis eyrað heldur augað einnig.

Tekur lítil skref í átt frá Eurovision-Maríu
María Ólafsdóttir gefur út sitt fyrsta lag í dag. Söngkonan samdi textann við lagið Someday.

Doddi flakkar úr sveit í borg í nýju myndbandi Lockerbie
Hljómsveitin Lockerbie sendi frá sér sína aðra breiðskífu í gær en hún ber heitið Kafari.

Fyrstu nöfn tilkynnt fyrir Sónar Reykjavík 2016
Hudson Mohawke, Squarepusher, Úlfur Úlfur, Apparat Organ Quartet og fleiri.

Frumsýning á Vísi: Bergljót Arnalds fagnar afmæli sínu með nýju lagi
„Hvert ár er gjöf hvernig sem viðrar. Ég hef misst tvo vini, langt um aldur fram. Það er gott að minna sig á hvað lífið er dýrmætt.“

Sífellt meiri tengsl rapps og íþrótta
Skilin á milli tónlistar og íþrótta verða sífellt óskýrari, sér í lagi þegar rapparar eiga í hlut. Vinskapur hefur skapast milli fremstu íþróttamanna landsins og helstu rappara þjóðarinnar. Vísir leiðir lesendur í gegnum sögu tengslanna með tilheyrandi tónaveislu.

„Við söngvararnir hlæjum og skemmtum okkur konunglega allan daginn“
Hin vel þekkta gamanópera Rossinis Rakarinn frá Sevilla er haustverkefni Íslensku óperunnar í ár og verður frumsýning næsta laugardag í Eldborg Hörpu.

"Gítarinn hefur oft bókstaflega bjargað lífi mínu“
KK frumflytur einleikinn Vegbúar á Litla sviði Borgarleikhússins og með í för eru gítararnir hans níu sem allir hafa merkar sögur að segja sem KK og Jón Gunnar Þórðarson draga saman fram í dagsljósið.

Ótrúlegt að fólk úti í heimi sé að hlusta
Söngkonan Karólína Jóhannsdóttir, betur þekkt sem Karó, hefur slegið í gegn með lagi sínu Silhouette. Lagið hefur fengið mikla spilun erlendis, í gegnum Soundcloud-síðu útgáfufyrirtækisins Les Fréres Stefson.

Fyrrverandi borgarstjóri sendir frá sér lagið „Máttur gæskunnar“
Ólafur F. Magnússon, fyrrverandi borgarstjóri, er afkastamikill þessa dagana þegar kemur að tónsmíðum.

Íslenskur trommuleikur í einum vinsælasta hljóðbanka heims
Upptökustjórinn Birgir Jón Birgisson og trommuleikarinn Arnar Þór Gíslason tóku upp trommuhljóð og trommutakta fyrir einn vinsælasta hljóðbanka sem til er, EZdrummer.

Nýtt lag og myndband frá Sturlu Atlas
Myndband eða lag mun líta dagsins ljós á hverjum einasta föstudegi fram að Airwaves.

Frelsi til að njóta og miðla tónlistar
Næstkomandi sunnudag kl. 20 efna vinir Helgu með aðstoð starfsfólks Sinfóníuhljómsveitar Íslands til styrktartónleika í Hörpu.

AmabAdamA vekur athygli á matarsóun
Um þriðjungur þess matar sem ætlaður er til manneldis í heiminum endar í ruslinu. Hljómsveitin AmabAdamA leggur sitt lóð á vogarskálarnar og gefur út lag í dag sem ætlað er að vekja fólk til umhugsunar um málefnið.

Sturla Atlas semur við Stefson-bræður
„Okkur finnst hann náttúrulega vera ofur talent. Við höfum fulla trú á því að hann geti lagt heiminn að fótum sér."

Rosalegt stuð á tónleikum Bang Gang og í eftirpartýinu - Myndir
Útgáfutónleikar Bang Gang voru haldnir þann 1. október síðastliðinn í Gamla Bíói. Fullt var út úr húsi en einnig komu fram hljómsveitin Gangly og breska sveitin Is Tropical þeytti skífum.

Orð, tónlist og líkamleg tjáning í Hafnarborg
Kristín Þóra Haraldsdóttir, víóluleikari og tónskáld, flytur nýja útfærslu tónleikhúsverksins Orðin eftir Þórunni Grétu Sigurðardóttur tónskáld í Hafnarborg á sunnudaginn, 11. október.

Góð tónlist, gott málefni og gott kvöld
„Mér finnst æðislegt hvað margir eru tilbúnir að gefa vinnu sína, fyrir þetta góða málefni,“ segir tónlistarmaðurinn Helgi Sæmundur Guðmundsson, annar meðlima í sveitinni Úlfur Úlfur. Helgi stendur, ásamt öðrum, fyrir styrktartónleikum annað kvöld.

Markmiðið að kynna íslenska tónlist fyrir útlendingum
Baddi í Jeff Who?, stendur ásamt þeim Jóni Atla Guðjónssyni og Skúla Helga Sigurgíslasyni á bakvið nýjan vettvang í formi sjónvarpsstöðvar sem kallast Music Reach. Hagsmunir íslenskra tónlistarmanna eru hafðir að leiðarljósi.

Sjáðu myndband við We Will Live For Ages með Hjaltalín
Myndbandið var tekið upp í Marokkó.

Hljómsveitin Simply Red treður upp í annað sinn í Laugardalshöll
Sveitin hefur verið starfandi frá árinu 1985 og spilaði í Laugardalshöllinni fyrir rúmum þrjátíu árum.

Sjáðu myndbandið við nýja Bond-lagið með Sam Smith
Fyrir nokkrum dögum kom nýja James Bond lagið í flutningi Sam Smith út en lagið heitir Writing's on the Wall og verður aðallagið í myndinni Spectre.
