Hugi að ferðalögum og dýrum vegna stormsins á morgun Farþegar á leið til útlanda eru beðnir um að vera á varðbergi og fylgjast vel með veðurspám næstu tvo daga. Þá eru bændur og aðrir búfjáreigendur hvattir til að huga að dýrum sínum vegna óveðursins. Innlent 22. maí 2023 23:29
Veðrið riðlar flugumferð á Keflavíkurflugvelli Einu flugi hefur verið flýtt vegna veðursins sem spáð er á morgun. Farþegar eru hvattir til þess að fylgjast vel með spám og tilkynningum flugfélaganna. Innlent 22. maí 2023 16:38
Glittir í sumarið um mánaðamót Viðvaranir hafa verið gefnar út vegna storms sem mun ganga yfir landið á morgun. Áfram mun veðrinu fylgja snjór eða krapi, líkt og féll um helgina. Veðurfræðingur segir hér um að ræða framhald af vetrinum en glitta fari í sumarið um mánaðamót. Veður 22. maí 2023 11:50
Gular viðvaranir á nær öllu landinu vegna hvassviðris Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á nær öllu landinu vegna suðvestan hvassviðris eða storms sem gengur yfir landið á morgun. Austurland virðist að mestu sleppa við hvassviðrið og eru ekki viðvaranir í gildi þar. Veður 22. maí 2023 11:33
Hvessir og gert ráð fyrir stormi á morgun Veðurstofan gerir ráð fyrir minnkandi vindi og að það dragi úr úrkomu í dag. Það mun svo fara að rigna sunnan- og vestantil í kvöld og hvessir verulega á landinu þegar skilin fara hjá. Veður 22. maí 2023 07:18
Veðrið meira og minna eins út mánuðinn „Ég myndi nú halda að þetta væri svona á þessum nótum, kannski aðeins skárra þegar líður á vikuna. En svona samt í þessum takti eiginlega meira og minna út mánuðinn,“ segir Óli Þór Árnason veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Innlent 21. maí 2023 20:04
Heitasti dagur ársins í dag Hiti fór yfir tuttugu stig á Austurlandi í dag og var dagurinn því sá heitasti ársins. Á Egilsstaðaflugvelli mældist hitinn 20,6 rétt eftir klukkan 12:00. Innlent 19. maí 2023 17:37
Óvenju kröpp og djúp lægð og gular viðvaranir Óvenju kröpp og djúp lægð miðað við árstíma siglir nú norðnorðaustur Grænlandshaf og Grænlandssund næsta sólarhring. Skil lægðarinnar valda allhvassri eða hvassri sunnan- og suðvestanátt með rigningu, en síðar skúrum er þau fara norðaustur yfir landið. Veður 19. maí 2023 07:15
„Það er bara lægð á eftir lægð“ Lægð gengur yfir suðvesturhornið þessa stundina og færist hún norðaustur yfir landið í dag. Von er á annarri lægð á morgun og hafa gular viðvaranir verið gefnar út á vestanverðu landinu vegna hennar. Höfuðborgarbúar þurfa að bíða aðeins lengur eftir sumrinu. Veður 18. maí 2023 13:12
Gular viðvaranir á morgun Gular viðvaranir verða í gildi á Breiðafirði, Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra á morgun. Búist er við allt að tuttugu metrum á sekúndu og gætu vindhviður náð 25 metrum á sekúndu. Veður 18. maí 2023 11:56
Lægð yfir landinu og ekkert hlé á vætutíðinni Lægð suðvestur af Reykjanesi hreyfist norðaustur yfir landið í dag og fylgja henni úrkomusvæði, sem rignir úr, einkum sunnan- og vestanlands. Veður 18. maí 2023 08:14
Neyðarástand að skapast í Evrópu Yfirvöld í Suður-Evrópu standa frammi fyrir miklum þurrkum í sumar en vatn skortir nú þegar á nokkrum svæðum og bændur óttast mikinn uppskerubrest. Takmörkuð úrkoma í nokkur ár og aukinn hiti hefur dregið verulega úr stöðu vatnsbóla og grunnvatns í sunnanverðri Evrópu. Erlent 17. maí 2023 17:04
Hiti að sautján stigum norðaustantil Veðurstofan gerir ráð fyrir suðvestan golu eða kalda í dag og smáskúrir á víð og dreif. Gert er ráð fyrir þurru og nokkuð björtu á Norðaustur- og Austurlandi. Veður 17. maí 2023 07:15
Á von á mörgum sólardögum í sumar Hitatölur fóru víða á landinu undir frostmark í nótt og sumarið ætlar að láta bíða eftir sér. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hefur samt sem áður litlar áhyggjur af sumrinu og býst við lítilli úrkomu og mörgum sólardögum. Veður 16. maí 2023 18:14
Dálítil rigning sunnan- og vestanlands upp úr hádegi Yfir austanverðu landinu er nú hæðarhryggur sem fer austur, en skil nálgast úr vestri. Veðurstofan gerir ráð fyrir suðlæg átt í dag, víða fimm til þrettán metrum á sekúndu. Veður 16. maí 2023 07:15
Rok og rigning út vikuna Sumarið lætur bíða eftir sér og verða næstu dagar úrkomusamir. Víst er að í hugum kylfinga fer þetta vor í bækur sem ömurlegt. Innlent 15. maí 2023 10:49
Lægðin á leiðinni austur og gular viðvaranir enn í gildi Lægðin sem er yfir suðvesturhorni landsins er á leið til austurs og fylgir henni rigning eða slydda fyrir sunnan en snjókoma norðanlands. Veður 15. maí 2023 07:14
Gular viðvaranir og líkur á vetrarfærð Veturinn virðist ekki ennþá vera búinn þrátt fyrir að tæpar tvær vikur séu liðnar af maí. Gular viðvaranir eru í gildi allan daginn á morgun á öllu Norðurlandi, hluta af Vestfjörðum, hluta Austurlands og á miðhálendinu. Þá er varað við líklegri vetrarfærð. Innlent 13. maí 2023 09:30
Talsverð rigning á landinu og hiti að sautján stigum norðaustanlands Lægð er nú stödd við Hvarf og bárust skil frá henni yfir landið seint í gær sem skilar sér í aukinni rigningu í nótt og framan af degi í dag. Búast má við talsverðri rigningu á sunnanverðu landinu og fylgir með sunnan strekkingur, þó reyndar hafi lægt vestast á landinu. Veður 12. maí 2023 07:09
Vaxandi sunnanátt og fer að rigna Mildur og rakur loftmassi er nú yfir landinu og í morgunsárið er vindur með hægasta móti og þoka lætur á sér kræla í flestum landshlutum. Veður 11. maí 2023 07:11
Hægir vindar, lítilsháttar væta og milt veður Veðurstofan gerir ráð fyrir hægum vindum og víða lítilsháttar vætu í dag, en þokuloft við ströndina. Veður 10. maí 2023 06:36
Víða rigning en hiti að fimmtán stigum Veðurstofan gerir ráð fyrir hægri, suðlægri átt og að víða verði súld eða rigning í dag. Líkur eru á skúrum sunnantil seinnipartinn, en norðaustanlands rofar sums staðar til og sést þá til sólar. Áfram verður þó þokuloft úti við sjávarsíðuna. Veður 9. maí 2023 07:21
Víða rigning og hiti að fjórtán stigum Nú er víðáttumikil lægð djúpt suðvestur af landinu og líkt og undanfarna daga þá beinir hún til okkar mildu og röku lofti. Reikna má með austan- og suðaustanátt í dag, golu, kalda eða stinningskalda og súld eða rigningu með köflum. Veður 8. maí 2023 07:13
Allt að fjórtán stiga hiti Í dag er spáð austlægri átt, fimm til þrettán metrar á sekúndu. Súld og rigning með köflum en yfirleitt þurrt norðaustanlands. Hiti verður víða á bilinu sjö til fjórtán stig. Veður 7. maí 2023 08:43
Allt að fimmtán stiga hiti í dag Í dag verður austlæg átt, fimm til þrettán metrar á sekúndu. Úrkomulítið verður í dag en dálítil væta verður á sunnanverðu landinu síðdegis. Hiti verður á bilinu sex til fimmtán stig. Svalast verður í þokulofti við ströndina. Veður 6. maí 2023 07:56
Mildar austlægar áttir leika um landið næstu daga Mildar austlægar áttir leika um landið á næstunni og má reikna með að hitatölur geti náð fimmtán stigum þar sem best lætur yfir hádagi. Það má reikna með að það verði fremur þungbúið, en yfirleitt bjartara norðanlands. Veður 5. maí 2023 07:12
Mildara loft komið og hitatölur yfir tólf stigum nær daglega Mildara loft er nú komið að landinu og förum við þá að sjá hitatölur skríða yfir tólf stig nánast daglega, einkum hlémegin fjalla og þar sem lítil eða engin úrkoma er. Veður 4. maí 2023 07:14
Yfirleitt þurrt veður og sólarkaflar nokkuð víða Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri átt, fremur hægum vindi víðast hvar en strekkingi syðst á landinu. Yfirleitt verður þurrt veður í dag og sólarkaflar nokkuð víða, en skýjað með suðurströndinni. Veður 3. maí 2023 07:10
Skúrir á sunnanverðu landinu og hiti að tíu stigum Þessa dagana er hæð yfir Grænlandi og norður af landinu sem stýrir veðrinu hjá okkur, ásamt víðáttumikilli lægð langt suður í hafi. Veður 2. maí 2023 07:13
Bjart og níu stiga hiti í dag Bjartviðri verður á sunnanverðu landinu fram undir kvöld í dag og hiti á bilinu núll til níu stig. Norðlæg eða breytileg átt þrír til átta metrar á sekúndu. Norðvestantil verða átta til þrettán metrar á sekúndu. Í kvöld má búast við stöku skúrum og éljum. Veður 1. maí 2023 07:48